Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023 Fjárræktarfélagið Litur: Sauðalitasýning Sunnudaginn fyrsta þessa mánaðar fór fram árleg sauðalitasýning Fjárræktarfélagsins Litar í Holta- og Landsveit, sem nú er hluti af Rangárþingi ytra. Sýningin var haldin í Árbæjarhjáleigu og var fjölsótt að vanda. Hún tókst hið besta undir stjórn formanns félagsins, Guðlaugs Kristmundssonar á Lækjarbotnum, og var rekin áfram af dugnaði kynnisins, Kristins Guðnasonar í Árbæjarhjáleigu. Félag þetta eiga bændur og annað sauðalitaáhugafólk í uppsveitum Rangárþings með sér og hafa átt í meira en 20 ár. Félagið var stofnað 12.12.2002 að undirlagi Guðlaugs í Lækjabotnum og taldi í upphafi um 25 félaga. Félagið hefur haldið sýningar síðan árið 2005, en þá var fyrsta sýningin haldin í Flagbjarnarholti og dómari var Jón Sigurðsson frá Úthlíð. Markmið félagsins var að bæta og efla ræktun á mislitu fé og skemmta sér yfir umræðu um fé og fjárliti. Þetta hefur fyrir löngu tekist svo vel að mislitt fé á þessum slóðum er nú enginn eftirbátur þegar kemur að samanburði við annað fé og litaauðgin er ótrúleg. Þarna má finna alla liti og litaafbrigði og alls kyns litmynstur sem þekkjast í íslenska sauðfjárstofninum, nema hinn nýtilkomna úlfgráa lit sem var að uppgötvast austur á Hlíð í Lóni. Á sýningunni er féð dæmt fyrir bæði hefðbundin fjárgæði, eins og á hinum vinsælu og frægu hrútasýningum, og eins fyrir feldinn og litinn. Dómar fara fram í þrem flokkum. Fyrst eru dæmdar lambgimbrar, því næst lambhrútar og loks ær með afkvæmum. Þrjátíu og níu gimbrar mættu til dóms, átján hrútar og eitthvað innan við 10 ær með afkvæmum. Vart þarf að taka fram að eðli málsins samkvæmt gætti þarna allra lita nema hvíts. Dómarar voru Lárus Birgisson, ráðunautur í Borgarnesi, og Vignir Siggeirsson í Hemlu og ritari þeirra var Lovísa Herborg Ragnarsdóttir í Hemlu og fórust þeim störfin fagmannlega. Í mati á lambhrútum og gimbrum vegur litur 50% á móti skrokkgerð en í tilviki áa með afkvæmum vegur liturinn aðeins meira, eða 60%. Auk hinnar almennu sýningar og dóma voru sett sér í dilk allmörg lömb í skemmtilegum eða athyglisverðum litum og litmynstrum og áhorfendum gefinn kostur á að velja litfegursta lambið. Auk þess voru sýnd nokkur feldlömb. Feldfé kallast fé með ullarafbrigði sem er sérlega mjúkt og hrokkið og er ræktað á allmörgum bæjum sérstaklega vegna þessara eiginleika. Af feldfé er bæði notuð ull og gærur. Félag þetta er ekki fjárglæfrafélag þó það snúist um fé og félagsgjöld eru engin. Árlegri fjárþörf félagsins er haldið uppi með því fé sem fæst fyrir efnilega og fallega lífgimbur sem einhver félagsmanna leggur til og er boðin upp í lok samkomunnar. Páll Imsland, jarðfræðingur & áhugamaður um íslenska húsdýrastofna. Verðlaunagimbrarnar, fjórar efstu. Efst stóð morgrá golsubotnótt gimbur frá Skarði, þá svört gimbur frá Skarði og í þriðja sæti var grá gimbur frá Árbæ og loks grábaugótt gimbur frá Austvaðsholti. Þau sem halda í eru talið frá vinstri: Jens í Stóra-Klofa, Anna Sigríður og Berglind í Skarði, Guðmundur í Árbæ og Viktor í Selási. Páll Imsland. Verðlaunahrútarnir, þrír efstu. Efstur stóð svartbotnóttur lamb- hrútur frá Austvaðsholti, þá svartgolsóttur frá Árbæ og loks kolsvartur frá Köldukinn. Þau sem halda í eru: Viktor í Selási, Ólafur í Árbæ og Valería á Hellu. Litfegurstu lömbin samkvæmt kjöri sýningargesta, þrjú efstu. Efst stóð grá feldfjárgimbur frá Köldukinn, þá gráflekkótt baugótt gimbur frá Selási og loks grábotnótt gimbur frá Skarði. Þau sem halda í eru: Hákon í Selási, Lýsa í Köldukinn og Sumarliði í Skarði. Ær með afkvæmum frá Húsagarði og gamalreynt fólk við sýningar, Markús, Sveinn Bjarki og Dýrfinna í Húsagarði. Myndir / Páll Imsland Kristinn í Árbæjarhjáleigu, kynnir, og Lárus Birgisson og Vignir Siggeirsson, dómarar sýningarinnar að störfum. Hér sést Mormaga með báðar morgráu golsóttu dætur sínar haustið 2018. HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf LÍF & STARF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.