Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023 Afmælismálþing Brothættra byggða var haldið á Raufarhöfn á dögunum í tilefni þess að nú er rúmur áratugur liðinn frá því að verkefnið hóf þar göngu sína. Undanfari þess var að byggð Raufar- hafnar stóð afar höllum fæti og talið var að að öllu óbreyttu legðist hún af innan fárra ára. Brothættar byggðir er byggða- þróunarverkefni Byggðastofnunar sem hófst árið 2012 með það að markmiði að efla framtíðarmöguleika byggða sem meðal annars glíma við mikla fólksfækkun og skekkta aldursdreifingu. Tekið er til skoðana íbúa á framtíðarmöguleikum heima- byggðar sinnar og úrlausnir fengnar fram í samvinnu við viðkomandi sveitarfélag, landshlutasamtök, ríkisvaldið auk annarra. Settar eru verkefnisstjórnir fyrir hvert byggðarlag þar sem sitja fulltrúar Byggðastofnunar, fulltrúar sveitar- félagsins, landshlutasamtaka og loks tveir fulltrúar íbúa. Hugmyndin var frá upphafi sú að með verkefninu á Raufarhöfn yrði til aðferð eða verklag sem hægt væri að nota á fleiri stöðum sem stæðu frammi fyrir svipuðum vanda. Nauðsyn verkefnastjóra Á afmælismálþinginu tóku þau til máls Helga Harðardóttir og Kristján Þ. Halldórsson hjá Byggðastofnun, en þau leiða verkefnið. Kristján segir aðdragandann að því hafa kviknað í kjölfar íbúaþings Raufarhafnarbúa árið 2013, sem hefur verið haldið árlega síðan. Á þinginu vöknuðu margs konar hugmyndir um hvað fólk taldi að betur mætti fara eða hvað mætti taka sér fyrir hendur og var mikið rætt og forgangsraðað. „Ég var svo fenginn til þess að sinna þessu, en eitt af forgangsmálum Raufarhafnar var að fá verkefnisstjóra. Slíkt embætti er afar brýnt, vegna þess hve miklu máli skiptir að einhver einn sé ábyrgur fyrir að leiða og halda utan um þau mál sem eru í loftinu. Með minni viðveru á Raufarhöfn gátu íbúarnir þess vegna haldið áfram að koma með á borðið hitamál og ræða möguleika á úrlausn þeirra.“ Aðspurður segir hann að þreifað hafi verið á flestum hugmyndum sem bárust, með vinnslu í huga, en þó standi eitt verkefni Raufarhafnar sérstaklega upp úr. Var það ósk íbúa um að fá aðgang að aflaheimildum. „Staðurinn hafði nánast hrunið fyrir þær sakir að íbúar misstu aflaheimildir og tvo stærstu vinnustaðina á einu bretti,“ segir Kristján. Á vefsíðu Byggðastofnunar kemur fram að þann 11. desember 2013, á grundvelli þessa verkefnis, hafi samkomulag verið undirritað milli Byggðastofnunar og hagsmuna- aðila í sjávarútvegi um nýtingu 400 þorskígildistonna á Raufarhöfn til 3 ára, með möguleika á framlengingu. Aðilar að samkomulaginu voru m.a. fiskvinnsla GPG Seafood á Raufarhöfn, en segir Kristján þorsk- ígildistonnin hafa nýst mjög vel og tryggt þar tiltekna starfsemi hjá fiskvinnslu GPG sem hefur verið burðarás í atvinnulífinu síðan. „Með samkomulaginu náðist að festa í sessi þennan vinnustað sem stóð höllum fæti fyrir og skiptir íbúana gríðarlega miklu máli. Fyrirtækið er öflugt og hefur m.a. starfsemi á Húsavík og Bakkafirði í gegnum aflamarkssamning þar.“ Umgjörð verkefna Í dag hafa verkefnastyrkir á vegum Brothættra byggða til þróunar- verkefna og annarra samfélags- eflandi verkefna verið veittir í alls fjórtán byggðalög. Helga Harðardóttir, sem hefur starfað innan verkefnisins síðast- liðin þrjú ár, nýtur þess að koma inn í fastmótað ferli, en árið 2014 fór fram bæði innra og ytra mat á verkefninu sem Ernst & Young gerði fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.Verkefnis- lýsing og viðaukar hennar birtust á heimasíðu Byggðastofnunar vorið 2016 og var jafnframt kynnt á fundi með starfsfólki ráðuneytisins og fulltrúum stýrihóps Stjórnarráðsins. „Þar er litið til allrar umgjarðar verkefnisins, og unnið innan hennar. Þó teljum við okkur auðvitað sveigjanleg og opin fyrir hugmyndum – en vinnum á þeim grunni sem verkefnislýsingin býður. Jafnframt er rétt að geta þess að ferli hvers verkefnis fyrir sig hefst í raun áður en íbúaþing eru haldin í byggðalögum. Greiningarvinna, mótun verkefnastjórnar og þess háttar er unnið áður og almenn þátttaka íbúa því ekki fyrr en nokkur grunnvinna hefur verið unnin. Ræða þarf við sveitarfélag og byggðarlag sem er að koma inn, auglýsa eftir verkefnastjóra og þess háttar.“ Hún bætir við að sannreynt sé að þar sem íbúarnir taki virkan þátt gangi verkefnin vel og enn sem komið er hafi íbúar í hvívetna komið inn af fullum krafti. Samtakamátturinn sterkur Kristján tekur undir orð Helgu, mikill áhugi og virk þátttaka sé samnefnari á landsvísu. Væntingar þurfi þó að vera í hófi er kemur að framgangi verkefna, enda margt sem ræður yfir helstu breytum í hverju byggðarlagi. „Verkefni Brothættra byggða hefur til að mynda hvorki boðvald yfir stofnunum ríkisins né yfir sveitar- félögunum, heldur hvílir árangurinn á víðtæku samstarfi. Aðkoma lands- hlutasamtaka og sveitarfélaga er mjög mikilvæg, þá m.a. með setu í verkefna- stjórn, en að auki hafa landshluta- samtökin tekið að sér það stóra hlutverk að ráða verkefnastjórana til viðbótar við að annast umsýslu með styrkjamálum og slíku. Þannig að það samstarf er mjög veigamikið í verkefnunum,“ segir Kristján. „Auðvitað er jákvætt ef um- sækjendur hafa taugar eða tengsl til byggðarlagsins sem um ræðir, en annars er allur gangur á því. Að jafnaði er það þó áherslumál að þarna sé einhver sem tengist svæðinu,“ segir Helga. Þau sammælast um að sterkur samtakamáttur sé einkennandi fyrir þau byggðalög sem taka þátt, allir séu mikilvægir og beri margir fleiri hatta en einn. Gleðilegt sé hve vel var mætt á málþingið, en rúmlega 80 manns sátu viðburðinn auk þess sem töluverður fjöldi horfði á streymi. „Áhugi fólks á málþinginu var mikill, hópurinn fjölbreyttur og mættu fulltrúar alls kyns stofnana og samtaka auk einstaklinga. Við vorum mjög sátt með áhugann og það hvetur okkur enn frekar til að sinna og taka þátt í þessu verkefni,“ segir Kristján en streymi málþingsins má enn finna á heimasíðu Byggðastofnunar. Verkefnið Brothættar byggðir hefur verið fest í sessi sem aðgerð í stefnumótandi byggðaáætlun 2018- 2024, en stjórnvöld hafa tekið þessari aðferðafræði Byggðastofnunar af áhuga og jákvæðni. VARAHLUTIR Í KERRUR Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 517 5000 | stalogstansar.is st’ al og Bílabúðin Stál og stansar Í DEIGLUNNI Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is Brothættar byggðir: Litið yfir farinn veg Helga Harðardóttir og Kristján Þórhallur Halldórsson leiða Brothættar byggðir, verkefni Byggðastofnunar, en nýverið var afmælismálþing þess haldið í Raufarhöfn. Myndir / Aðsendar Sjávarþorpið Raufarhöfn á austanverðri Melrakkasléttu er eitt nyrsta og fegursta kauptún landsins en það dregur nafn sitt af raufinni sem aðskilur Höfðann og Hólmann. Ver Höfðinn náttúrulega höfn Raufarhafnar á meðan Hólminn, stakur klettahöfði, skilur sund þeirra á milli. Mynd / Wikipedia
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.