Læknaneminn - 01.04.2002, Qupperneq 21
Forvarnastarf
læknanema,
kemur það þér við?
Upphaf starfsins var að frumkvæði Bjargar Þorsteins-
dóttur læknanema sem hafði fyrirmyndina frá hinum
Norðurlöndunum, en þar hefur slíkt starf verið við
lýði ýmist í nokkur ár eða áratugi. Hún ásamt fleirum
sá svo um að útfæra hugmyndina frekar.AIlt frá upp-
hafi var unnið í fullu samstarfi með Læknadeild og
hefur núverandi forseti deildarinnar verið sérstaklega
áhugasamur og stutt okkur með ráðum og dáð. Ég
ætla ekki að fara nánar út í þessa sálma hér, en ef á-
hugi ykkar á sögu starfsins er þeim mun meiri bendi
ég ykkur á heimasíðu starfsins : http://www.for-
varnir.com. Þar er einnig hægt að nálgast allar mögu-
legar upplýsingar um allt sem viðkemur kynlífi og
kynsjúkdómum, fyrir þá sem á því þurfa að halda.
Upphafsstarfsár félagsins, veturinn 1999-2000,var
nokkuð brösugt. Ekki virtist þó vanta áhugann hjá for-
vitnum læknanenium á 2. og 3. ári sem þyrsti í að
kynnast betur þeim leyndardómum sem kynlífsástund-
un hefur í för með sér og fylktum við liði á undirbún-
ingsnámskeið haustið 1999. Fyrri hluti námskeiðsins
fór vel fram undir stjórn siðprúðra manna og kvenna í
sal Læknafélags Islands í Smáranum. Hlýddum við
þar á fyrirlestra um allt mögulegt og ómögulegt sem
viðkemur kynlífi. Ekki var þó látið við það sitja held-
ur var okkur smalað í sumarbústaðaferð öllum saman
og var það einróma álit hópsins að hápunkti nám-
skeiðsins hafi verið náð á kvöldvökunni, sem haldin
var á laugardagskvöldinu. Nema ef frátalinn skyldi
stjórnandi kvöldvökunnar Dr. Bob Zelony sem líklega
hefur haldið að hann væri staddur í frumskógi svört-
ustu Afríku meðal innfæddra en ekki í sumar-
leyfisparadís siðprúðra íslendinga, Brekkuskógi. Slílc
var keppnisharkan, stríðsandinn í samkvæmisleikjun-
um og útgangurinn á liðinu, þar sem m.a.s. allra
feimnasta fólk fórnaði fötunum sínum fyrir liðsheild-
ina.
Ekki orð um það meir því þrátt fyrir að við höfum
drukkið í okkur allan þann fróðleik, og annað sem
drekkandi var, sem á borð var borið á þessu námskeiði
urðu fáar heimsóknir í framhaldsskóla landsins þetta
árið. Eingöngu náðist að prufukeyra prógrammið í
einum skóla, Verslunarskóla íslands, 5 mánuðum eftir
að undirbúningsnámskeiðið fór fram. Það hefur þó
sennilega orðið til þess að starfið hélt velli árið eftir
því að þeir fáu 2.árs nemar sem drifu sig í heimsókn-
irnar skemmtu sér betur en þeir hefðu þorað að vona.
Fylltust þeir eldmóð og áhuga, en líka réttlátri reiði í
garð 3,ársins sem hafði ákveðið að láta starfið sigla
sinn sjó. Akveðið var að efna til aðalfundar strax um
vorið sem fram fór á heimili Ragnars Freys Ingvars-
sonar í maí árið 2000. Þar var kosin ný stjórn fyrir
starfsárið 2000-2001. Eftirfarandi aðilar hlutu kosn-
ingu: Jón Þorkell Einarsson var kosinn formaður, Kol-
brún Pálsdóttir ritari og Ragnar Freyr Ingvarsson
gjaldkeri, allt nemar sem þá höfðu nýlokið 2.ári.
Undirbúningur fyrir næsta starfsár 2000-2001 hófst
þegar seinnihluta sumars þegar skrifuð voru bréf til
allra framhaldsskóla á landinu til að kynna starfið.
Buðum við námsráðgjöfúm, forvarnafulltrúum eða
öðrum fulltrúum framhaldsskólanna til fundar í húsa-
kynnum læknadeildar í september '01 og var mæting
framar vonum. Þá var strax byrjað að bóka lækna-
nema í heimsóknir um allt land sem hækkaði hvíldar-
púls stjórnarmeðlima all verulega því við höfðum
enga hugmynd um hver þátttaka læknanema í starfinu
yrði. Við bárum okkur samt vel og bókuðum og bók-
uðum, betluðum peninga út um allt og undirbjuggum
undirbúningsnámskeið sem var haldið í byrjun októ-
ber 2001. Ahyggjur okkar af þátttöku eða réttara sagt
þátttökuleysi reyndust óþarfar því mæting var mjög
góð, sérstaklega voru 2,árs nemar til fyrirmyndar hvað
það varðar. Við sem höfðum farið í þessar fáu heim-
sóknir árinu áður fundum mjög til okkar, vorum talin
reynslunni ríkari og miðluðum óspart af henni til
hinna yngri og óreyndari. Þau hafa þó sjálfsagt ekk-
ert lært af viti fyrr en í fyrstu heimsóknina var komið.
Fjáröflun gekk framar vonum, enda Islendingar í
blússandi góðæri í þá daga. Soroptimistafélag Reykja-
víkur, Menntamálaráðuneytið, Fjármálaráðuneytið og
hin ýmsu lyfjafyrirtæki styrktu okkur rausnarlega
bæði með peningum og mat til undirbúningsnám-
skeiðs. Enda kom á daginn að ekki var vanþörf á, því
kostnaður við slíkt starf er mikill. Stóðum við m.a.
sjálf straum af kostnaði við ferðir út á land, en við
heimsóttum m.a. Ísaíjörð, Laugarvatn og Akureyri. Ef
sérstakur áhugi er til staðar og þið viljið fræðast meira
um einstaka kostnaðarliði er bent á heimasíðu for-
varnastarfsins, en einnig má hafa samband persónu-
lega við Ragnar Frey Ingvarsson fráfarandi gjaldkera.
Það er skemmst frá því að segja að þrátt fyrir verk-
fall framhaldsskólakennara sem stóð yfir í 2 mánuði
19