Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 52

Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023 Seljavallalaug 100 ára Það var svo árið 1922 að Hjörleifur Jónsson í Skarðshlíð, sem var oddviti sveitarinnar, símaði til Björns J. Andréssonar frá Berjaneskoti, sem var í Vestmannaeyjum og bað hann að fara á námskeið, sem norskur maður var með í Reykjavík. Þar var kennt sund og fleiri íþróttir. Björn var alveg hissa en lofaði að fara. Þegar hann kom heim fór hann að athuga hvort ekki væri hægt að búa til laug inni í Laugárrgili. Hann skoðaði aðstæður og leist vel á svo hann fór til Ólafs Pálssonar á Þorvaldseyri. Ólafur sagði að þetta væri ekki mikið mál. Björn fór á alla bæi og safnaði liði og þeir hlóðu laug úr torfi og grjóti sem var ekki góð. Björn kenndi þeim svo sund sem hjálpuðu við hleðsluna. Sundkennslan tók viku og það voru launin fyrir vinnuna við byggingu hlöðnu laugarinnar. Menn komu sér saman um að byggja steypta laug og hófust handa við fjársöfnun. Þeir óskuðu eftir styrk úr ríkissjóði, sem var hafnað. Sýslusjóður gat ekki hjálpað en þeir voru búnir að safna 740 kr. og sömdu við Hallgrím Benediktsson um að hann seldi þeim sement. Sementið kom svo vorið eftir til Vestmannaeyja. Það var flutt upp í land eftir vertíðina, sem endaði 11. maí og hófst þá verkið. Laugin var tilbúin fyrir slátt. Aðeins einn maður kunni að blanda steypuna, það var Björn Guðmundsson frá Gíslakoti. Þeir voru jafn gamlir og vinir, Björn J. Andrésson og Börn Guðmundsson. Björn Guðmundsson stjórnaði vinnunni og Björn J. Andrésson sá um að hafa alltaf nægan mannskap. Björn hóf námskeið í sundi og tóku 25 manns þátt í fyrsta námskeiðinu og gistu í tjöldum. Hann kenndi fjölda barna sund í lauginni, bæði úr Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu. Árið 1927 varð sundkennsla í lauginni hluti af skyldunámi. Laugin er 25 metrar á lengd og 10 metrar á breidd og var stærsta sundlaug landsins til ársins 1936. Þegar höfundur var að alast upp undir Eyjafjöllum þá var laugin með einhvern ljóma og þótti nánast heilagur staður. Alla, sem komu í heimsókn, var farið með í Seljavallalaug. Alltaf var vel hugsað um hana. Það var svo árið 1995, sem ég fór inn í Laug sem kallað er og þá blasti við að hún var hálftóm, stórt gat á henni og þar rann vatnið út. Haft var samband við formann Ungmennafélagsins og fékkst samþykki fyrir að lagfæra laugina. Hringt var í fjölda manns og kom 41. Þann 24. júní 1995 hófust lagfæringar, sem stóðu í 10 ár. Við, brottfluttir Eyfellingar, fórum alltaf fyrstu helgina í maí og vann fjöldi manns þar að og er listi með nöfnum þeirra varðveittur. Lilja Sigurgeirsdóttir í Drangshlíðardal sendi okkur ævinlega góðan mat upp í Laug. Á 75 ára afmæli Laugarinnar buðum við upp á stórveislu í Fossbúð og Stöð 2 sendi fréttamann til að gera góða mynd af því tilefni. Síðan endurtókum við þetta á 80 ára afmælinu, buðum gestum og þá voru lauginni færðar gjafir og ræður haldnar. Árið 2011, ári eftir Eyjafjallagosið, var Laugin full af ösku og þá var ekki fagurt yfir að líta. Þá hafði Dofri Eysteinsson hjá Suðurverki samband og bauð okkur aðstoð og sendi sína stærstu vél og sinn besta mann, Sigurð Sigmundsson, sem mokaði 1180 tonnum upp úr Lauginni. Honum til aðstoðar komu menn frá Vík í Mýrdal með minni vél sem var hentug niðri í Lauginni og fjöldi sjálfboðaliða kom einnig. Við Jón Á. Gissurarson fórum víða til að tala máli Seljavallalaugar. Steingrímur Hermannsson, þáverandi ráðherra, bauð okkur í morgunverð heima hjá sér til að hafa næði til að ræða málin. Rétt fyrir andlát Jóns fékk ég boð frá honum um að koma til hans, hann þyrfti að tala við mig. Þá bað hann mig að hafa samband við Siv Friðleifsdóttur, þáverandi umhverfisráðherra, og óska eftir friðlýsingu og það gerði ég. Þann 6. júlí 2006 lýsti hún Seljavallalaug friðaða. Laugin og nánasta umhverfi hennar er í dag í umsjá Minjastofnunar Íslands. Ungmennafélagið Eyfellingur ásamt brottfluttum Eyfellingum og afkomendum Björns héldu í sumar upp á 100 ára afmæli Seljavallalaugar, sem byggð var 1923. Laugin er ein af elstu laugum landsins. Afmælishátíðin var haldin þann 12. ágúst sl. Fjölmenni, eða um 120 manns, mætti á hátíðina, sem hófst við Seljavallalaug. Það var ánægjulegt að sjá hversu margir afkomendur Björns mættu á hátíðina. Einnig mætti stór hópur fólks sem lærði sund í lauginni á sínum tíma. Frá Seljavallalaug var haldið í veglega grillveislu í félagsheimilinu Fossbúð, sem kvenfélagið Fjallkonan sá um af miklum myndarskap. Fyrir hönd hópsins Vinir Seljavallalaugar, Páll A. Andrésson frá Berjanesi. Upphafið að sundkennslu og byggingu Seljavallalaugar var sennilega skelfilegt sjóslys rétt við Vestmannaeyjar. Þar fórust 27 manns með skipi, sem Sigurður Halldórsson í Skarðshlíð átti og sonur hans var skipstjóri á. Slysið varð 30. apríl 1901 og þar fórust 27 manns, mörg á aldrinum 14 til 20 ára. Urðu þá 27 börn undir Austur-Eyjafjöllum föðurlaus. Aðeins einn maður bjargaðist. Fjöldi manns horfði á þegar bátnum hvolfdi rétt upp við land. Enginn um borð kunni að synda. Páll A. Andrésson Það blasir við um þessar mundir að íslenskur landbúnaður stendur á krossgötum, upp er komin sú staða sem gerir það að verkum að lítil endurnýjun á sér stað í landbúnaði, meðalaldur íslenskra bænda er 57 ár og er greinin og stéttin að eldast töluvert. Skortur er á aðgerðum stjórnvalda í þessum efnum til að tryggja rausnarlegan stuðning fyrir nýliðun í landbúnaði og stuðla að fæðuöryggi íslensku þjóðarinnar til framtíðar. Stórauka þarf framlög til bænda í gegnum búvörusamninga og hækka strax tafarlaust tolla á innflutt kjöt sem gengur kaupum og sölu á frjálsum markaði á verði sem íslenskir bændur geta ekki keppt við. Ráðast þarf tafarlaust í aðgerðir til að stuðla að nýliðun í landbúnaðinum með því að markaðssetja nám í landbúnaðartengdum fræðum og veita fólki stuðning við að taka við af foreldrum sínum. Einnig þarf að styðja við þá sem vilja láta drauminn rætast og hefja búskap. Það er ekki bara fullnægjandi að hafa nýliðunarstyrk, heldur verðum við líka að tryggja aðra hluti. Eins og við sjáum í hlutdeildarlánunum. Þessar ívilnanir þurfum við að innleiða í landbúnaðar- kerfinu til að aðstoða ungt fólk við að koma sér upp búi og húsi og aðstöðu. Við þurfum að koma með þessar lausnir með skjótum hætti, sé það meiningin að tryggja hér fæðuöryggi og auka framleiðslu á landbúnaðarvörum. Bændur hafa fundið rækilega fyrir hækkun á aðföngum, eins og fóðri, plasti og áburði. Ástæðan er sú að hráefni til áburðarframleiðslu eru meðal annars í Rússlandi. Einnig er vaxtakostnaður og verðbætur að sliga íslenska bændur, sem hafa fjárfest fyrir gríðarlegar fjárhæðir í tækjakost sínum. Sauðfé í landinu er nú orðið færra en mannfólk vegna þess að bændur bregða búi og enginn tekur við, ætlum við að halda áfram á þessari braut inn í framtíðina og glata þannig sjálfstæðri matvælaframleiðslu og um leið fæðuöryggi íslensku þjóðarinnar? Anton Guðmundsson, oddviti framsóknarflokksins í Suðurnesjabæ. LESENDARÝNI Stjórnvöld þurfa að bregðast strax við Anton Guðmundsson. Fjölmenn afmælishátíð var haldin í ágúst og var ánægjulegt hvað margir afkomendur Björns J. Andréssonar mættu. Myndir / Einkasafn „Þegar höfundur var að alast upp undir Eyjafjöllum þá var laugin með einhvern ljóma og þótti nánast heilagur staður.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.