Læknaneminn - 01.04.2002, Blaðsíða 16
Uppbygging sárfræðinámsins
Hægt er að leggja stund á flestar sérgreinar læknis-
fræðinnar í Svíþjóð en samkvæmt sænskum reglum er
lengd sérnáms minnst 5 ár. Uppbygging sérnámsins er
oftast innan blokkarkerfis þannig að hægt er að ljúka
náminu á sömu stofnun eða innan sama svæðis, þó
stundum séu undantekningar á þessu. Námið fer að
mestu fram á sjúkradeildum/heilsugæslustöðvum og
rnikil áhersla er lögð á göngudeildarvinnu.
Síðustu ár hefur sérnám í læknisfræði tekið tölu-
verðum breytingum í Svíþjóð þannig að nárnið hefur
verið gert skipulagðara. Þess er krafist að allir hafi
leiðbeinanda (handledare) sem hefur yfirumsjón með
sérnámi læknisins. Þannig er ekki nægjanlegt að Ijúka
ákveðnum tíma í ákveðinni sérgrein heldur verður
viðkomandi læknir einnig að geta sýnt yfirlækni og
leiðbeinanda fram á vissa kunnáttu til þess að geta
fengið sérfræðiréttindi. Flest sérgreinafélögin bjóða
auk þess upp á sérfræðipróf sem hægt er að þreyja hafi
maður áhuga á en sum háskólasjúkrahús gera að skil-
yrði að Ijúka slíku prófi. í sumum sérgreinum kemur
einnig til greina að ljúka evrópskum sérfræðiprófum.
Jafnhliða klínísku námi er boðið upp á sérstök nám-
skeið í hverri sérgrein fyrir sig og geta þau verið mjög
gagnleg og vel skipulögð. Námskeiðin eru auglýst í
sænska læknablaðinu (Lákartidningen) og tekur hvert
námskeið yfirleitt fjóra til fimm daga. Ekki er skylda
að sækja ákveðinn fjölda námskeiða en leiðbeinendur
eru yfirleitt hafðir með í ráðum hvaða og hversu mörg
námskeið eru sótt. Námskeiðin eru lækninum að
kostnaðarlausu og oftast er greitt fyrir ferðakostnað og
uppihald. Læknirinn heldur auk þess launum sínum á
meðan hann sækir námskeiðið.
Tafla I:
Gagnleg vottorð:
1. Afrit af prófskírteini
2. Afrit af lækningaleyfi
3. Vottorð frá Læknafélagi íslands
4. Afrekaskrá (Curriculum vitae)
5. Afrit af stúdentsprófsskírteini
6. Hjúskaparvottorð
7. Fæðingarvottorð
8. Samnorrænt flutningsvottorð
9. Flutningstilkynning frá sjúkrasamlagi
10. Vottorð frá tryggingafélagi vegna áunnins
bónuss í tengslum við bifreiðatryggingar.
11. Vottorð frá sjúkrahúsi um framhaldsnám
12. Vottorð frá sjúkrahúsi um tekjur s.l. árs
13. Sænskuvottorð
Námstíma frá íslandi er hægt að fá metinn en við-
komandi yfirlæknir og nefnd á vegum hins opinbera
(Socialstyrelsen) ákveða hversu milcið fæst metið þar
sem farið er yfir hvern umsækjanda fyrir sig. Yfirleitt
er ekki hægt að fá meira en 2 ár metin frá námstíma á
Islandi. I Svíþjóð er hægt að fá viðurkennda fleiri en
eina sérgrein. Ekki er talið ráðlegt að hefja sérnám án
þess að hafa fengið ótakmarkað lækningaleyfi á Is-
landi. Þó er leyfilegt í Svíþjóð í vissum tilvikum að
nota sex mánuði til sérnáms áður en viðkomandi hef-
ur hlotið ótakmarkað lækningaleyfi.
Réttindi íslenskra lækna í Svíþjóð
Samkvæmt norrænum samningum geta íslenskir
læknar sótt um lækningaleyfi í Svíþjóð án þess að
gangast undir próf. Ekki er skylda að vera í sænska
læknafélaginu en aðild er að mörgu leyti æskileg óg
kostar tæplega 20 þúsund krónur á ári. Um leið fæst
aðgangur að lánum en sænska læknafélagið tengist
bæði banka og tryggingafélagi.
Námsstöður í Svíþjóð
Námsstöður í Svíþjóð eru aðallega tvenns konar, ann-
ars vegar svokallaðar ST-blokkir (specialist tjánst-
göring) og hins vegar svokallaðar afleysingastöður
(vikariat). Fyrrnefndu stöðurnar eru auglýstar í
sænska læknablaðinu. Sé læknir ráðinn í ST-blokk
skuldbindur viðkomandi stofnun sig til þess að veita
honum menntun til sérfræðiviðurkenningar. Jafnffamt
verður stofnunin (a.m.k. í langflestum tilvikum) að
veita lækninum stöðu að loknu sérfræðinámi óski
hann þess. Hið síðarnefnda á þó ekki við um háskóla-
sjúkrahúsin.
Af ofanskráðu er ljóst að ST-staða veitir lækninum
meira öryggi á námstímanum og er sjálfsagt að stefna
að því að komast í slíka stöðu. Stofnanir og yfirmenn
vilja oft fremur ráða lækna í afleysingastöður til nokk-
urra mánaða í senn, að minnsta kosti þangað til við-
komandi hefur náð að sýna sig og sanna. Því getur
verið erfitt að komast beint í ST stöðu frá Islandi. I
staðinn fæst afleysingastaða oft til 6 mánaða. Þannig
fær stofnunin tíma til að átta sig á viðkomandi og
einnig er mikilvægt fyrir þann sem kemur út til sér-
náms að finna hvort hann aðlagast áður en hann bind-
ur sig til lengri tíma.
Aður var íslenskum læknum ráðlagt að geta þess í
umsókn og viðtali að þeir stefndu heim til Islands að
námi loknu, þar sem slíkt yki likur á því að þeir fengju
námsstöðu í Svíþjóð. Þetta þarf ekki að eiga við í dag.
Töluverður skortur er á læknum í mörgum sérgreinum
og allt eins líklegt að yfirlækni þyki meiri fengur í
14