Úrval - 01.04.1964, Page 12
2
ÚRVAL
stafla, endurprentanir og dýr-
nsætar bækur. Safnið mátti heita
brunnið til ösku.
Viðbrögðin við þessu hörntu-
lega slysi bera fagurt vitni því
áliti, sem heimurinn hafði á
Hans Selye. Tilboð urn hjálp til
að endurnýja safnið streymdu
að hvaðanæfa. Rockefellerstofn-
unin bauð tvítak af öllu, sem
til væri í hennar bókasafni.
Rússneskur vísindamaður bauð
afrit af öllum sínum skjölum og
hvatti starfsbræður sína til að
gera hið sama. Kanadísk hús-
móðdr sendi 1 dollara og skrif-
aði með: „Þetta er lítilræði, en
mig langaði til að sýna einlivern
lit.“ Stofnanir og einstaklingar
i mörgum löndum hafa lagt
fram meir en 600 þúsund dollara
til endurnýjunar á safni Selyes.
Hvernig sem á er litið, verður
Hans Selye talinn í hópi mestu
vísindamanna á vorum dögurn.
Með ekki merkilegri áhöld milli
lianda en ein líkskurðarskæri,
setti hann fram og færði sönnur
á nýja kenningu jafn viðtæka
og kenningu Pasteurs um sjúk-
dórna af völdum sýkla. Sam-
kvæmt kenningu Selyes, veldur
hvers konar farg, sem á mönn-
um livilir til lengdar — áhyggj-
ur, slysfarir, stöðug þreyta -—
miklum hluta mannlegra mein-
semdaj allt frá æðakölkun til
hjartasjúkdóma og liðagigtar.
(Sjá janúarhefti Reader’s Digest
1955: Stress — Tlie Cause of
all Disease).
Og nú hefur Selye komið fram
með og fært rök að jafnvel enn
úhrifameiri kenningu. Með aldr-
inum tapar líkami mannsins
hæfni sinni til að skola burt
úrgangsefnunum frá efnaskipta-
starfsemi sinni — einkum kalki.
Kalksöfnun i ýmsum hlutum lík-
amans veldur fjölda sjúkdóma,
t. d. liðasjúkdómum og gallstein-
um. Samkvæmt þessari kenningu
Sclyes mætti seg'ja, að „ellin or-
sakist af tilfærslu kalks frá bein-
unum til hinna mjúku vefja lík-
amans.“ Ef hægt væri að koma
í veg fyrir þessa tilfærzlu, mundi
ellihrörnunin stöðvast og æva-
fornu marki náð — að finna
læknislind æskunnar.
Selye, sem er fæddur í Vínar-
borg fyrir 56 árum, er grannvax-
inn með mikið, grátt hár. Fað-
ir hans, sem var ungverskur,
afi hans og langafi voru læknar.
Átta ára gamall talaði hann
fjögur tungumál: Ungversku
lærði hann af föður sínum,
þýzku af austurrískri móður
sinni, frönsku af barnfóstru
sinni og' ensku af kennara sin-
um. í dag flytur hann erindi á
10 tungumálum, þ. á. m. rúss-
nesku, portúgölsku og tékknesku.
Selye lifir eins og' Spartverji.
Kominn á fætur fyrir kl. 5 að