Bændablaðið - 19.10.2023, Síða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Hugmynd kviknaði í samkvæmi
nokkurra kvenna innan
Brokkkórsins í desember árið
2016 að stofna félagsskap kvenna
sem ætti stóðhestsefni. Úr varð
hestakvennafélagið Djásnin sem
telur í dag hátt í 80 aðildarfélaga.
Tildrögin voru þau að tarot-
spil voru lögð til að ráða í hvaða
stóðhestur væri álitlegur til ræktunar
sumarið 2017. Spádómurinn fól
í sér áskorun að hugsa út fyrir
rammann því framtíðin bæri í skauti
sér skemmtilegar stundir í góðum
félagsskap, ferðalög, hindranir til
að sigrast á og álitlegan veraldlegan
feng. Skemmtilegar umræður urðu í
kjölfarið og var bent á að tími væri
til kominn að konur létu meira að sér
kveða í heimi ræktunar á íslenska
hestinum og almenna eflingu kvenna
á því sviði. Þær tólf konur sem staddar
voru á þeirri stundu í samkvæminu
ákváðu þar með að taka málin í sínar
hendur og stofna hestakvennafélag
um eign á stóðhestum og hefja leit
að stóðhestsefni sem bæði í gamni og
alvöru gæti uppfyllt þá framtíðarsýn
sem tarot-lögnin gaf fyrirheit um.
Sterkar ættir skilyrði
Lagt var upp með að velja hest með
sterkar ættir, faðirinn skyldi vera
nokkuð hátt í umræðu þess tíma og
móðirin með góðan hæfileikadóm,
fyrstu verðlauna foreldrar skilyrði.
Vel gekk í kjölfarið að lesa Worldfeng
sundur og saman, finna þrjá álitlega
fola á fyrsta vetri, rjúka norður í land
að skoða þá, velja þann besta og kanna
svo áhuga hjá vinkonum að kaupa
hlut í viðkomandi hesti. Úr varð að
ræktunar- og gleðifélagið Djásnin var
formlega stofnað 2. desember 2016,
eingöngu ætlað konum, og er fjöldi
félaga í dag um 70–80 konur.
Gleðin er í fyrirrúmi hjá
félagskonum en ákveðum reglum
þarf þó að lúta er viðkemur stofnun
félaga hjá yfirvöldum. Lög og reglur
félagsins gerðu í upphafi ráð fyrir
að ef upp kæmi ágreiningur yrðu
lögð tarotspil til að leysa hann.
Fyrirtækjaskrá gat ekki samþykkt
slík lög og urðu því til að auki
reglur félagsins og lögin sniðin með
hefðbundnum hætti.
Eingöngu ætlað konum
Til að hljóta inngöngu í félagið þarf
viðkomandi að uppfylla tvö skilyrði;
að vera kvenkyns og eiga hlut í
stóðhesti í eigu félagsins. Margrét
Dögg Halldórsdóttir er ein þeirra sem
kom að stofnun félagsins og segir að
aðalmarkmið félagsskaparins sé að
hafa gaman og efla þátttöku kvenna
í hestamennskunni.
„Markmiðið er að vera í góðum
félagsskap kvenna og efla konur í
alls konar hestamennsku. Við gerum
ýmislegt saman, við förum t.d. í
árlegar heimsóknir á hrossaræktarbú,
fjölmennum að skoða folana okkar
sem við köllum „Djásnin okkar“, þar
sem þeir eru í þjálfun eða uppeldi
hverju sinni, og höfum staðið fyrir
sýnikennslu og fyrirlestrum, bæði
fyrir okkur og aðra.
Við búum okkur til merktan
fatnað og meira að segja fengum við
gerðar grímur með lógóinu okkar
þegar Covid-faraldurinn geisaði,
skemmtilegt verkefni unnið með
nemendum í Tækniskólanum.
Svo erum við flestar nokkuð söng-
elskar og sumar jafnvel hagyrtar,“
segir Margrét og bætir hlæjandi
við; „Það fer býsna vel saman og er
aldrei leiðinlegt.“
Upplitsdjarfur og litfagur
Fyrsti hesturinn sem félagið keypti var
Hraunar frá Sauðárkróki, undan Skýr
frá Skálakoti og Urði frá Sauðárkróki,
úr ræktun Guðmundar Sveinssonar
og Auðar Steingrímsdóttur á
Sauðárkróki. Upplitsdjarfur og
litfagur foli sem heillaði nýju
eigendur sína með einstakri geðprýði.
Hraunar er fæddur 2016 og var
keyptur á vordögum 2017. Það standa
sterkar ættir á bak við Hraunar frá
Sauðárkróki og mörg nafntoguð hross
koma þar fyrir. Urður, móðir hans, er
undan Óði frá Brún og Orradótturinni
Lyftingu frá Skefilsstöðum.
Undan Hraunari eru fædd 22
afkvæmi og og er farið að temja 2019
árganginn og strax ljóst að margir
kostir eru að erfast frá Hraunari, ekki
hvað síst einstök geðprýði.
Nýr og spennandi hestur
Ljóst var að tilgangur félagsins væri
ekki að eiga sína hesta til lengri tíma
svo fljótlega var farið að leita að
næsta hesti, láta dæmið rúlla þannig
að þegar einn yrði fulltaminn og
sýndur væri annar að byrja sín fystu
skref í tamningu. Því var enn farið
að skoða gagnagrunninn og skanna
kynbótasýningar.
Fest voru kaup á öðrum hesti og
kemur sá úr ræktun þeirra Árna Björns
Pálssonar og Sylvíu Sigurbjörnsdóttur
sem þau kenna við Hrafnshól. Hrafnar
frá Hrafnshóli er fæddur 2019 og faðir
hans er Fenrir frá Feti sem er undan
Loka frá Selfossi og Fljóð frá Feti.
Móðir Hrafnars er Vissa frá Valstrýtu
sem er undan Grun frá Oddhóli og
Heklu frá Kálfholti. Báðir foreldrar eru
því undan landsmótssigurvegurum,
Grunur vann tölt á landsmóti 2006 og
Loki vann B-flokk á landsmóti 2014.
Á bak við Hrafnar eru sterk
töltgen, báðir foreldrar eru með 9,0
fyrir tölt, í beinan karllegg eru fimm
ættliðir af hestum með 9 eða 9,5 fyrir
tölt og í öllum ættlínum eru háar
tölteinkunnir í röðum.
LÍF&STARF
Djásnahópurinn á ferð í Skagafirði til að meðal annars líta á Hraunar sem var í þjálfun hjá Líneyju Maríu Hjálmarsdóttur á Tunguhálsi II. Myndir / Djásnin
Hrossarækt:
Ræktunar- og gleðifélag
hestakvenna
Þórdís Anna Gylfadóttir
thordisannag@gmail.com
Hraunar frá Sauðárkróki, knapi Líney María Hjálmarsdóttir.