Bændablaðið - 05.10.2023, Page 42

Bændablaðið - 05.10.2023, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023 LÍF&STARF Fjórir viðburðir á Lífræna deginum – Áhersla lögð á meiri fræðslu til neytenda um vottunarmerkið og lífrænan landbúnað Lífræni dagurinn var haldinn hátíðlegur í annað sinn laugar- daginn 16. september. Fjórir viðburðir voru haldnir víðs vegar um landið og einn viðburður á Kaffi Flóru í Grasagarðinum í Reykjavík sem Lífrænt Ísland stóð fyrir. Viðburðirnir gengu mjög vel og fengu framleiðendur víðs vegar um landið fjölda gesta til sín til að sjá, smakka og kynnast hvað lífræn ræktun snýst um. Lífræna vottunarkerfið er alþjóðlegt gæðastýringarkerfi sem hefur verið til í yfir 50 ár. Markmiðið með að halda Lífræna daginn er að vekja athygli á þessari tegund ræktunar á Íslandi og fræða fólk um gildi vottunarinnar. Meiri fræðsla „Við hjá Lífrænu Íslandi höfum verið að leggja áherslu á meiri fræðslu til neytenda,“ segir Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri Lífræna dagsins. „Það liggur svo gríðarlega margt að baki þegar vara fær lífræna vottunarmerkið, hlutir sem neytendur eru ekki upplýstir um á matarumbúðum eða í verslunum en skiptir marga neytendur máli. Fyrir Lífræna daginn útbjuggum við samfélagsmiðlaefni sem hefur það markmið að fræða neytendur um hvað það þýðir þegar vara er með lífræna vottun. Einnig gerðum við fallegt fræðsluplakat með upplýsingum um hvað liggur að baki því að vara sé með lífræna vottun. Í lífrænni ræktun eru reglur um dýravelferð strangari. Í lífrænum landbúnaði hafa kýr og kindur meira rými á húsi, fá lífrænt fóður og hafa aðgang að útisvæði allt árið um kring, þegar veður leyfir. Lífrænir bændur vinna að því að fyrirbyggja veikindi dýranna og huga að heilbrigði þeirra m.a. með því að leyfa þeim að lifa eins og þeim er eðlilegt í náttúrunni. Í lífrænni ræktun eru ekki notuð eiturefni. Í staðinn nota lífrænir bændur náttúrulegar aðferðir til að vernda plöntur gegn sjúkdómum og ágengi sumra skordýra og vernda þannig líffræðilegan fjölbreytileika. Samkvæmt Evrópsku matvæla- öryggisstofnuninni (EFSA eru eiturefnaleifar í um helmingi af öllum almennum matvörum í Evrópu en einungis brot af því er að finna í lífrænum vörum.“ Lífræn ræktun er hringrásarkerfi í framkvæmd Að sögn Önnu Maríu byggir lífræn ræktun á hringrás næringarefna. „Næringarefnum úr nærumhverfinu er safnað saman svo sem matar- afgöngum, búfjáráburði, garðúrgangi og afskurði frá ræktun og þeim komið inn í hringrásina aftur sem lífrænn áburður, í gegnum safnhaugagerð til dæmis. Í lífrænum mat eru bara leyfð 53 E-efni í stað 396. Grunngildi lífrænnar ræktunar er að búa til hreina matvöru sem hefur náttúrulegan endingartíma og lit. Þess vegna eru lífrænar vörur almennt með færri aukaefni en aðrar vörur. Í Evrópusambandinu eru 396 E-Efni leyfð í matvörum. Lífrænu reglurnar útiloka 343 þessara efna og leyfa einungis 53 E-efni sem öll eiga sér náttúrulegan uppruna,“ útskýrir Anna María. Lífræni dagurinn kominn til að vera Hún segir að þetta sé aðeins brot af því sem liggur að baki því að vara sé með lífræna vottun og heldur áfram. „En þetta eru upplýsingar sem neytendur eiga rétt á að vita, að minnsta kosti. til að geta tekið upplýstari ákvarðanir um hvaða matvöru þeir velja. Lífrænt Ísland heldur úti vefnum www.lifraentisland.is sem er ætlað að vera ákveðin miðja fyrir lífræna íslenska framleiðslu þar sem hægt er að finna upplýsingar um allt sem framleitt er á Íslandi undir lífræna vottunarmerkinu. Lífræni dagurinn er kominn til að vera og erum við strax farin að hlakka til Lífræna dagsins 2024,“ segir Anna María. /smh Vífill og Alejandra á Syðra-Holti í Svarfaðardal tóku á móti gestum úr sveitinni á Lífræna daginn, stóðu fyrir kynningum og fyrirlestrum, voru með smakk og seldu vörur. Þau buðu upp á blómkálssúpu með alls konar fersku og gerjuðu grænmeti, allt saman úr þeirra eigin lífrænt vottuðu afurðum. Myndir / Lífrænt Ísland Akur Organics í Þistilfirði á Langanesi tóku á móti gestum til sín og buðu þeim að taka upp gulrætur sjálfir sem börnunum þótti mjög gaman. Einnig gáfu þau smakk og sýndu gestum hvað þau eru að vinna að með þeirra öflugu og stóru gulrótarækt. Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Anna María Björnsdóttir og Stefán Jón Hafstein. Stefán Jón, höfundur bókarinnar „Heimurinn eins og hann er“, hélt erindi á viðburðinum á Kaffi Flóru. Hann fór vítt og breitt um vandann við matvælakerfi heimsins og tók fram að lífræn ræktun væri að minnsta kosti eitt af svörunum við þeim vandamálum sem matvælakerfi heimsins standa frammi fyrir eins og ofnotkun á tilbúnum áburði og þeim umhverfisvandamálum sem það veldur. Jóhanna Vilhjálmsdóttir, höfundur bókarinnar ,,Áhrif eiturefna á heilsu og umhverfi“ hélt erindi um lífrænt mataræði og heilsu. Hún lagði sérstaka áherslu á mikilvægi þessi að neyta matar án eiturefnaleifa. Mörg eiturefna sem notuð eru í almennri ræktun eru hormónaraskandi efni og geta haft skaðleg áhrif á heilsu sérstaklega barna og fóstra í móðurkviði. Þessi efni væru bönnuð í lífrænni ræktun og því öruggara að neyta lífrænt vottaðra matvara. Eydís Magnúsdóttir og Rúnar Máni Gunnarsson, sauðfjárbændur í lífrænum búskap, héldu erindi. Liv og Alla frá Villi mey kynntu sínar lífrænt vottuðu snyrti vörur. Helgi Rafn Gunnarsson, fram kvæmda- stjóri Bíóbú, og Margrét, dóttir hans, kynntu og seldu lífrænar mjólkur- vörur og kjöt frá Bíóbú. B irt m eð fyrirvara um m ynd a- o g textab reng l. Doublecoin - RSD1 Hönnuð fyrir erða vetrarfærð. Grófmunstruð dekk sem veita frábæra spyrnu snjó. Doublecoin - RSD3 Munstur dekksins er hannað til að veita gott grip við ölbreyttar aðstæður. nesdekk.is / 561 4200 Fiskislóð 41 101 Reykjavík 561 4110 Tímabókun Skeifan 9 108 Reykjavík 590 2098 Tímabókun Njarðarbraut 9 260 Reykjanesbæ 420 3333 Tímabókun Njarðarnesi 1 603 Akureyri 460 4350 Tímabókun Austurvegur 54 800 Selfossi 590 2095 Tímabókun Lyngási 8 210 Garðabæ 565 8600 Tímabókun Breiðhöfði 13 110 Reykjavík 590 2080 Tímabókun Bókaðu tíma hjá sérfræðingum okkar á nesdekk@nesdekk.is ÚRVAL DEKKJA FYRIR ATVINNUTÆKIÐ Nesdekk er umboðsaðili á Íslandi

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.