Bændablaðið - 19.10.2023, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Fjárræktarfélagið Litur:
Sauðalitasýning
Sunnudaginn fyrsta þessa mánaðar
fór fram árleg sauðalitasýning
Fjárræktarfélagsins Litar í Holta-
og Landsveit, sem nú er hluti af
Rangárþingi ytra. Sýningin var
haldin í Árbæjarhjáleigu og var
fjölsótt að vanda.
Hún tókst hið besta undir stjórn
formanns félagsins, Guðlaugs
Kristmundssonar á Lækjarbotnum,
og var rekin áfram af dugnaði
kynnisins, Kristins Guðnasonar í
Árbæjarhjáleigu.
Félag þetta eiga bændur og annað
sauðalitaáhugafólk í uppsveitum
Rangárþings með sér og hafa átt í
meira en 20 ár. Félagið var stofnað
12.12.2002 að undirlagi Guðlaugs í
Lækjabotnum og taldi í upphafi um 25
félaga. Félagið hefur haldið sýningar
síðan árið 2005, en þá var fyrsta
sýningin haldin í Flagbjarnarholti
og dómari var Jón Sigurðsson frá
Úthlíð. Markmið félagsins var að
bæta og efla
ræktun á mislitu
fé og skemmta
sér yfir umræðu
um fé og fjárliti.
Þetta hefur fyrir
löngu tekist svo
vel að mislitt fé
á þessum slóðum
er nú enginn
eftirbátur þegar kemur að samanburði
við annað fé og litaauðgin er ótrúleg.
Þarna má finna alla liti og litaafbrigði
og alls kyns litmynstur sem þekkjast
í íslenska sauðfjárstofninum, nema
hinn nýtilkomna úlfgráa lit sem var
að uppgötvast austur á Hlíð í Lóni.
Á sýningunni er féð dæmt
fyrir bæði hefðbundin fjárgæði,
eins og á hinum vinsælu og frægu
hrútasýningum, og eins fyrir feldinn
og litinn.
Dómar fara fram í þrem flokkum.
Fyrst eru dæmdar lambgimbrar,
því næst lambhrútar og loks ær
með afkvæmum. Þrjátíu og níu
gimbrar mættu til dóms, átján
hrútar og eitthvað innan við 10 ær
með afkvæmum. Vart þarf að taka
fram að eðli málsins samkvæmt gætti
þarna allra lita nema hvíts.
Dómarar voru Lárus Birgisson,
ráðunautur í Borgarnesi, og Vignir
Siggeirsson í Hemlu og ritari þeirra
var Lovísa Herborg Ragnarsdóttir
í Hemlu og fórust þeim störfin
fagmannlega. Í mati á lambhrútum
og gimbrum vegur litur 50% á
móti skrokkgerð en í tilviki áa með
afkvæmum vegur liturinn aðeins
meira, eða 60%.
Auk hinnar almennu sýningar og
dóma voru sett sér í dilk allmörg lömb
í skemmtilegum eða athyglisverðum
litum og litmynstrum og áhorfendum
gefinn kostur á að velja litfegursta
lambið. Auk þess voru sýnd nokkur
feldlömb. Feldfé kallast fé með
ullarafbrigði sem er sérlega mjúkt
og hrokkið og er ræktað á allmörgum
bæjum sérstaklega vegna þessara
eiginleika. Af feldfé er bæði notuð
ull og gærur.
Félag þetta er ekki fjárglæfrafélag
þó það snúist um fé og félagsgjöld
eru engin. Árlegri fjárþörf félagsins
er haldið uppi með því fé sem fæst
fyrir efnilega og fallega lífgimbur
sem einhver félagsmanna leggur til
og er boðin upp í lok samkomunnar.
Páll Imsland, jarðfræðingur &
áhugamaður um íslenska
húsdýrastofna.
Verðlaunagimbrarnar, fjórar efstu. Efst stóð morgrá golsubotnótt gimbur frá
Skarði, þá svört gimbur frá Skarði og í þriðja sæti var grá gimbur frá Árbæ
og loks grábaugótt gimbur frá Austvaðsholti. Þau sem halda í eru talið frá
vinstri: Jens í Stóra-Klofa, Anna Sigríður og Berglind í Skarði, Guðmundur
í Árbæ og Viktor í Selási.
Páll Imsland.
Verðlaunahrútarnir, þrír efstu. Efstur stóð svartbotnóttur lamb-
hrútur frá Austvaðsholti, þá svartgolsóttur frá Árbæ og loks
kolsvartur frá Köldukinn. Þau sem halda í eru: Viktor í Selási,
Ólafur í Árbæ og Valería á Hellu.
Litfegurstu lömbin samkvæmt kjöri sýningargesta, þrjú efstu. Efst stóð
grá feldfjárgimbur frá Köldukinn, þá gráflekkótt baugótt gimbur frá Selási
og loks grábotnótt gimbur frá Skarði. Þau sem halda í eru: Hákon í Selási,
Lýsa í Köldukinn og Sumarliði í Skarði.
Ær með afkvæmum frá Húsagarði og gamalreynt fólk við
sýningar, Markús, Sveinn Bjarki og Dýrfinna í Húsagarði.
Myndir / Páll Imsland
Kristinn í Árbæjarhjáleigu, kynnir, og Lárus Birgisson og Vignir Siggeirsson,
dómarar sýningarinnar að störfum.
Hér sést Mormaga með báðar morgráu golsóttu dætur sínar haustið 2018.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
LÍF & STARF