Úrval - 01.11.1962, Page 28
44
ÚR VAL
hvers kyns óþægindi. Oft veikt-
ist hún af blóðkreppusótt af því
að borða mat innlendra manna,
og oft var hörund hennar alsett
ígerðum.
Og Lil sneri aftur heim til Tai-
pei, veik og örþreytt, en hún
flutti einnig heim með sér þekk-
ingu á þörfum fjallabúa og þá
ósveigjanlegu ákvörðun sína, að
uppfylla þessar þarfir þeirra.
Einna mest aðkallandi var að
reyna að bæta heilbrigðisástand
og viðurværi þeirra. Þeir lifðu
við frumstæð skilyrði, höfðu ó-
nógt og lélegt viðurværi, hrein-
læti var mjög áfátt, og skortur á
lyfjum. Þess vegna náðu fáir
þeirra því að verða miðaldra.
Barnadauðinn var alveg ótrúlega
mikill. Mæður, sem ólu týlft
barna, voru heppnar, ef fleira en
eitt af þeim lifðu það, að komast
á legg. Berklarnir voru einstak-
lega skæðir og illkynjaðir, og
smituðust allt að 80% í sumum
ættflokkunum.
Eftir að séra Dickson hafði
hlustað á frásögn Lil, spurði hann
hana: „En hvar eigum við að út-
vega peninga til alls þessa?“
„Við skulum samt byrja“,
sagði hún. „Guð mun ekki bregð-
ast okkur“.
Lil byrjaði að skrifa bréf til
ýmissa vina í Bandaríkjunum, og
í bréfum þeim lýsti hún fjallabú-
unum sínum, heitri trú þeirra á
Krist, þörfum þeirra og vonum
sínum. „Þótt við höfum ekkert
fé handa á milli“, skrifaði hún í
bréfum sínum, „ætlum við samt
að byrja að framkvæma áætlan-
ir okkar. Biðjið fyrir okkur“.
Hún tók að gera pantanir á
alls kyns efni og lyfjum, þótt
hún ætti ekki eyri til þess að
greiða slíkt með, valdi sér stað
fyrir fyrsta fjallahælið sitt, byrj-
aði að útvega sér aðstoðarfólk,
sem vildi af fúsum vilja hjálpa
henni, lækna og hjúkrunarkonur.
Brátt tóku peninga- og fatagjaf-
ir að berast frá Bandaríkjunum.
Hún skrifaði fleiri bréf, byrjaði
að framkvæma fleiri áætlanir og
skellti skollaeyrum við, ef hún
mætti mótstöðu eða hindrun. Þeg-
ar hún skýrði starfsmönnum á
vegum bandarísku hjálparstofn-
ananna frá því, hvernig berkl-
arnir herjuðu á fjallabúana,
sögðu þeir við hana: „Þetta er
vandamál, sem úthafið sjálft. Það
er sama hvað þú vilt, eða við
reynum að gera. Það væri líkt og
að taka eina fötu af sjó úr haf-
inu“. Þá svaraði Lil þykkjuþung:
..Jæja, ég ætla nú samt að taka
mína fötufylli!"
„Fötufyllin" hennar Lil Dick-
son nemur nú 100 nýjum kirkj-
um, 100 barnaheimilum á vegum
kirkjunnar, en á þeim dvelja nú