Læknaneminn - 01.09.1969, Page 53

Læknaneminn - 01.09.1969, Page 53
LÆKN ANEMINN vt tuberculous peritonitar og men- ingitar, eru mjög útbreiddir, bæði meðal fullorðinna og barna. Álitið er, að um 20% þjóðarinnar þjáist af aktivum berklum. Bólusótt, typhus og relapsing fever eru landlægir sjúkdómar. Holdsveiki hrjáir um 1,5% þjóð- arinnar, og trachoma er mjög út- breidd, hefir fundizt meðal 40% skólabarna í Addis. Hepatitis infectiosa er mjög út- breiddur. eins og geta má nærri. Sjúkdómur þessi lagðist mjög þungt á þá Evrópumenn, er fengu hann, en hinir innfæddu sluppu oft furðu létt. Með reglulegu milli- bili hlutum við gammaglobulin injectionir gegn sjúkdómi þessum í fyrirbyggjandi augnamiði. Var sýnt fram á það fyrir allmörgum Bólusótt Tetanus. árum, að það veitti góða vörn meðal gæzlusveita Sameinuðu þjóðanna í Kóreu. Beinkröm er mjög algeng meðal ungabarna eða í um 30% þeirra, ótrúlegt en satt í þessu sólskins- landi. Þetta á fyrst og fremst ræt- ur sínar að rekja til þess útbreidda siðar að loka börnin inni í hinum dimmu kofum, forða þeim undan ,,auga djöfulsins", en slíkar eru hugmyndir um sólina. Þeim er ekki sleppt út úr kofunum, fyrr en þau geta bjargað sér sjálf. Eins og geta má nærri, eru alls kyns skottulækningar hafðar í frammi, og komumst við oft í kynni við afleiðingar þeirra, t. d. útblædd börn eftir umskurð, en um 90% ethiopiskra barna af báð- um kynjum eru umskorin. Að

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.