Úrval - 01.11.1962, Page 110
Bodisea drottning
ræðst
á Lundúnaborg
Eftir Dag Þorleifsson.
ÖGU LUNDÚNA má
rekja langt aftur í ald'v
Nn Á þeim tímum, er íbúar
Bretlands notuðu tinnu-
hnífa og axir og hamra úr steini,
hafði fiskimannaþorp sennilega
þegar risið frá gunni á bökkum
Temsár, er gerðir voru úr leðju.
Þorp þetta tók smám saman fram-
förum öld eftir öld, unz fiskibát-
arnir hættu að vera einir um að
liggja við festar við árbakkana.
Kaupskip frá meginlandi Evrópu
og jafnvel alla leið frá Afríku tóku
að venja komur sínar upp eftir
Tems.
Þegar Kládíus Rómakeisari hóf
að leggja Bretland undir sig árið
43 eftir Krists burð, varð á vegi
hermanna hans þarna smáborg ein,
en þeir kölluðu Londinium. íbúar
borgar þessarar lifðu á verzlun og
fiskveiðum. Rómverjar gerðu sér
þegar ljóst mikilvægi staðarins sem
hafnar fyrir skip sín, komu sér
þar upp herbúðum, grófu víggröf
umhverfis þær og víggirtu þær með
háum skíðgarði.
Smám saman jókst vegur Lund-
úna undir stjórn Rómverja. Þar
bjó rómverski skattlandsstjórinn,
Desíanus Katus, sem heimti skatt
af hinum keltnesku Bretónum, sem
þá bjuggu mestan hluta landsins.
Yfirmaður rómversku hersveitanna
í landinu, Svetóníus Pálínus, dvald-
ist einnig í borginni milli þess er
hann barði á Bretónum þeim, er
enn höfðu ekki játazt undir vald
Rómverja.
Norður af Lundúnum, í héruðun-
um Norfolk og Suffolk, bjó þá her-
126
— Úr Samvinnunni —