Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023 Hugmynd kviknaði í samkvæmi nokkurra kvenna innan Brokkkórsins í desember árið 2016 að stofna félagsskap kvenna sem ætti stóðhestsefni. Úr varð hestakvennafélagið Djásnin sem telur í dag hátt í 80 aðildarfélaga. Tildrögin voru þau að tarot- spil voru lögð til að ráða í hvaða stóðhestur væri álitlegur til ræktunar sumarið 2017. Spádómurinn fól í sér áskorun að hugsa út fyrir rammann því framtíðin bæri í skauti sér skemmtilegar stundir í góðum félagsskap, ferðalög, hindranir til að sigrast á og álitlegan veraldlegan feng. Skemmtilegar umræður urðu í kjölfarið og var bent á að tími væri til kominn að konur létu meira að sér kveða í heimi ræktunar á íslenska hestinum og almenna eflingu kvenna á því sviði. Þær tólf konur sem staddar voru á þeirri stundu í samkvæminu ákváðu þar með að taka málin í sínar hendur og stofna hestakvennafélag um eign á stóðhestum og hefja leit að stóðhestsefni sem bæði í gamni og alvöru gæti uppfyllt þá framtíðarsýn sem tarot-lögnin gaf fyrirheit um. Sterkar ættir skilyrði Lagt var upp með að velja hest með sterkar ættir, faðirinn skyldi vera nokkuð hátt í umræðu þess tíma og móðirin með góðan hæfileikadóm, fyrstu verðlauna foreldrar skilyrði. Vel gekk í kjölfarið að lesa Worldfeng sundur og saman, finna þrjá álitlega fola á fyrsta vetri, rjúka norður í land að skoða þá, velja þann besta og kanna svo áhuga hjá vinkonum að kaupa hlut í viðkomandi hesti. Úr varð að ræktunar- og gleðifélagið Djásnin var formlega stofnað 2. desember 2016, eingöngu ætlað konum, og er fjöldi félaga í dag um 70–80 konur. Gleðin er í fyrirrúmi hjá félagskonum en ákveðum reglum þarf þó að lúta er viðkemur stofnun félaga hjá yfirvöldum. Lög og reglur félagsins gerðu í upphafi ráð fyrir að ef upp kæmi ágreiningur yrðu lögð tarotspil til að leysa hann. Fyrirtækjaskrá gat ekki samþykkt slík lög og urðu því til að auki reglur félagsins og lögin sniðin með hefðbundnum hætti. Eingöngu ætlað konum Til að hljóta inngöngu í félagið þarf viðkomandi að uppfylla tvö skilyrði; að vera kvenkyns og eiga hlut í stóðhesti í eigu félagsins. Margrét Dögg Halldórsdóttir er ein þeirra sem kom að stofnun félagsins og segir að aðalmarkmið félagsskaparins sé að hafa gaman og efla þátttöku kvenna í hestamennskunni. „Markmiðið er að vera í góðum félagsskap kvenna og efla konur í alls konar hestamennsku. Við gerum ýmislegt saman, við förum t.d. í árlegar heimsóknir á hrossaræktarbú, fjölmennum að skoða folana okkar sem við köllum „Djásnin okkar“, þar sem þeir eru í þjálfun eða uppeldi hverju sinni, og höfum staðið fyrir sýnikennslu og fyrirlestrum, bæði fyrir okkur og aðra. Við búum okkur til merktan fatnað og meira að segja fengum við gerðar grímur með lógóinu okkar þegar Covid-faraldurinn geisaði, skemmtilegt verkefni unnið með nemendum í Tækniskólanum. Svo erum við flestar nokkuð söng- elskar og sumar jafnvel hagyrtar,“ segir Margrét og bætir hlæjandi við; „Það fer býsna vel saman og er aldrei leiðinlegt.“ Upplitsdjarfur og litfagur Fyrsti hesturinn sem félagið keypti var Hraunar frá Sauðárkróki, undan Skýr frá Skálakoti og Urði frá Sauðárkróki, úr ræktun Guðmundar Sveinssonar og Auðar Steingrímsdóttur á Sauðárkróki. Upplitsdjarfur og litfagur foli sem heillaði nýju eigendur sína með einstakri geðprýði. Hraunar er fæddur 2016 og var keyptur á vordögum 2017. Það standa sterkar ættir á bak við Hraunar frá Sauðárkróki og mörg nafntoguð hross koma þar fyrir. Urður, móðir hans, er undan Óði frá Brún og Orradótturinni Lyftingu frá Skefilsstöðum. Undan Hraunari eru fædd 22 afkvæmi og og er farið að temja 2019 árganginn og strax ljóst að margir kostir eru að erfast frá Hraunari, ekki hvað síst einstök geðprýði. Nýr og spennandi hestur Ljóst var að tilgangur félagsins væri ekki að eiga sína hesta til lengri tíma svo fljótlega var farið að leita að næsta hesti, láta dæmið rúlla þannig að þegar einn yrði fulltaminn og sýndur væri annar að byrja sín fystu skref í tamningu. Því var enn farið að skoða gagnagrunninn og skanna kynbótasýningar. Fest voru kaup á öðrum hesti og kemur sá úr ræktun þeirra Árna Björns Pálssonar og Sylvíu Sigurbjörnsdóttur sem þau kenna við Hrafnshól. Hrafnar frá Hrafnshóli er fæddur 2019 og faðir hans er Fenrir frá Feti sem er undan Loka frá Selfossi og Fljóð frá Feti. Móðir Hrafnars er Vissa frá Valstrýtu sem er undan Grun frá Oddhóli og Heklu frá Kálfholti. Báðir foreldrar eru því undan landsmótssigurvegurum, Grunur vann tölt á landsmóti 2006 og Loki vann B-flokk á landsmóti 2014. Á bak við Hrafnar eru sterk töltgen, báðir foreldrar eru með 9,0 fyrir tölt, í beinan karllegg eru fimm ættliðir af hestum með 9 eða 9,5 fyrir tölt og í öllum ættlínum eru háar tölteinkunnir í röðum. LÍF&STARF Djásnahópurinn á ferð í Skagafirði til að meðal annars líta á Hraunar sem var í þjálfun hjá Líneyju Maríu Hjálmarsdóttur á Tunguhálsi II. Myndir / Djásnin Hrossarækt: Ræktunar- og gleðifélag hestakvenna Þórdís Anna Gylfadóttir thordisannag@gmail.com Hraunar frá Sauðárkróki, knapi Líney María Hjálmarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.