Úrval - 01.04.1964, Side 68
58
ÚRVAL
básúnuðu „endalok verðbólg-
unnar“ haft sín áhrif á leigu og
fasteignaverð. Hins vegar virð-
ist flest annað sífellt hækka i
verði, og þá ekki sízt matur á
veitingahúsum, föt og matvörur
almennt. Verð á íbúðum fer
lækkandi, og dæmi eru jafnvel
til þess, að húseigendur lækki
leiguna og bjóði m. a. stundum
allt upp i fjögurra mánaða frítt
húsnæði, áður en greiðsla hefst
En öll læknishjálp i Bandaríkj-
unum er rándýr, og það kostar
næstum 700 dollara að eignast
barn i New York.
Það þarf að þekkja vel sína
heimahaga til þess að geta graf-
ið upp skuggalegar búðir í hlið-
argötum, þar sem verðlagið er
heldur lægra, en nú orðið má
þó gera hagstæð kaup í stór-
verzlunum (supermarkets), og
víða eru góðar verzlanir farnar
að bjóða upp á einhvern afslátt.
í New York halda þessar afslátt-
arverzianir fyllilega sinum sessi
— sá sem reið á vaðið, E.J. Korv-
ette, á nú glæsilega verzlun á
Fifth Avenue — og árangurinn
má sjá í hinum gamalkunnu
deildaverzlunum, sem veita sí-
fellt meiri samkeppni. Einnig
hafa Leclerc-verzlanirnar í Paris
haldið verðlagi í skefjum, en
þær selja vörur sínar jafnvel
yfir 20% undir venjulegu út-
söluverði.
í Svíþjóð hefur samvinnu-
hreyfingin unnið að víðtækum
verðniðurskurði, og fjölmargar
samlagsverzlanir hafa fylgt i
kjölfarið. Áður hafði verðlagið
hækkað um 5% og á matvörum
um 10% frá þvi sumarið 1961
fram i ágúst s. 1.
Þetta mikla stökk átti rætur
sínar að rekja til þess, að auk-
inn var söluskattur og alls kyns
breytingar gerðar á launakjör-
um manna. Það er ljóst, að verð-
lagið var aukið óhóflega fyrir
tilstilli verzlananna, og nú eiga
þær ekki annað ráð en að reyna
að draga aftur úr verðinu.
Það væri gott til þess að vita,
ef mönnum hefðu orðið svipuð
mistök í öðrum löndum, en sem
stendur bendir allt til þess, að
verðbólgan víðast hvar sé blá-
kaldur raunveruleiki.
Öruggasta aðferðin til Þess að tvöfalda peningana þína er að
brjóta seðlana saman og stinga þeim í veskið.