Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Miðhrauni 6, 210 Garðabæ, s. 544 8900
m@malmsteypa.is malmsteypa.is
M
yn
d
: B
ö
ð
va
r
Le
ó
s
Rör og fittings
Viðgerðarefni
Þorgrímsfótur
Festihulsur
Ídráttarrör
Topphringir
Trjáristar
Drenrör
Brunnkarmar/lok
Sandföng/ristar
Rennustokkar/ristar
Spindillok
Kerfislok
Tengistykki
Húsbrunnar
Kúluristar
Götubrunnar
Tengibrunnar
LANDBÚNAÐUR Í SKÁLDSKAP
Orðsins list kemur að þessu sinni
frá Vilborgu Dagbjartsdóttur.
Vilborg fæddist
á Vestdalseyri við
Seyðisfjörð árið 1930
og lést haustið 2021
í Reykjavík þar sem
hún bjó lengstum. Hún
var kennaramenntuð
og nam einnig
bókasafnsfræði. Hún
starfaði sem kennari
og rithöfundur og
skrifaði mjög mikið
og þýddi fyrir börn.
Hún orti einnig fjölda
ljóða sem hafa birst á
bókum og í blöðum og
tímaritum hérlendis og
erlendis og var með
fyrstu íslensku konum
til að skrifa módernísk
ljóð. Sögur og ljóð
Vilborgar hafa lengi notið mikillar
og almennrar hylli og lifa góðu lífi
meðal ungra og eldri lesenda.
Ljóðasafn frá 2015 hefur að
geyma allar ljóðabækur Vilborgar,
frumsamin ljóð og þýdd og nokkur
áður óbirt ljóð. Á baksíðu safnsins
segir að hún „yrki á frjálsu,
nútímalegu ljóðmáli og kjör og
reynsla kvenna og barna verði
henni oft að yrkisefni“. Stríð, friður,
trú og náttúra eru henni jafnframt
hugleikin.
Vilborg var ein frumkvöðla
Rauðsokkahreyfingarinnar, var lengi
í stjórn Menningar- og friðarsamtaka
íslenskra kvenna og sat m.a. í stjórn
Stéttarfélags íslenskra barnakennara,
Rithöfundafélags Íslands og
Rithöfundasambands Íslands. Hún
var sæmd hinum ýmsu verðlaunum
fyrir ritstörf sín, sem og fálkaorðunni
og heiðursverðlaunum IBBY fyrir
störf í þágu barna. Vilborg var gift
Þorgeiri Þorgeirsyni rithöfundi.
/sá
Nafngift
Hún kom á vordegi
Í glaða sólskini
leiddi pabbi hana
heim túnið
Við fögnuðum henni öll
þar sem hún stóð
í grænkandi hlaðvarpanum
Svo ung
svo falleg
og rauð
Kolla – Rauðkolla
Kusa-kusa-kus!
Hrópuðum við
hvert í kapp við annað
Vildum gefa henni nafn
Þá gekk mamma til hennar
og strauk henni yfir malirnar
lengi og blíðlega
Þögnin varð djúp
Mamma horfði yfir hópinn
geislandi augum
og mælti:
Ekki rauð
heldur gullin
logagyllt
eins og sóley í túni
Sóley skal hún heita
Ástarjátning
Landbúnaðarráð-
herrann laut niður, kyssti
votar granirnar
og hvíslaði blítt:
Yndislegust ert þú enn
Búkolla mín kær
Birtan í kirkjunni
Í litlu sveitakirkjunni
er ekkert skraut
engar myndir
ekki einu sinni altaristafla
heldur ferkantaður gluggi
með einni rúðu
yfir altarinu
Á sumrin innrammar
hann fífilbrekku
um vetur þyrlar skafrenningurinn
kófinu upp á rúðuna
Birtan í kirkjunni
er köld og hrein
eins og guð
Úr Ljóðasafni
Vilborgar Dagbjartsdóttur,
JPV útgáfa, 2015.
„Yndislegust ert þú
enn Búkolla ...“
Vilborg Dagbjartsdóttir.