Úrval - 01.11.1962, Side 93
STRÍÐ ÁN BLÖÐSÚTHELLINGA
109
irnir, bæði þeir sem starfa á veg-
um hersins og aðrar stofnanir,
sem hafa slíkar rannsóknir með
höndum, fundið ýmislegt, sem
þeir voru í rauninni ekki að leita
að. Til dæmis er lyf það, sem
fannst fyrir víðtæka leit vísinda-
nianna á árum síðari heimsstyrj-
^ aldarinnar, til notkunar gegn
áhrifunum af blásýrublönduðu
eiturgasi, sem beitt var i fyrri
heimsstyrjöldinni, nú notað með
góðum árangri gegn áður að
meira eða minna leyti banvænni
eitrun af völdum bismuths, cad-
miums, króms, kóbalts, gulls,
kvikasilfurs og fleiri málmteg-
Unda — og vitanlega blásýru —
en slík eitrunaráhrif eru mjög til
staðar i ýmsum iðngreinum.
Þótt ekki væri gripið tit g'as-
hernaðar í siðari heimsstyrjöld,
höfðu báðir aðilar komið sér upp
miklum birgðum af eiturgasi.
Þegar skip hlaðið hylkjum með
sinnepsgasi sprakk í loft upp í
höfninn í Bari, varð slysið til
^ þess að vísindamenn tóku að
rannsaka lækningamátt sinneps-
gastegunda blandaða köfnun-
arefni á krabbamein, þar e-ð dul-
arfnllrar fækkunar á hvítum
blóðkornum varð vart hjá þeim,
sem urðu fyrir gaseitrunaráhrif-
um af völdum sprengingarinnar.
Gat sinnepsgasið stöðvað óeðli-
lega fjölgun hvitu blóðkornanna?
Nú sem stendur er unnið að því
að rannsaka lækningamátt þess
á krabbamein í vísindastofnun-
um í m irguni löndum, og fyrir
bragðið hafa allmargir krabba-
meinssjúklingar hlotið nokkurn
bata.
Móteitur og ónæmislyf.
Vísindamenn að Fort Detrick í
Maryland hafa fundið upp blöndu
móteiturs, sem veldur ónæmi
gegn öllum þeim fimm banvænu
afbrigðum matareitrunar, sem
kunnar eru.
í söniu rannsóknarstofnun hef-
ur tekizt að finna mönnumöruggt
bóiusetningarlyf gegn miltis-
brandi, næmum og undantekn-
ingarlitið banvænum dýrasjúk-
dómi, sem fólk getur einnig
tekið.
Enn eitt framlag stofnunarinn-
ar á þessu sviði, er rafeindatæki
sem telur sýklafylkingar og spar-
ar vísindamönnunum þar með
gífurlegan tíma. Tækið er svo
fljótvirkt, að það afkastar þeirri
talningu á einni sekúndu, sem
áður tók vísindamennina margar
klukkustundir, og nákvæmni þess
er óskeikul.
Loks hefur verið gert tæki,
sem uppgötvar samstundis ef loft-
mengun eykst. Það „sér“ mílu-
fjórðung vegar út frá sér og
greinir loftmengunarefnin þótt
i