Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1969, Page 52

Læknaneminn - 01.09.1969, Page 52
LÆKNANEMINN )t6 Næringarskortur hrjáir þjóðina mjög, þótt ekki sé hægt að segja, að lýðurinn verði almennt hægum hungurdauða að bráð, en næring- arskorturinn, sem í kalorium reiknaður er að meðaltali 400 kaloriur á dag, gerir fólkið mun móttækilegra fyrir alls kyns krankleikum. Proteinskortur er mjög algeng- ur og gefur sig til kynna sem ákveðin sjúkdómsmynd, meðal barna kölluð kwashiorkor, sem með sanni hefir verið kallaður al- gengasti barnasjúkdómur á jarð- ríki. Sjúkdómar, orsakaðir af alls kyns parasitum, eru mjög algeng- ir. Af parasitum eru ascaris og amoeba algengastir. Ekki var óalgengt að finna við rect. explora- Syphilis. Berklar í hrygg. tion meðal barna, er leituðu okkar, úttroðna ampullu af ascaris, og oft mátti sjá sömu kvikindi ryðja sér braut fram úr vitum þessara vesalings barna. Að finna 3—5 tegundir mismunandi þarmapara- sita hjá sama einstaklingi var ekki óalgengt. Malaria ógnar um 8 millj. þjóð- arinnar eða öllum þeim, er lifa neðan við 2000 m hæð yfir haf- flöt. Öðru hvoru komu þó fyrir malariutilfelli í Addis, og tókum við reglulega viðeigandi lyf í fyr- irbyggjandi augnamiði. Eins og áður er sagt eru kyn- sjúkdómar mjög útbreiddir og komumst við oft í tæri við þá, bæði syphilis og gonorrhoea. Berklar í alls kyns myndum, svo sem lungnaberklar, beinaberklar,

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.