Úrval - 01.11.1962, Side 26
42
ÚR VAL
hús, en þeim var illa við, að þeir
reyndu að snúa fólkinu til krist-
innar trúar. Og hinn leyndar-
dómsfullu fjalllendi Formósu
voru trúboðunum algerlega lok-
uð svæði. Fjöll þessi eru allt að
14.000 fet á hæð, og í þeim búa
um 150.000 afkomendur frum-
hyggja eyjarinnar. Upphaf þeirra
er fremur óljóst, og eru þeir
haldnir ríkri sjálfstæðisþrá.
Tyal-ættflokkurinn, um 35.000
að tölu, er sérstaklega villtur.
Tyalarnir voru mjög mikið hör-
undsflúraðir. Þeir bjuggu á tind-
um og í gjám fjallanna í miðhér-
uðunum á norðurhluta eyjarinn-
ar. Þegar japönsku lögreglunni
tókst ekki að hafa hemil á hausa-
veiðum þeirra, tók hún það til
bragðs, að hún girti herbúðir sín-
ar við fjallsræturnar með raf-
mögnuðum gaddavír. En samt
komust nokkrir Tyalar inn í her-
búðirnar. Nokkrir komust í sam-
band við kristnar trúboðsstöðvar,
og tóku síðan kristna trú, þeirra
á meðal 59 ára gömul kona, Chi-
oang að nafni, en Dickson hafði
hitt hana, þegar hann var að
heimsækja trúboðsstöðvarnar úti
við ströndina. Hafði hann talið
hana á að sækja tveggja ára bibl-
íunámsskeið við skóla, sem hann
hafði komið á fót í Tumasi.
Það var ekki fyrr en eftir síð-
ari heimsstyrjöldina, þegar Dick-
sonhjónin flýttu sér aftur til Fdr-
mósu, að þau komust að því,
hversu vel Chi-oang hafði not-
fært sér hin nýju trúarbrögð sín.
Leynileg kristileg hreyfing hafði
farið sem logi um akur í fjalla-
héruðunum, og höfðu um 4.000
manna tekið kristna trú. Chi-
oang var foringi hreyfingar þess-
arar. Japanir höfðu lagt fé til
höfuðs henni, þeir höfðu brennt
sálmabókum og biblíum, lamið
frumbyggja, sem tekið höfðu
kristna trú, og hótað þeim öllu
illu. En þeir höfðu reynzt stöð-
ugir í trú sinni, jafnvel þegar
dauðinn blasti við þeim af hennar
völdum.
Nú, að stríðinu loknu, sögðu
innlendir prestar Dicksonhjónun-
um, að nú kæmu hundruð frum-
byggja niður úr fjöllunum, berðu
að dyrum kirkjunnar og bæðu um
biblíur og skírn.
Lil bað um að fá að fara með
manni sínum, þegar hann til-
kynnti, að hann yrði sjálfur að
sjá, hvað væri í rauninni að ger-
ast. Þau komust langt inn á hin
fyrri bannsvæði, og alls staðar
fundu þau slóð Chi-oangs. Verks-
ummerkin voru alls staðar, íbú-
ar margra þorpa höfðu ailir tek-
ið kristna trú, litlar kirkjur úr
bambusviði höfðu víða verið
reistar, og alls staðar mætti þeim