Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1969, Page 55

Læknaneminn - 01.09.1969, Page 55
LÆKNANEMINN J,9 Barnaheilsug'æzlustöð. og jafnframt ódýrt mjöl til mann- eldis, sem að u.þ.b. 95% er fram- leitt úr innlendu hráefni. Það hef- ir verið prófað mjög gaumgæfi- lega með góðum árangri, og fyrir stuttu hefir verið hafin fram- leiðsla þess í stórum stíl fyrir hinn almenna markað. Auk þess sem sænska ríkið sér um þessa þætti heilbrigðisþjónust- unnar í Addis, vinnur það að skipulagningu almennrar heil- brigðisþjónustu og kostar hana að miklu leyti í tveimur af tólf fylkj- um Ethiopiu. Að lokum vona ég, að þetta sundurlausa rabb mitt hafi beint hugum ykkar eitthvað að þeim vandamálum á sviði heilbrigðis- mála og skyldra mála, er um % hluti mannkyns hefir við að stríða í dag, og óbeint er vandamál okk- ar allra. Og ekki þætti mér verra, ef einhver hinna verðandi lækna, og því ekki þegar orðinna lækna, hugsaði sér að verja hluta starfs- tíma síns meðal hinna svo mjög hjálparþurfi ungu Afríkuþjóða. Leyfi ég mér að segja, að enginn verður vonsvikinn af þeirri al- mennu reynslu. Marasmus. # Hjónin voru ósátt og höfðu ekki talað saman í marga daga. Kvöld eitt lagði hann seðil á náttborð konunnar, sem skrifað var á: ,,Vektu mig klukkan sjö.“ Þegar hann loksins rumskaði klukkan tíu morguninn eftir, fann hann seðil á náttborðinu, sem á stóð: „Vaknaðu, klukkan er sjö.“

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.