Bændablaðið - 19.10.2023, Page 43

Bændablaðið - 19.10.2023, Page 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023 Miðhrauni 6, 210 Garðabæ, s. 544 8900 m@malmsteypa.is malmsteypa.is M yn d : B ö ð va r Le ó s Rör og fittings Viðgerðarefni Þorgrímsfótur Festihulsur Ídráttarrör Topphringir Trjáristar Drenrör Brunnkarmar/lok Sandföng/ristar Rennustokkar/ristar Spindillok Kerfislok Tengistykki Húsbrunnar Kúluristar Götubrunnar Tengibrunnar LANDBÚNAÐUR Í SKÁLDSKAP Orðsins list kemur að þessu sinni frá Vilborgu Dagbjartsdóttur. Vilborg fæddist á Vestdalseyri við Seyðisfjörð árið 1930 og lést haustið 2021 í Reykjavík þar sem hún bjó lengstum. Hún var kennaramenntuð og nam einnig bókasafnsfræði. Hún starfaði sem kennari og rithöfundur og skrifaði mjög mikið og þýddi fyrir börn. Hún orti einnig fjölda ljóða sem hafa birst á bókum og í blöðum og tímaritum hérlendis og erlendis og var með fyrstu íslensku konum til að skrifa módernísk ljóð. Sögur og ljóð Vilborgar hafa lengi notið mikillar og almennrar hylli og lifa góðu lífi meðal ungra og eldri lesenda. Ljóðasafn frá 2015 hefur að geyma allar ljóðabækur Vilborgar, frumsamin ljóð og þýdd og nokkur áður óbirt ljóð. Á baksíðu safnsins segir að hún „yrki á frjálsu, nútímalegu ljóðmáli og kjör og reynsla kvenna og barna verði henni oft að yrkisefni“. Stríð, friður, trú og náttúra eru henni jafnframt hugleikin. Vilborg var ein frumkvöðla Rauðsokkahreyfingarinnar, var lengi í stjórn Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna og sat m.a. í stjórn Stéttarfélags íslenskra barnakennara, Rithöfundafélags Íslands og Rithöfundasambands Íslands. Hún var sæmd hinum ýmsu verðlaunum fyrir ritstörf sín, sem og fálkaorðunni og heiðursverðlaunum IBBY fyrir störf í þágu barna. Vilborg var gift Þorgeiri Þorgeirsyni rithöfundi. /sá Nafngift Hún kom á vordegi Í glaða sólskini leiddi pabbi hana heim túnið Við fögnuðum henni öll þar sem hún stóð í grænkandi hlaðvarpanum Svo ung svo falleg og rauð Kolla – Rauðkolla Kusa-kusa-kus! Hrópuðum við hvert í kapp við annað Vildum gefa henni nafn Þá gekk mamma til hennar og strauk henni yfir malirnar lengi og blíðlega Þögnin varð djúp Mamma horfði yfir hópinn geislandi augum og mælti: Ekki rauð heldur gullin logagyllt eins og sóley í túni Sóley skal hún heita Ástarjátning Landbúnaðarráð- herrann laut niður, kyssti votar granirnar og hvíslaði blítt: Yndislegust ert þú enn Búkolla mín kær Birtan í kirkjunni Í litlu sveitakirkjunni er ekkert skraut engar myndir ekki einu sinni altaristafla heldur ferkantaður gluggi með einni rúðu yfir altarinu Á sumrin innrammar hann fífilbrekku um vetur þyrlar skafrenningurinn kófinu upp á rúðuna Birtan í kirkjunni er köld og hrein eins og guð Úr Ljóðasafni Vilborgar Dagbjartsdóttur, JPV útgáfa, 2015. „Yndislegust ert þú enn Búkolla ...“ Vilborg Dagbjartsdóttir.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.