Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1969, Page 61

Læknaneminn - 01.09.1969, Page 61
LÆKNANEMINN 53 hitnar mjög’ mikið, ef það verður fyrir míkróbylgjum, vegna vökva- magns síns og þess, hve illa það leiðir hita til umhverfisins, og þess vegna verður að forðast, að augað verði fyrir geislun. Kirtilvefur eistna getur eyðilagzt við míkró- bylgjugeislun. Börn verður að með- höndla með varúð, þar eð hita- temprun þeirra er léleg. Fyrir utan það ofannefnda gildir það sama og fyrir stuttbylgjur. Illkynja æxli, bráð bólga, blæðingatilhneiging, þungun, grunnlægir málmhlutir og minnkað húðskyn, allt bannar þetta notkun míkróbylgja. HLJÓÐilYLG JIJK Hljóðbylgjur, sem notaðar eru til meðferðar, hafa tíðni um 800 - 1000 kHz. Stundum eru notaðar hljóðbylgjur, sem hafa tíðni allt að 3000 kHz. Hljóðbylgjur hafa mekanisk áhrif á vefina og hita þá upp. Þegar hljóðbylgjum er hleypt gegnum efni, hreyfast agn- ir þess fram og til baka, og á sama hátt eykst og minnkar þrýsting- urinn, sem með venjulegum styrk- leika nemur 1-4 loftþyngdum. Fjarlægðin milli mesta og minnsta þéttleika er u.þ.b. 1 mm. Ef styrk- leikinn er mjög mikill, myndast holrúm við minnsta þrýstinginn, og kallast það fyrirbrigði „kavita- tion“. Hinn mekaniski kraftur hljóðbylgjanna ummyndast smám saman í hita. Mekanisku áhrifin á vefina valda depolariseringu stórra sameinda og leysingu rauðra blóðkorna, og dýratilraunir hafa sýnt, að með meiri styrk er hægt að framkalla æðabresti í lífhimnunni. Önnur áhrif, sem ef til vill orsakast aðal- lega af hitaaukningunni í vefjun- um, eru minnkaður þéttleiki frumuhimnanna, aukin blóðsókn, bjúgur og breytingar á frumum, sem geta orðið allt að því drep. Ef bein verða fyrir stöðugum áhrif- um hljóðbylgja, geta þau brotnað. Það er þó engin hætta á, að slíkt komi fyrir við venjulegan skammt, og þegar hljóðbylgjuhöfuðið er á stöðugri hreyfingu yfir líkams- hlutanum, sem meðhöndlaður er. Taugavefur er mjög næmur fyr- ir hljóðbylgjum. Leiðsluhæfni tauga minnkar við fremur lítinn styrk og hverfur alveg við mikinn. Viðbragðstími eykst og „aktions- potentialið“ minnkar. Við mikil áhrif frá hljóðbylgjum getur taugavefur eyðilagzt. Það liggur því í augum uppi, að gæta verður mikillar varkárni við val á styrk og meðferðartíma við notkun hljóðbylgja til lækninga. Yfirleitt eru ekki gefnar nema 15 - 20 meðferðir í röð, og a.m.k. 3 mánuðir verða að líða á milli, ef endurtaka þarf meðferðina. Hæma- tom eyðast fljótt við hljóðbylgju- meðferð, ef notaður er venjulegur styrkleiki (2-3 watt/cm2). Hljóðbylgjur geta hitað vefi líkamans töluvert upp. Djúp áhrif og hitamyndun í einstökum vefj- um eru háð tegund vefjarins og þeirri tíðni, sem hljóðbylgjurnar hafa. Því hærri tíðni, þeim mun grynnri áhrif. Við 1000 kHz, sem er sú tíðni, sem venjulega er not- uð, er penetrationsdýptin fyrir fituvef um 9 cm og 3 cm fyrir vöðvavef (penetrationsdýpt er sú dýpt, þar sem styrkurinn hefur minnkað niður í y3 af yfirborðs- styrknum). Af þessu leiðir, að

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.