Úrval - 01.11.1962, Page 20
3G
ÚHVAL
réttur frammi fyrir dómurum
sínum, horfði á þá og las bænina
titrandi röddu: „Himneski faSir,
fyrirgefðu þeim, því að þeir
þc-kktu hann ekki. Kenndu þeim
aS þekkja rétt frá röngu, og gefSu
að þeir megi öðlast sanna ást á
þjóð sinni, svo að þetta ógæfu-
sama land megi að lokum njóta
friðar.“
Nökkur andartök rikti dauða-
þögn í réttarsalnum. Loks sneri
dómsforsetinn sér að fangaverð-
inum og mælti lágum rómi: „Pa
ta tai chu“ — leiðið hann út. Og
kínversku dómararnir sex sátu
þungbúnir þegar Bandaríkja-
maðurinn gekk hnarreistur úr
salnum.
„Ég var ekki í vafa um að ég
yrði skotinn,“ sagði John Haynes
síðar. „Ég hafði gerzt sekur um
þá óhæfu, sem verst var — ég
hafði rofið brynju þeirra eitt
andartak. Þeir vissu það, og vissu
að ég vissi það.“
En Haynes var ekki skotinn.
Þvert á móti var honum sýnt
öllu meira titlit í réttarhöldun-
um næstu vikurnar. Dómararnir
æptu ekki eins og áður og nokk-
nð dró úr skömmunum.
I
I.oks bauðst Haynes langþráð
tækifæri. „Þér segist vera vinur
kínversku þjóðarinnar,“ sagði
einn af dómurunum, „en samt
sem áður eruð þér einn af þeim
Bandaríkjamönnum, sem reynt
hafa að leiða hana afvega með
fölskum kenningum auðvalds-
sinna.“
John Haynes svaraði ekki sam-
stundis. Síðan tók hann að segja
frá föður sínum, Lao Shih —
gamla kennaranum. Haynes kann
vel að segja frá, og enginn gerð-
ist til að grípa fram í fyrir hon-
um. Hann leiddi áheyrendur sína
aftur í tímann, þegar gamla keis-
aradrottningin réði ríkjum; þegar
faðir hans vann sitt óeigingjarna
starf i þágu þjóðarinnar með þvi
að kenna henni nýja búskapar-
háttu, þegar liann lét reisa
sjúkrahús, og bjargaði tugþús-
undum manna frá hungurdauða.
„Kemur þetta heim við það, að
við feðgarnir höfum leitazt við
að afvegaleiða þjóðina og eitra
hugsanir hennar?“ spurði hann
að lokum. Dómararnir þögðu,
enda vissu þeir að öll saga hans
var sönn.
Þegar einn af dómurunum hélt
því fram síðar, að þjóðfélaginu
yrði einungis breytt til hins betra
með valdbeitingu, sagði Haynes,
að það væri einmitt þetta sem
gerði, að kommúnistar væru hat-
aðir eins og raun bæri vitni.
„Það verður ykkur aldrei neinn
sigur að vekja hatur,“ sagði
hann, og nú hlýddu allir við-
staddir því með athygii, er liann