Bændablaðið - 19.10.2023, Page 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Afmælismálþing Brothættra
byggða var haldið á Raufarhöfn
á dögunum í tilefni þess að nú
er rúmur áratugur liðinn frá því
að verkefnið hóf þar göngu sína.
Undanfari þess var að byggð Raufar-
hafnar stóð afar höllum fæti og talið
var að að öllu óbreyttu legðist hún
af innan fárra ára.
Brothættar byggðir er byggða-
þróunarverkefni Byggðastofnunar
sem hófst árið 2012 með það að
markmiði að efla framtíðarmöguleika
byggða sem meðal annars glíma
við mikla fólksfækkun og skekkta
aldursdreifingu. Tekið er til skoðana
íbúa á framtíðarmöguleikum heima-
byggðar sinnar og úrlausnir fengnar
fram í samvinnu við viðkomandi
sveitarfélag, landshlutasamtök,
ríkisvaldið auk annarra. Settar
eru verkefnisstjórnir fyrir hvert
byggðarlag þar sem sitja fulltrúar
Byggðastofnunar, fulltrúar sveitar-
félagsins, landshlutasamtaka og loks
tveir fulltrúar íbúa.
Hugmyndin var frá upphafi sú að
með verkefninu á Raufarhöfn yrði til
aðferð eða verklag sem hægt væri
að nota á fleiri stöðum sem stæðu
frammi fyrir svipuðum vanda.
Nauðsyn verkefnastjóra
Á afmælismálþinginu tóku þau til
máls Helga Harðardóttir og Kristján
Þ. Halldórsson hjá Byggðastofnun,
en þau leiða verkefnið.
Kristján segir aðdragandann að
því hafa kviknað í kjölfar íbúaþings
Raufarhafnarbúa árið 2013, sem
hefur verið haldið árlega síðan.
Á þinginu vöknuðu margs konar
hugmyndir um hvað fólk taldi að
betur mætti fara eða hvað mætti
taka sér fyrir hendur og var mikið
rætt og forgangsraðað. „Ég var svo
fenginn til þess að sinna þessu, en eitt
af forgangsmálum Raufarhafnar var
að fá verkefnisstjóra. Slíkt embætti
er afar brýnt, vegna þess hve miklu
máli skiptir að einhver einn sé
ábyrgur fyrir að leiða og halda utan
um þau mál sem eru í loftinu. Með
minni viðveru á Raufarhöfn gátu
íbúarnir þess vegna haldið áfram að
koma með á borðið hitamál og ræða
möguleika á úrlausn þeirra.“
Aðspurður segir hann að þreifað
hafi verið á flestum hugmyndum
sem bárust, með vinnslu í huga, en
þó standi eitt verkefni Raufarhafnar
sérstaklega upp úr. Var það ósk íbúa
um að fá aðgang að aflaheimildum.
„Staðurinn hafði nánast hrunið fyrir
þær sakir að íbúar misstu aflaheimildir
og tvo stærstu vinnustaðina á einu
bretti,“ segir Kristján.
Á vefsíðu Byggðastofnunar
kemur fram að þann 11. desember
2013, á grundvelli þessa verkefnis,
hafi samkomulag verið undirritað
milli Byggðastofnunar og hagsmuna-
aðila í sjávarútvegi um nýtingu 400
þorskígildistonna á Raufarhöfn til 3
ára, með möguleika á framlengingu.
Aðilar að samkomulaginu voru
m.a. fiskvinnsla GPG Seafood á
Raufarhöfn, en segir Kristján þorsk-
ígildistonnin hafa nýst mjög vel
og tryggt þar tiltekna starfsemi hjá
fiskvinnslu GPG sem hefur verið
burðarás í atvinnulífinu síðan.
„Með samkomulaginu náðist að
festa í sessi þennan vinnustað sem
stóð höllum fæti fyrir og skiptir íbúana
gríðarlega miklu máli. Fyrirtækið
er öflugt og hefur m.a. starfsemi á
Húsavík og Bakkafirði í gegnum
aflamarkssamning þar.“
Umgjörð verkefna
Í dag hafa verkefnastyrkir á vegum
Brothættra byggða til þróunar-
verkefna og annarra samfélags-
eflandi verkefna verið veittir í alls
fjórtán byggðalög.
Helga Harðardóttir, sem hefur
starfað innan verkefnisins síðast-
liðin þrjú ár, nýtur þess að koma
inn í fastmótað ferli, en árið
2014 fór fram bæði innra og ytra
mat á verkefninu sem Ernst &
Young gerði fyrir atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið.Verkefnis-
lýsing og viðaukar hennar birtust á
heimasíðu Byggðastofnunar vorið
2016 og var jafnframt kynnt á fundi
með starfsfólki ráðuneytisins og
fulltrúum stýrihóps Stjórnarráðsins.
„Þar er litið til allrar umgjarðar
verkefnisins, og unnið innan hennar. Þó
teljum við okkur auðvitað sveigjanleg
og opin fyrir hugmyndum – en vinnum
á þeim grunni sem verkefnislýsingin
býður. Jafnframt er rétt að geta þess
að ferli hvers verkefnis fyrir sig hefst
í raun áður en íbúaþing eru haldin
í byggðalögum. Greiningarvinna,
mótun verkefnastjórnar og þess háttar
er unnið áður og almenn þátttaka íbúa
því ekki fyrr en nokkur grunnvinna
hefur verið unnin. Ræða þarf við
sveitarfélag og byggðarlag sem er að
koma inn, auglýsa eftir verkefnastjóra
og þess háttar.“
Hún bætir við að sannreynt sé að
þar sem íbúarnir taki virkan þátt gangi
verkefnin vel og enn sem komið er
hafi íbúar í hvívetna komið inn af
fullum krafti.
Samtakamátturinn sterkur
Kristján tekur undir orð Helgu, mikill
áhugi og virk þátttaka sé samnefnari á
landsvísu. Væntingar þurfi þó að vera í
hófi er kemur að framgangi verkefna,
enda margt sem ræður yfir helstu
breytum í hverju byggðarlagi.
„Verkefni Brothættra byggða
hefur til að mynda hvorki boðvald
yfir stofnunum ríkisins né yfir sveitar-
félögunum, heldur hvílir árangurinn
á víðtæku samstarfi. Aðkoma lands-
hlutasamtaka og sveitarfélaga er mjög
mikilvæg, þá m.a. með setu í verkefna-
stjórn, en að auki hafa landshluta-
samtökin tekið að sér það stóra
hlutverk að ráða verkefnastjórana til
viðbótar við að annast umsýslu með
styrkjamálum og slíku. Þannig að
það samstarf er mjög veigamikið í
verkefnunum,“ segir Kristján.
„Auðvitað er jákvætt ef um-
sækjendur hafa taugar eða tengsl
til byggðarlagsins sem um ræðir,
en annars er allur gangur á því. Að
jafnaði er það þó áherslumál að þarna
sé einhver sem tengist svæðinu,“
segir Helga.
Þau sammælast um að sterkur
samtakamáttur sé einkennandi fyrir
þau byggðalög sem taka þátt, allir
séu mikilvægir og beri margir fleiri
hatta en einn. Gleðilegt sé hve vel
var mætt á málþingið, en rúmlega
80 manns sátu viðburðinn auk
þess sem töluverður fjöldi horfði á
streymi. „Áhugi fólks á málþinginu
var mikill, hópurinn fjölbreyttur og
mættu fulltrúar alls kyns stofnana og
samtaka auk einstaklinga. Við vorum
mjög sátt með áhugann og það hvetur
okkur enn frekar til að sinna og taka
þátt í þessu verkefni,“ segir Kristján
en streymi málþingsins má enn finna
á heimasíðu Byggðastofnunar.
Verkefnið Brothættar byggðir
hefur verið fest í sessi sem aðgerð í
stefnumótandi byggðaáætlun 2018-
2024, en stjórnvöld hafa tekið þessari
aðferðafræði Byggðastofnunar af
áhuga og jákvæðni.
VARAHLUTIR Í
KERRUR
Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 517 5000 | stalogstansar.is
st’ al og
Bílabúðin
Stál og stansar
Í DEIGLUNNI
Sigrún Pétursdóttir
sigrunpeturs@bondi.is
Brothættar byggðir:
Litið yfir farinn veg
Helga Harðardóttir og Kristján Þórhallur Halldórsson leiða Brothættar byggðir, verkefni Byggðastofnunar, en
nýverið var afmælismálþing þess haldið í Raufarhöfn. Myndir / Aðsendar
Sjávarþorpið Raufarhöfn á austanverðri Melrakkasléttu er eitt nyrsta og fegursta kauptún landsins en það dregur nafn sitt af raufinni sem aðskilur Höfðann
og Hólmann. Ver Höfðinn náttúrulega höfn Raufarhafnar á meðan Hólminn, stakur klettahöfði, skilur sund þeirra á milli. Mynd / Wikipedia