Úrval - 01.11.1962, Síða 46
62
ÚRVAL
sem þær liggja um, hafa minni
mótstöðu gegn rafstraum en hin-
ir hlutar húðarinnar. Og þar að
auki breytist rafstraumurinn eða
rafhleðslan, ef stúngið er í að
minnsta kosti suma af hinum
800 stöðum á leið orkubrautanna,
sem áður var minnzt á. Og nú
heldur japanskur læknir því
fram, að hann hafi fundið upp
tæki, sem sýni og skrái hinar
tólf mismunandi tegundir æða-
slaga.
Sú staðreynd er einnig ein-
kennileg, að verkirnir, sem fylgja
„angina pectoris" köstum (nokk-
urs konar hjartakrampa), liggja
oft frá hjartanu niður eftir
vinstri handlegg alveg fram í
litla fingur, en þetta er einmitt
leið kínversku hjartaorkubraut-
arinnar. Vestrænum læknum
finnst þetta enn mjög dularfullt.
Orkubaugarnir fylgja ekki blá-
æðum né slagæðum né brautum
miðtaugakerfisins, sem stjórnar
sjálfráðum hreyfingum okkar, t.
d. þegar við klórum okkur á nef-
inu eða teygjum okkur eftir
vindlingi. Og sú gamla kínverska
hugmynd, að orkubaugar þessir
séu nokkurs konar fljót, sem ork-
an flæðir eftir, er helzt til mið-
aldaleg fyrir nútímafólk.
En það virðist samt fremur
líklegra, að orkubrautirnar
kynnu að fylgja ósjálfráðu tauga-
brautunum eftir, að minnsta
kosti að einhverju leyti, þ. e.
því tauganeti, sem stjórnar ým-
issi líkamlegri starfsemi, svo sem
hjartslætti, munnvatnsrennsli eða
magni magasýru.
Rússar hafá haft áhuga á þessu
viðfangsefni, síðan kenningar
Pavlovs virtust veita því nokk-
urn vísindalegan stuðning. Pró-
fessor nokkur við Gorkiháskól-
ann hefur komið fram með þá
hugmynd, að þegar nálarstungu-
maðurinn stingur nálum sínum
í taugaendana, sendi. hann um
leið rafstraum eftir taugabraut-
um, sem liggja til mænunnar,
þaðan upp í neðri hluta miðheil-
ans og svo þaðan aftur til hinna
ýmsu líffæra líkamans.
Enn þá er deilt um það, hvort
læknisaðgerð þessi hafi nokkur
áhrif, og engin fullnægj'andi vís-
indaleg skýring á bata þeim, sem
oft virðist hafa fylgt á eftir að-
gerðum þessum, hefur enn verið
lögð fram.
Einn af brezku læknunum, sem
leggur nú einkum fyrir sig nálar-
stunguaðgerðir, rakst fyrst á
þessa læknisaðferð í Frakklandi
fyrir um sex árum. Sjúklingur
með botnlangabólgu var stung-
inn fyrir neðan hné af nálar-
stungumanni. Sjúklingnum batn-
aði skjótt, og síðan hefur hann
ekki þurft á uppskurði að halda.