Bændablaðið - 05.10.2023, Síða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
Krabbaveiðar, ein hættulegasta
atvinnugrein veraldar, er meðal
annars stunduð á haustin undan
ströndum Alaska. Sl. tvö ár hafa
þarlend yfirvöld þó lokað fyrir
veiðar vegna aflaleysis.
Um ræðir rýrnun stofna rauða
kóngakrabbans svo og snjókrabba
í Beringshafi. Kemur það nokkuð
á óvart, en fyrir um fimm árum var
stofn þeirra þéttur og góður og verð á
krabbakjöti í hæstu hæðum.
En hvað veldur þessari rýrnun?
Telja vísindamenn og líffræðingar
að aðallega sé um tvennt að ræða –
togveiðisjómenn og hlýnun jarðar.
Trollnetin skaði búsvæði krabba þar
sem þau dragast yfir hafsbotninn en
þetta eru svæði þar sem krabbinn
parast og hefur setu á meðan hann er
á viðkvæmu mjúkskeljastigi.
Til viðbótar við þetta hefur
ísmyndun í Beringshafi minnkað
allverulega sl. tvo vetur, hitastig
sjávar hækkað og því áhrifin á lífríki
hafsins sífellt að breytast. Haft er eftir
vísindamönnum að tvö ár af lítilli
þekju hafíss og óeðlilega hlýjum
sjávarhita vegna loftslagsbreytinga
kunni að hafa breytt vistkerfinu á þann
hátt að snjókrabbi eigi erfitt með að
lifa af og talið er það taki frá 6–10
árum fyrir stofninn að jafna sig.
Mike Litzow, yfirmaður rannsókna
við Kodiak Fisheries Science Center,
segir árlega könnun stofnunarinnar
hafa leitt í ljós fall heildarstofns krabba
í Beringshafi úr sögulegu hámarki,
11,7 milljörðum frá árinu 2018, í 940
milljónir árið 2021, því lægsta sem
nokkurn tíma hefur mælst.
Sendu Alaska Bering Sea Crabbers,
hagsmunasamtök krabbaveiðimanna,
beiðni til National Marine Fisheries
Service um að loka öllum
tegundum veiða í 180 daga í
austurhluta Beringshafs í viðleitni
til að vernda rauða kóngakrabbann.
Þeirri beiðni var hafnað en þess í stað
voru kannaðir aðrir valkostir sem
fælu í sér mögulegar veiðilokanir á
helstu mökunar- og moldarsvæðum
rauðkóngakrabba
Til skamms tíma er tap á uppskeru
rauðkónga- og snjókrabba hrikalegt.
Krabbaveiðimenn í Alaska keppast
við að halda sér á floti og oft heilu
samfélögin sem sum hver treysta á
krabbauppskeruna fyrir meira en 90%
af skatttekjum sínum. Því má nærri geta
að þeir fiskimenn sem hafa afkomu
sína af krabbaveiðum séu orðnir
örvæntingarfullir. Í maí úthlutaði
bandaríska viðskiptaráðuneytið tæpum
192 milljónum dollara til að aðstoða
fiskimenn í Alaska sem hafa orðið fyrir
áhrifum vegna lokunar veiða á kónga-
og snjókrabba síðustu tvö árin, en talið
er að ærið margir muni hætta starfsemi
áður en þeir peningar berast. /SP
UTAN ÚR HEIMI
Þegar kemur að vökvajafnvægi
líkamans er mjólk góður valkostur
sem drykkur - jafnvel betri en vatn.
Rannsókn sem gerð var á
vegum St. Andrews-háskólans
í Skotlandi leiddi í ljós að það er
ekki endilega vatnið sem er best fyrir
vökvajafnvægið þótt það sé nokkuð
gott til að koma aftur á jafnvægi í
líkama sem tapað hefur vökva, hvort
sem er kolsýrt eða ekki. Þetta kemur
fram á heilsuvef CNN-miðilsins
og segir jafnframt að drykkir sem
innihaldi smáræði af sykri, fitu eða
próteini viðhaldi vökvajafnvægi
lengur í líkamanum en vatn.
Þetta eigi orsakir að rekja til
viðbragða líkamans við drykkjum.
Að hluta til sé um að ræða magn
vökva í viðkomandi drykk. Því
meira sem þú drekkir því hraðar
fari vökvinn úr maga þínum og út í
blóðrásina þar sem hann getur stutt
við vökvajafnvægi. En eftir því
sem þetta ferli er skjótvirkara, þess
skemur helst vökvajafnvægið.
Næringarinnihald skiptir máli
fyrir vökvajafnvægið
Næringarinnihald skipti einnig
máli í því hversu vel drykkur bæti
vökvajafnvægi. Rannsókn St.
Andrews hafi leitt í ljós að mjólk
hafi enn betri áhrif á vökvajafnvægi
en vatn. Það sé vegna laktósans,
þ.e.a.s. mjólkursykursins,
próteinsins og fitunnar í mjólkinni.
Allt hjálpi þetta til við að hægja á því
að vökvinn fari úr maganum, sem
viðhaldi vökvajafnvægi til lengri
tíma en ella. Mjólk innihaldi einnig
sódíum sem virki eins og svampur
og haldi vökva lengur í líkamanum.
Ekki kom fram í umfjöllun CNN
hvort könnuð hafi verið sambærileg
áhrif laktósalausrar mjólkur.
Sykurmeiri drykkir, bæði
með viðbættum sykri og frá
náttúrunnar hendi, svo sem
ávaxtasafar og gosdrykkir, eru
skv. rannsókninni ekki eins góðir
fyrir vökvajafnvægi og drykkir með
minna sykurinnihaldi.
Sykurríkari drykkir séu raunar
lengur í maganum, en þegar vökvi
með hátt sykurinnihald fari úr
maganum endi hann í smágirninu
til að leysa betur upp sykurinn
og það hafi ekki eins góð áhrif á
vökvajafnvægið.
Gott vökvajafnvægi heldur
líkamanum vel smurðum
Vanti fólk vökva í líkamann er mælt
með að velja alltaf vatn frekar en gos.
Vatnið er líka nauðsynlegt fyrir nýrun
og lifrina og hjálpar þessum líffærum
að hreinsa eiturefni úr líkamanum.
Að halda góðu vökvajafnvægi
í líkamanum haldi liðamótum vel
smurðum, hjálpi við að forðast
sýkingar og að flytja næringarefni
til fruma líkamans.
Hversu góðu vökvajafnvægi
tiltekinn drykkur kemur á skipti þó
líklega ekki höfuðmáli fyrir fólk
nema þá helst í aðstæðum þar sem
um mikið vökvatap er að ræða, eins
og t.d. við íþróttaiðkun.
/sá
Mjólk best við þorsta
Fiskveiðieftirlitsmaður National Marine Fisheries Service í Alaska heldur
hér á rauðum kóngakrabba. Mynd / Wikipedia.
Krabbakjöt er selt dýrum dómum, hér
á Pike Place-markaðinum í Seattle.
Alaska:
Lokað fyrir krabbaveiðar
Örplast hefur nú fundist í skýjum
samkvæmt nýrri rannsókn sem
framkvæmd var af Waseda-há-
skólanum í Japan.
Sú staðreynd að örplastsagnir hafi
fundist í skýjum eykur mengunar-
hættu á öllu því sem við borðum og
drekkum til muna.
Í rannsókninni var regnvatni safnað
við fjallstoppa Mt.Fuji (3.776 m)
og Mt. Oyama (1.300 m) og það rann-
sakað með myndgreiningartækni til
að sjá hvort og þá hversu mikið af
plasti það innihélt.
Mest innihélt regnvatnið 14
mismunandi agnir af örplasti í
einum lítra vatns. Agnirnar voru frá
7 til 95 míkrómetri að stærð en til
samanburðar er þykkt á hári manna
að meðaltali um 80 míkrómetrar.
Mengun örplasts hefur fundist í
nær öllum vistkerfum jarðarinnar en
hingað til hefur lítið verið vitað um
áhrif örplasts í veðrahvolfinu en það
er það gufuhvolf jarðar sem er næst
jörðinni og nær frá yfirborði jarðar upp
í 10–17 km hæð. Talið er að örplastið
geti haft áhrif á skýjamyndun. /ÞAG
Japan:
Örplast í skýjum