Læknaneminn - 01.09.1969, Blaðsíða 41
LÆKNANEMINN
39
aðar er þannig, að geisla-
hleðslan er í eins konar skúffu.
Skúffuna er unnt að draga
fram og aftur inni í hausnum
úr lokaðri stöðu í opna og öf-
ugt. í opinni stöðu kemst geisl-
inn út úr hausnum að mestu
óhindrað, en í lokaðri stöðu
ekki. Mestur hluti hans verður
þá eftir í blýi geislahlífar.
4. Sviðmarkar eru notaðir til að
afmarka geislann og móta flöt
þann, sem geisla á. 1 kóbalt-
tækjum eru sviðmarkar ekki
fastmótaðir eins og í venjuleg-
um röntgentækjum, heldur
byggðir upp úr lausum blokk-
um eða öðru slíku, svo að uiint
sé í hvert sinn að fá þann
geislaflöt, sem henta þykir.
Sviðmarkar eru yfirleitt úr
blýi.
5. Súla með armi, sem ber haus-
inn. Gerð þessarar súlu ákveð-
ur hreyfimöguleika geisla-
tækisins og geislastefnur. Aðal-
lega er um tvær gerðir að ræða.
Annars vegar fyrir fastar
geislastefnur. Þá er geisla-
stefnan óbreytanleg meðan á
geislun stendur. Hins vegar
fyrir snúningsgeislun, en þá
snýst hausinn um láréttan ás
kringum sjúklinginn, þannig
að í miðju hringsins er mest
geislun.
6. Mótvægið er yfirleitt blý-
klumpur, sem er jafnþungur og
hausinn, enda ætlaður til að
halda jafnvægi við hann. Mót-
vægið er oft notað sem geisla-
vörn, og fer þá geislun í gegn-
um sjúklinginn og stöðvast í
blýinu. Sparar það mikla
steypu eða blý í veggjum
geislaherbergis.
7. Leguborðið, sem sjúklingur
liggur á, verður að vera hreyf-
anlegt í allar áttir. Er færsla
borðsins gjarnan véldrifin eins
og reyndar flestar hreyfingar
tækisins.
8. Stjórnborðið er ekki á sama
stað og aðrir hlutar kóbalt-
tækisins heldur er það staðsett
utan geislaherbergis. I stjórn-
borði er nákvæmur tímastillir
fyrir geislunartímann. Einnig
hraðastillir fyrir snúning við
snúningsgeislun, aðvörunarljós
og fleira. Til viðbótar ofan-
töldu eru alls konar hjálpar-
tæki svo sem röntgenmynda-
tökutæki, geislamælir og sjálf-
ritarar, og margs konar auka-
búnaður, sem þjónar fyrst og
fremst þeim tilgangi að full-
móta geislunarflöt eða ákveða
frekar geislastefnuna.
HEIMILDXR:
Cobalt-60 Teletherapy, Hoeber Medi-
cal Division, Harper & Row.
Directory of High-Energy Radio-
therapy Centres. IAEA. Vienna 1968.
#
Frú Sigríður var að leita að dóttur sinni og fann hana loks í faðmi ungs
manns í leðursófanum í bókaherberginu. „Hvað er eiginlega að ske hér,
barnið mitt?“ Hrópaði frú Sigríður.
„Veit það ekki enn, mamma," svaraði dóttirin, „reyndu að koma aftur
eftir svo sem hálftlma."