Úrval - 01.11.1962, Síða 22
38
þekkti, teygði upp óhreinan
puttann þegar hann sá til ferða
minna, og hrópaði: Bandarikja-
menn góSir! Mér varð litið á
lögreglumanninn, sem e-kki gat að
sér gert að hrosa.“
Og nú hefur sonur gamla
kennarans setzt að í grennd við
kínversku landamærin, þar sem
ÚRVAL
hann getur fylgzt með því, sem
er að gerast innan þeirra. Ein-
'ungis sjö af rúmlega þúsund
bandarískum trúboðum eru enn
um kyrrt í landinu — og þeir
sitja allir í fangelsi. En komm-
únistunum hefur ekki tekizt að
uppræta áhrif Lao Shis —
gamla kennarans.
Risinn í Rhodos.
AF ÖLLUM hinum sjö undrum veraldarinnar I fornöld, átti
risinn í Rhodos skemmsta sögu, en naumast hefur í annan tíma
verið til mannvirki, sem orkað hefur meira á ímyndunarafl manna.
Samt veit enginn fyrir víst, hvernig hann leit út. Kunnugt er, að
hann var reistur til að fagna miklum sigri, og að verkinu var lok-
ið 280 f. Kr. Hann var einnig helgaður guðinum Helios, sem var
verndargoð borgarinnar. Sagnir herma, að þetta geysistóra minn-
ismerki hafi verið málmmynd af risavöxnum manni, sem stóð sín-
um fætinum hvoru megin innsiglingarinnar að borginni. En sagn-
fræðingar draga það í efa, hyggja hann aðeins hafa staðið við
höfnina. Hann stóð aðeins uppi í 56 ár. Þá hrundi hann í land-
skjálfta og eyðilagðist með öllu.
— Coronet
Hjúkrunarmenn í stað kvenna.
1 BANDARÍKJUNUM starfa nú milli 5—6000 hjúkrunarmenn
og fjölgar þeim áríega um 300. Blaðið „Modern Nursing" skýrir
svo frá, að aðeins um þriðjungur hjúkrunarskóla í landinu heim-
ili karlmönnum inngöngu. Telur blaðið æskilegt, að karlmenn
en ekki konur annist sumar greinar hjúkrunar á sjúkrahúsum.