Úrval - 01.11.1962, Page 17
HEILAÞVOÐI ALÞÝÐUDÖMSTÖLINN
33
vitið. Svo gerðist það dag nokk-
urn, síðla kvölds að hann var
leiddur fyrir alþýðudómstól,
skipaðan isex dómurum. (Bárii
tveir þeirra hina bláu einkennis-
klæðnaði kommúnistaflokksins,
hinir voru í einkennisklæðum úr
grófu kakí, eins og hermennirn-
ir, lögreglan og lægri embættis-
menn notuðu.
Fangaverðirnir hrundu Haynes
að litlum kollstól, sem stóð gegnt
dómaraborðinu, og hann tók sér
sæti. „Hverhefur boðiðþérsæti?“
öskraði dómsforsetinn. „Stattu
upp!“ Og Haynes stóð upp. Dóm-
ararnir glottu. „Fáðu bér svo
sæti,“ sagði dómsforsetinn og
hinir glottu því meir. Þeim hafði
tekizt að gera son gamla kenn-
arans hlægilegan.
„Og þá datt mér nokkuð í hug
— dálítið, sem ég átti það síðan
fyrst og fremst að þakka að ég
skyldi ekki ganga af vitinu fyrir
þá hræðilegu raun, sem ég átti
eftir. að þota,“ segir Haynes. „Dóm-
ararnir sex minntu mig á strák-
ana, sem stundað höfðu nám hjá
mér. Þeir voru að vísu að því
leyti hættulegri, sem þeim var
lagt meira vald í hendur, en þeir
voru samt ekkert annað en ungl-
ingsstrákar og höguðu sé sam-
kvæmt því.“ Séra Haynes lagði
lófa á hné og brosti vingjarn-
lega til þeirra.
Dómsforsetinn spurði hann nú
valdsmannslega hvort hann vissi
fyrir hvað hann væri kærður.
„Nei, það hef ég ekki hugmynd
um,“ svaraði Haynes. „Hugsið
yður nú vel um,“ öskraði dóms-
forsetinn. Haynes yppti öxlum.
„Þér eruð njósnari fyrir heims-
veldasinna,“ tilkynnti dómsfor-
setinn. „Þér hafið skrifað heim
um land okkar. Það er afbrot.
Þér megið einungis skrifa til
manna í Rússlandi, þvi að Rússar
eru vinir kínversku þjóðarinnar.
Bandaríkin eru í klóm Wall-
streetmanna, en sá tími kemur,
að við frelsum þau.“
Haynes kvaðst hafa skrifað
heim til að skýra mönnum rétt
frá því, sem væri að gerast með
kínversku þjóðinni. Dómararn-
ir spruttu úr sætum sínum og
hrópuðu aliir í senn: „Haltu
kjafti heimsveldissinnanjósnari!“
Þessi leikur var síðan endur-
tekinn í fjörutiu daga, oft níu
klukkustundir samfleytt. Haynes
sat gersamlega kröftum þrotinn
á kollstólnum, en dómararnir
skiptust á að spyrja hann i þaula,
svívirða hann og skamma.
Með þessu móti hugðust þeir
þvinga hann til að viðurkenna
að hann væri njósnari fyrir
bandarísku ríkislögregluna. Þeg-
ar hann benti þeim á að sú
stofnun hefði ekki nein afskipti