Bændablaðið - 05.10.2023, Qupperneq 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
Erindi þeirra var að kynna sér
sjálfbærar fiskveiðar og græna orku
Íslendinga.
,,Starfsmenn sjóðsins verða að
kynna sér stefnur og strauma heima
og erlendis og afla sér þekkingar til
að geta fjárfest með ábyrgum hætti
fyrir hönd viðskiptavina sinna,“
bætti Mitsuaki við. Stefna sjóðsins
vakti athygli og við gátum því ekki
sleppt tækifærinu til að forvitnast
um ástæður heimsóknarinnar og
hvað að baki bjó.
Sawakami Fund
og samfélagsleg ábyrgð
Sawakami sjóðurinn var stofnaður
árið 1999 og er því að verða 25
ára. Heildareignir sjóðsins eru
384 milljarðar jena, jafngildi 345
milljarða króna.
Til samanburðar eru árlegar
útflutningstekjur af sjávarútvegi á
Íslandi 250–300 milljarðar króna.
Sjóðurinn fjárfestir eingöngu til
langs tíma í fyrirtækjum sem styðja
við samfélög sín á einn eða annan
hátt og eru líkleg til að bæta lífsgæði
þeirra á næstu 10–20 árum.
,Fyrirtæki getur ekki stutt við
samfélag sitt, hvort heldur lítið þorp
eða þjóðina í heild, nema með því að
skila hagnaði. Þannig vex og dafnar
fyrirtæki samhliða samfélaginu og
byggir undir betri framtíð og hefur
burði til að fjárfesta í nýjungum
og nýjum tækifærum þar sem
ungt fólk sér tækifæri og framtíð
sína. Við viljum fjárfesta í þannig
fyrirtækjum,“ segir Mitsuaki.
Eingöngu einstaklingar
Sjóðurinn býður einungis
einstaklingum að fjárfesta í
sjóðnum með sparnaði sínum.
Viðskiptavinir, þ.e.a.s. fjárfestar, í
Sawakami sjóðnum eru nú 118.000.
,,Markmiðið er að gera líf
einstaklinganna einfaldara og að þeir
þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur.
Hver einstaklingur á sitt líf og
sína drauma. Með því að fjárfesta
í Sawakami sjóðnum þá geta
fjárfestar treyst því að sparnaður
þeirra sé nýttur til uppbyggingar í
þágu samfélags þeirra og þá um leið
þeirra sjálfra. En grundvöllurinn
verður alltaf að vera góð ávöxtun,
alveg eins og náttúran sjálf gefur
af sér í formi góðrar uppskeru eða
góðrar veiði.
Þannig, og einungis þannig,
er samhljómur náttúrunnar og
mannanna sem eru að sjálfsögðu
eðlilegur hluti hvort af öðru,“ segir
Mitsuaki.
Starfsmenn sjóðsins
Starfsmenn sjóðsins verða sjálfir að
heimsækja fyrirtækin sem sjóðurinn
fjárfestir í og þekkja stjórnun,
tilgang og markmið þeirra. Þeir
verða að vera fullvissir um að stefna
og markmið fyrirtækisins sé að bæta
lífskjör samfélaga sinna.
,,Það er ekki nóg að þekkja
fyrirtækin og afkomutölur þeirra,
heldur verðum við einnig að þekkja
stjórnendur og stefnu stjórnenda
fyirtækjanna sjálfra. Við verðum að
vera fullvissir um að markmið þeirra
sé í samræmi við stefnu Sawakami
sjóðsins,“ segir Mitsuaki.
,,Það er ekki nóg að þekkja
fyrirtækin sjálf heldur verðum við
að bera ábyrgð á fjárfestingum og
fjárfestingarstefnu og geta kynnt
hana milliliðalaust til þeirra sem
leggja fé sitt í umsjón sjóðsins. Við
verðum því að geta útskýrt, augliti
til auglitis, fyrir fjárfestum hvers
vegna félagi gengur vel eða illa og
hverjar framtíðarhorfurnar eru,“
bætir Mitsuaki við.
Staða sjávarútvegs í Japan
Í viðtali í Bændablaðinu þann 12.
ágúst 2021 lýsti Ayumo Katano
fiskveiðistjórnun í Japan m.a. með
eftirfarandi orðum: ,,Staða japansks
sjávarútvegs er slæm. Fiskistofnar
eru ofveiddir og því er dýrt að veiða
fiskinn. Vegna slæms skipulags er
meðalverð á japönskum makríl
mjög lágt.
... Af þessu öllu leiðir að
laun japanskra sjómanna eru
afskaplega lág. ... Meðalaldur
japanskra sjómanna er um 60 ár og
endurnýjun lítil, sem er auðvitað
eðlileg afleiðing af lágum launum,“
Katano hefur m.a. gefið út fjórar
bækur um nauðsyn þess að breyta
fiskveiðistjórnun í Japan.
En það er ekki allt slæmt
í Japan. Í viðtalinu lýsti hann
einnig hörpudisksveiðum þar sem
sjómenn og fyrirtæki þeirra gæta
búsvæða hörpudisksins, aðstoða
við hrygningu og rækta í sumum
tilfellum hörpudiskinn frá upphafi
til enda. Þar er afrakstur góður.
Fyrirtækin hagnast og hafa getu
til að fjárfesta í skipum, vinnslum,
tækni og markaðsmálum og sjómenn
eru vel launaðir.
Hvers vegna til Íslands?
,,Við höfum heyrt af því hvernig
íslenskur sjávarútvegur er rekinn.
Að fiskveiðarnar séu sjálfbærar
og að fiskistofnarnir séu ekki
ofveiddir,“ sagði Mitsuaki.
,,Arðsöm fyrirtæki eru forsenda
sjálfbærni samfélaga. Á sama tíma
verða fyrirtækin og samfélögin að
umgangast náttúruna og auðlindir
hennar af virðingu, hlúa að henni
og nýta með sjálfbærum hætti.
Þetta er hinn mikilvægi samhljómur
sjálfbærninnar þar sem fólkið sjálft er
hluti hennar. Það er einnig mikilvægt
að fyrirtækin sjálf séu arðsöm og
geti staðið undir uppbyggingu í
sjávarbyggðunum.
Okkur langaði mjög að kynna
okkur hvernig Íslendingar
stjórnuðu fiskveiðum sínum með
sjálfbærum hætti og læra af reynslu
þeirra,“ sagði Mitsuaki að lokum.
Greinarhöfundur er búfræðingur
og framkvæmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum
Sigurgeir B. Kristgeirsson
binni@vsv.is
NYTJAR HAFSINS
Umsókn um leyfi til selveiða
Fiskistofa vísar til reglugerðar nr. 1100/2019 um bann við selveiðum. Reglugerðin gildir um
bann við veiði á öllum selategundum.
Í reglugerðinni kemur fram að selveiðar eru óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám
og vötnum) nema að fengnu sérstöku leyfi frá Fiskistofu.
Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar
sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag.
Fiskistofa auglýsir nú eftir umsóknum um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2024.
Umsóknarfrestur er til 15. október 2023.
Umsóknum skal skila á eyðublaði:
http://www.fiskistofa.is/media/eydublod/Umsokn-um-selveidar-til-eigin-nytja.pdf
sem senda skal með tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is
eða með pósti til Fiskistofa, Borgum við Norðurslóð 600 Akureyri.
,,Arðsöm fyrirtæki eru forsenda
sjálfbærni samfélaga“
– segir Mitsuaki Kuroshima, yfirmaður greininga hjá Sawakami eignastýringasjóðnum í Japan
,,Maðurinn er hluti náttúrunnar og verður að haga sér sem slíkur.
Við verðum að vera ábyrg og láta gott af okkur leiða fyrir komandi
kynslóðir þannig að lífskjör og lífsgæði batni,“ segir Mitsuaki
Kuroshima, en hann heimsótti Ísland nýlega ásamt tveim öðrum
starfsmönnum Sawakami eignastýringasjóðsins.
Starfsmenn Sawakami eignastýringasjóðsins: Frá hægri: Hiroaki Maeno, fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta,
Mitsuaki Kuroshima, umhverfisverkfræðingur og yfirmaður greiningardeildar Sawakami sjóðsins og Jun Suzuki,
byggingaverkfræðingur. Mynd / Aðsend.
Heildareignir Sawakami sjóðsins standa nú í um 345 milljörðum króna, en
hann var stofnaður árið 1999.
Við verðum því
að geta útskýrt,
augliti til auglitis,
fyrir fjárfestum hvers
vegna félagi gengur
vel eða illa og hverjar
framtíðarhorfurnar
eru ...“
Miklar sveiflur eru á japönskum fiskmörkuðum í magni og verði því sjómenn
kjósa að fiska sem mest, í stað þesss að reyna að hámarka verðmætin.
Mynd / Wikipedia.