Úrval - 01.11.1962, Síða 60
70
URVAL
þangað til hávaðinn fjarlægðist.
Ég held ekki, 'að þessi skýring
sé nægilega góð. Þegar öllu er á
botninn hvolft, er enn mikið til
af seglskipum og bátum, sem
enga vél hafa, svo að maður
nefni nú ekki menn þá, sem láta
sig berast á flekum frá einu meg-
inlandi til annars. Maður gæti vel
ímyndað sér, að sumir þeirra
hefðu átt að geta komið einhverri
sæslöngu að óvörum.
En samt ættu menn að minnast
þess, að hvalur einn, sem eitt
sinn var álitinn vera alveg út-
dauður, hefur nú sézt í torfum,
sem nema mörgum hundruðum
hver. Það er hvalur sá, sem
gengur undir nafninu „False
Killer“, en hann getur orðið allt
að átján fet á lengd. Enginn nátt-
úrufræðingur hafði nokkru sinni
séð neinn þeirra lifandi fyrr en
1861, og hann var aðeins þekktur
vegna þess, að steingervingar af
leifum hans höfðu fundizt. Að
vísu er átján feta langur hvalur
miklu athyglisverðari iifandi
steingervingur en fjögurra feta
langur coelachant, en samt vekur
hann ekki eins mikla undrun.
Margar þúsundir sjómanna hafa
líklega verið búnar að sjá hval-
tegund þessa, áður en fiskifræð-
ingum barst lifandi hvalur í
hendur. Sjómennirnir hafa sjálf-
sagt veitt honum litla athygli,
heldur álitið þetta vera stóra
hnísu. Þannig getur venjulegt dýr
svo sem ný hvaltegund farið
ferða sinna árum saman, án þess
að menn geri sér grein fyrir sér-
kennum hennar. En slíkt gæti
varla skeð, hvað svo furðulega
skepnu sem Plesiosaurus snertir.
Önnur mótbára gegn því, að
svo stór, óþekkt skepna geti lifað
ofarlega í- sjónum, er sú, að þá
ættu deyjandi eða dauðar sæ-
slöngur að sjást á reki öðru
hverju eða reka á fjörur. Þetta
er algengt, hvað hvali og hákarla
snertir, og getur hinum ólærðu
veitzt erfitt að þekkja tegund-
ina af hinum risavöxnu, hálfrotn-
uðu skrokkum. Rotnandi búrhval-
ur líkist ekki neinni skcpnu, sem
uppi hefur verið eftir júratíma-
bilið, en á því tímabili reikuðu
risaeðlurnar enn um jörðina.
Þegar allt hold er rotnað af dauð-
um hvölum og hákörlum, og að-
eins eftir hryggur og rif, má auð-
veldlega villast á þessum leifum
þeirra og álíta, að þetta séu leif-
ar risaeðlu eða „ósvikinnar“ sæ-
slöngu, og viðvaningar í náttúru-
vísindum hafa oft verið á þeirri
skoðun. Þegar sérfræðingarnir
hafa svo kollvarpað þessum stað-
hæfingum, stundum á hæðnisleg-
an hátt, hefur slíkt orðið til þess
að veikja trú almennings á til-
veru sæslöngu. Ef til vill ætti