Úrval - 01.11.1962, Side 43
ÖGLEYMANLEGUR MAÐUR
59
bergi hans. Setti ráðskonan sjálf
kaffið og kökurnar á bakka.
Yinnukona var svo send með
hann upp á loft.
Eitt sinn er móðir min knúði
dyra með bakkann, svaraði ráðs-
maðurinn ekki af einhverjum
ástæðum. Hún þykktist við, því
hún vissi að hann var inni, og
fór aftur niður með bakkann.
Ráðskonan vildi að hún færi
aftur upp með bakkann, en móðir
mín sagðist aldrei fara upp með
hann framar. Ráðskonan svaraði
engu, en alla sunnudaga eftir
þetta lét hún á bakkann og ætl-
aðist til þess þegjandi, að móðir
mín færi upp með hann. Hvað
hún ekki gerði.
Ráðskonan sagði aldrei styggð-
aryrði, þótt hún færi ekki upp
með bakkann, og var alveg jafn
elskuleg og góð við hana eftir
sem áður. En hlaðinn bakkinn
talaði sínu máli.
Ráðsmaðurinn kom sjálfur nið-
ur í kaffi alla sunnudagsmorgna
eftir þetta, meðan móðir mín var
í eldhúsinu.
5.
Það er eflaust hægt að finna
merkilegar sálfræðilegar skýr-
ingar á hegðun ráðskonunnar á
Korpúlfsstöðum — með kettina
og rotturnar í huga — fyrir þá
sem vilja ekki trúa því, að hún
hafi einfaldlega verið svona góð.
Ég gæti meira að segja fundið
þær sjálfur og orðað þær, ef ég
hefði ekki þekkt hana.
Það er því ef tií vill rétt að
geta þess, að ástvinamissir hefur
sennilega átt drjúgan þátt í
þroska hennar. Maður, sem hún
unni í æsku, varð úti í aftaka-
veðri í Héðinsskörðum. Stundum
hafa einmitt þeir, sem mest hafa
misst, mest að gefa.
Hún var dul í skapi og tjáði
yfirleitt ekki tilfinningar sínar
öðru vísi en í verki. Þó sagði
hún eitt sinn, er stórhríð dundi
á gluggunum á Korpúlfsstöðum,
að mikil veðurhljóð vektu henni
óhug; þau minntu hana á löngu
liðið atvik.
Að lokum langar mig til að
segja frá draumi, sem móður
mína dreymdi nokkrum árum
eftir andlát Sigríðar Trausta-
dóttur. En hún lézt á Korpúlfs-
stöðum fyrir um það bil hálfum
áratug.
Móður mína dreymdi að hún
kæmi að Korpúlfsstöðum, gengi
þar niður i kjallara og inn í her-
bergi. Þar þóttist hún kenna
Sigríði í hvítum klæðum og
ákaflega fallega.
Hún kastar á hana kveðju og
lítur svo kringum sig í herberg-
inu. Á veggjunum hanga myndir,
sem hún þykist vita að séu af