Bændablaðið - 05.10.2023, Page 26

Bændablaðið - 05.10.2023, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023 Í síðasta tölublaði Bændablaðsins minntumst við á hina vinsælu sýningu Leikfélags Hveragerðis – söngleikinn vinsæla um Litlu hryllingsbúðina. Átta leikarar fara með fjölmörg hlutverk í sýningunni en alls koma um 20 manns að uppfærslunni. Frumsýning er áætluð föstudaginn 6 október, miðasala er á TIX. is og nánari u p p l ý s i n g a r er að finna á síðu Leikfélags Hveragerðis á Facebook. Sýningar hefjast kl. 19.30 og er sýnt í Leikhúsinu Austurmörk 23. Á döfinni ... MENNING Leikfélag Sauðárkróks hefur skemmt sér við það undanfarið að setja upp sýninguna um hann Benedikt búálf sem er nú kunnugur afar mörgum. Um er að ræða einn allra þekktasta barnasöngleik þjóðarinnar og skemmtilegt ævintýri eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson með grípandi lögum og tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson.Var sýningin fyrst sett upp á Íslandi árið 2002 í leikstjórn Gunnars Gunnsteinssonar, en síðan margoft verið sett upp úti um allt land, þar á meðal hjá Leikfélagi Akureyrar. Nú er semsé komið að því að Leikfélag Sauðárkróks takist á við þetta stóra verkefni og hafa þau verið síðasta mánuðinn að æfa og undirbúa sýningar undir stjórn Gunnars Björns Guðmundssonar leikstjóra. Þess má geta að Gunnar er margreyndur leikstjóri með yfir 30 leiksýningar, 4 áramótaskaup og kvikmyndir eins og Astrópíu og Ömmu Hófí á bakinu. Hefst sagan á því að búálfurinn uppátækjasami ákveður að fara í bað og birtist henni Dídí mannabarni tandurhreinn, með handklæði um sig miðjan. Enda búálfar aðeins sýnilegir mannabörnum þegar þeir eru blautir! Örlög þeirra eru svo hins vegar þeim ósköpum gædd að þegar þeir verða mannabörnum sýnilegir, þá ráða mannabörnin hvað verður um þá. Benedikt og Dídi verða góðir vinir og lenda í miklum ævintýrum og mikilli hættu í Álfheimum, þó allt fari vel að lokum. Alls taka fjórtán leikarar þátt í sýningunni að þessu sinni, ásamt ótal aðilum sem eru á bakvið tjöldin. Frumsýning verður föstudaginn 13. október í félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. Miðasala er á tix.is og einnig er hægt að panta miða í síma 8499434. Áætlaðar sýningar eru tíu talsins út október en eins og er fara einungis sex sýningar í sölu strax. /SP Leikfélag Sauðárkróks: Benedikt búálfur Götuskráð, hvít númer Krókur, dráttargeta 680 kg Ultramatic sjálfskipting 10 ára ábyrgð á reim, 5 ára ábyrgð á hjóli Hátt og lágt drif og driflæsingar Einungis 307 kg með bensíni og olíum Warn spil að framan Rafmagnsstýri Þrautreynd við íslenskar aðstæður — verð frá 2.560.000 kr. Mikið úrval aukahluta í boði s.s. aukasæti og fótstig, framrúða, töskur omfl. YAMAHA GRIZZLY EPS FJÓRHJÓL — klár til afgreiðslu! Yamaha á Íslandi Kletthálsi 3, 110 Reykjavík S 540 4980 | www.yamaha.is Umboðsaðili Alls taka fjórtán leikarar þátt í sýningu Leikfélags Sauðárkróks um hann Benedikt búálf, einn þekktasta barnasöngleik hérlendis – en hann var fyrst settur upp árið 2002 í leikstjórn Gunnars Gunnsteinssonar. Myndir / Aðsendar. Leikfélag Kópavogs: Rommí Leikritið Rommí eftir Bandaríkjamanninn D.L. Coburn hefur skotið upp kollinum oftar en einu sinni og ávallt fengið mikið lof fyrir að vera jú akkúrat eins og leikrit eiga að vera! Hugljúft, átakanlegt og sprenghlægilegt og höfðar í raun til allra aldurshópa. Átakanlegt gamanverk ef svo mætti segja. Fjallar verkið um fólk sem komið er af léttasta skeiði, einstaklinga búsetta á elliheimili, en þau eiga það sameiginlegt að vera heldur óánægð með tilveruna – einmana, gömul og hálfbitur. Þau eiga þó það sameiginlegt að hafa gaman af því að grípa í spil og skemmta sér hið besta við þá iðju ... a.m.k. fyrst um sinn. Kemur ýmislegt upp úr kafinu er líður á spilamennskuna, bæði fljúga örvar Amors um loftið auk þess sem ýmis uppgjör fortíðar eru sett á borðið. Hefur Leikfélag Kópavogs nú tekið verkið upp á sína arma og er áætlað að sýningar hefjist í októberlok. Sýnt verður í Leikhúsinu í Funalind 2 Kópavogi og miðasala verður á vefsíðunni www.kopleik.is/midasala/. /SP Sakleysinginn hann Baldur þrælar alla daga í blómabúð og dreymir um ástir Auðar sem er í tygjum við leðurklæddan tannlækni með kvalalosta. Myndir / Aðsendar. Rommí! Mynd / Aðsend. Þú finnur Bændablaðið á www.bbl.is, Facebook & Instagram

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.