Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Nyrsti kaupstaðurinn á Íslandi
heitir Siglufjörður sem stendur við
samnefndan fjörð. Siglufjörður
er þekktur fyrir margt gott, þar er
skíðavika, Trilludagar, Þjóðlagahátíð
og auðvitað Síldarævintýri svo
eitthvað sé nefnt. Á Sigló er
einnig nyrsta brugghús landsins,
a.m.k. þangað til einhver í þorpinu
Raufarhöfn byrjar að brugga. Segull
67 nefnist það og heitir merkilegt
nokk ekki eftir langlífasta Pizza 67
staðnum á meginlandi Íslands, sem
var einmitt á Siglufirði. (Hér er Pizza
67-staðurinn í Vestmannaeyjum
augljóslega undanskilinn enda lúta
hlutir öðrum lögmálum á Suður-
Atlantshafshryggnum.)
Stofnandi og prímusmótorinn í
brugghúsi Seguls heitir Marteinn
Brynjólfur Haraldsson og kemur, eins
og langsamlega flestir sem komið hafa
við sögu í þessum greinarflokki, úr
heimabruggsenunni. Hann tók sig
til árið 2015 og setti brugghúsið á
laggirnar eftir að hafa sannfært föður
sinn og afa um það að koma með sér í
þetta ævintýri. Gömlu frystihúsi í eigu
fjölskyldunnar var breytt í brugghús,
bar og móttaka útbúin í rými þar sem
fiskur hafði verið hraðfrystur í pönnur
og hafist var handa við að brugga
fyrsta bjórinn, sem fékk það frumlega
nafn Orginal.
Happatalan
En hvers vegna 67? Ef ekki vegna
nostalgískra tengsla við pitsu-
staðakeðju frá tíunda áratugnum –
hvað þá? Jú, fjölskyldutengingarnar
við töluna 67 voru margvíslegar.
Stefán Guðmundsson, langafi
Marteins, keyrði vörubíl á Siglufirði
með bílnúmerinu F67. Síðan þá
hefur þessi tala verið happatala í
fjölskyldunni. Alnafni Marteins
og afi átti þó nokkrar trillur sem
voru með skráningarnúmerinu SI
67. Þegar langafinn dó átti hann
67 börn og barnabörn. Það lá því
lóðbeint við að halda nafninu í
atvinnustarfseminni. Segull vísaði
síðan í áttavitann, segulnálina, enda
snerist lífið á Siglufirði að mörgu
leyti um sjómennsku og nafnið, Segull
67, varð til.
Segja má að Segull falli mitt á
milli fyrstu og annarrar kynslóðar
sjálfstæðra brugghúsa á Íslandi,
þar sem fyrsta kynslóðin lagði
höfuðáherslu á magnframleiðslu sem
einkum miðaðist að sölu í ÁTVR, á
meðan að önnur kynslóðin var um
margt afurð ferðamannabólunnar
og stefndi einkum að því að
framleiða í smærri einingum en selja
ferðalöngum á vettvangi. Segull
hefur frá upphafi staðið milli þessara
tveggja heima, þar sem fyrirtækið
hefur brugðist við sívaxandi túrisma í
heimasveit en um leið reglulega boðið
upp á bjóra í Vínbúðinni.
Eitt einkenni Seguls á þeim
markaði eru bjórar sem vekja ekki
endilega athygli fyrir frumleika og
framúrstefnu en leita á kunnugleg mið
og eru keyptir af vinum Siglufjarðar.
Athygli vekur þó aðeins hvaða stílar
urðu fyrir valinu fyrst.
Umhverfisvitund
Orginal, fyrsti bjórinn, var milli-
dökkur lager sem vakti athygli enda
óvanalegt að lagerbjórar séu með
fyrstu framleiðsluvörum úr litlum
brugghúsum. Sjarmör, ljósgylltur lager,
var næstur á dekk og undirstrikaði það
enn frekar að brugghúsið ætlaði ekki
endilega að feta hefðbundnar slóðir
handverksbrugghúsanna, þó stílarnir
hafi kannski verið kunnuglegir.
Fljótlega kom þó sumarbjór, sem var
í ætt við belgíska Wit bjóra, þar sem
appelsínubörkur og kóríander var
notað til að bragðbæta. Þá má nefna
Hérastubb, páskabjórinn þeirra, á nafn,
sem og Sigló IPA bjórinn. Þá vakti
sagan á Svörtu Maríu
Stout bjórnum
sérstaka kátínu
greinarhöfunda og
mælum við með
að fólk skoði hana
næst þegar það
rekst á dós.
Annað einkenni
Seguls hefur
verið ákveðin
umhverfisvitund.
Árið 2019 fékk
brugghúsið Blá-
skelina, viður-
kenningu f rá
umhverfis- og auð-
l indaráðuneytinu
fyrir framúrskarandi
plastlausa lausn, en
Segull brugghúsið
hafði tileinkað sér fyrst íslenskra
brugghúsa lífræna bjórkippuhringi
í stað plasts. Kom fram í mati
dómnefndar að nýnæmið hefði verið
mikið hér á landi og skaut fyrirtækið
m.a. Bíóborgurum og Kaja Organics
ref fyrir rass, svo aðrir tilnefndir séu
taldir til.
Þá er brugghúsið búið að byggja
sér eimingaraðstöðu á efri hæðinni þar
sem sterkvín verður framleitt undir
merkjum Íshafs 67 og er markmiðið að
framleiða gin og jafnvel romm. Verður
það þá væntanlega nyrsta einingarhús
landsins þó að enn eigi það eitthvað
eftir norður eftir til að ná nyrsta
eimingarhúsi í heimi, sem staðsett er
skammt norðan Tromsö í Noregi.
Áfall skapaði tækifæri
Happatalan heldur sér þannig enn
þá og það er kannski eins gott því
brugghúsið lifir enn þrátt fyrir ýmis
ytri áföll. Þannig t.d. kviknaði í hinum
enda hússins, fjær brugghúsinu, vorið
2017 og þrátt fyrir að eldurinn hafi
gert sitt besta til að leggja brugghúsið í
rúst bjargaðist það á síðustu stundu þó
að lagerinn hafi eyðilagst. Í kjölfarið
hins vegar sköpuðust ýmis tækifæri
til að stækka og bæta við og í
kjölfarið stækkaði brugghúsið
lengra inn í gamla frystihúsið og
rými til að taka á móti hópum
var stækkað umtalsvert.
Það má því með sanni segja
að happatalan 67 hafi vakað yfir
brugghúsinu, ólíkt pitsustaðnum
með sömu töluna,
sem löngu er horfið
af sjónarsviðinu.
Framtíðin er að
minnsta kosti opin.
Hvort sem
verkefnin verða
bjórbað 67, hótel
67, eða bara pizza
67 skal ósagt látið en
ljóst er að 67 verður
í nafninu.
LÍF&STARF
Handverksbrugghúsin á Íslandi:
Nyrst en ekki síðast
Í undanförnum tölublöðum Bændablaðsins hafa birst pistlar um íslensk
brugghús. Rétt er að benda á að athugasemdum má gjarnan koma á
framfæri við greinarhöfunda ef einhverjar eru. Einhver bið varð á á pistlum
vegna sumarleyfa en hér heldur röðin áfram og nú er komið að Segli 67.
Segull 67 er staðsett á Siglufirði en talan 67 er samofin sögu fjölskyldu stofnandans. Mynd / Aðsend
Marteinn Brynjólfur Haraldsson tekur við Bláskelinni, viður-
kenningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu fyrir
framúrskarandi plastlausa lausn. Mynd / Umhverfisráðuneytið
Höskuldur
og Stefán
hoskuldur@bondi.is
Bruni í húsi brugghússins 2017. Eldurinn gerði sitt besta til að leggja brugghúsið í rúst en það bjargaðist á síðustu stundu. Í kjölfarið
hins vegar sköpuðust ýmis tækifæri til að stækka brugghúsið lengra inn í gamla frystihúsið og rými til að taka á móti hópum.