Læknaneminn - 01.04.1986, Síða 20
Skilun (Dialysis)
Páll Ásniundsson
Orðið dialysis virðist upprunnið í
grein frá 1854 eftir Graham nokkurn.
þar sem hann lýsir flæði uppleystra
efna gegnum hálfgegndræpa himnu
gerða úr nautsblöðru. Fyrstu kvið-
skilun (peritoneal dialysis) gerði
Wegner 1877 á dýrum, en telja má,
að Abel o.ll. hafi lagt grunninn að
blóðskilun (hemodialysis) árið 1914.
Það er svo Hollendingurinn Wilhelm
Kolff, sem talinn er eiga heiðurinn að
fyrsta nothæfa útbúnaðinum til blóð-
skilunar á mönnum árið 1945.
Síðar hefur orðið ör þróun á öllu,
sem lýtjjr að blóðskilun og kviðskilun
og slík meðferð hefur bjargað eða
framlengt líf þúsunda.
Ég mun skýra stuttlega frá nokkr-
um grundvallaratriðum og lýsa báð-
um meginaðferðum skilunar og beit-
ingu þeirra.
Grundvallaratriði skilunar
Skilun er fólgin í því, að hálfgegn-
dræp (semipermeable) himna hleypir
í gegnum sig mólekúlum undan
þéttnihalla frá einu vökvahólfi til
annars. (Mynd 1). Slíkar himnur
finnast í náttúrunni. t.d. lífhimnan,
en eru einnig gerðar af mannahönd-
um, t.d. blóðskilunarhimnur.
Gegndræpi (permeatability) himn-
unnar ákvarðast af stærð smágata
(pores) þeirra, sem á henni eru, auk
þykktar hennar. Þessi atriði segja í
raun einnig til um sértækni (selec-
tivity) himnunnar gagnvart hinum
ýmsu mólekúlum, en þar skipta stærð
þeirra og Iögun einnig máli.
Flæðishraöi efnis um himnuna á-
kvarðast af gegndræpi hennar, flatar-
máli og þéttnihalla efnis yfir himn-
una. Þetta þýðir aö sjálfsögðu að skil-
unarhraði er kominn undir endurnýj-
unarhraða lausnanna beggja vegna
himnunnar. Afköst blóðskilunar eru
því háð blóðflæði um skiluna.
Sé hydrostatiskur þrýstingshaili
yfir himnuna getur lausn pressast
gegnum hana undan hallanum. Kall-
ast þaö últrafiltration. Osmotiskur
þrýstingshalli veldur svipuðum flutn-
ingi vatns undan hallanum uns jaf'n-
vægi er náð. (Mynd 2). Nýta menn
sér fyrirbæri þessi til þess að ná
vökva af sjúklingnum, hið fyrrnefnda
í blóðskilun en það síðara í kviðskil-
un.
Hlóðskilun (hæmodialysis)
Til blóðskilunar þarf blóðskilu
(gervinýra [dialyzer]), skilvökva og
góðan aðgang að blóðveitu sjúklings.
í blóðskilunni er blóði sjúklings rennt
öðrum megin við hálfgegndræpa
himnu, en hinum megin valnslausn,
sem kölluð er skilvökvi (dialysate).
Himnan er oftast úr cuprophane, sem
er í ætt við sellófan og er þykkt henn-
ar allt niður í 10 mikrón. Yfirborð
himnunnar er gjarnan nálægt einum
fermetra en rúmmál blóðhólfsins í
skilunni þó aðeins ca. 100 ml. Með
stillanlegum undirþrýstingi í skil-
DIALYSIS; The movement of SOLUTES through a membrane from a higher to a lower
solute concentration area, i.e, DIFFUSION THROUGH A MEMBRANE
Mynd I. Skilun (dialysis).
18
LÆKNANEMINN Vms- Zmt,-38.-39. árg.