Úrval - 01.04.1964, Síða 75
VAR FRAMTÍÐIN HONUM SEM OPIN BÓK?
undirbúning til að stöðva hann,
þó að vegabréí farþeganna væru
me'ð þeim frágangi, sem þau áttu
að vera, undirskrift konungs og
öllu sliku — og þá um morgun-
inn varð Lúðvík konungur að
snúa aftur heim til Parisar, þar
sem fangelsið — og fallöxin beið
bans.
Tveim öldum, þrjátíu árum
og fáeinum betur, áður en þetta
gerðist, kom bók nokkur út á
Frakklandi, þar sem getur að
lesa svohljóðandi erindi:
„De nuict viendra par la forest
de Reines,
Deux pars, vaultorte, Herne la
pierre blanche,
Le moyene noir en gris dedans
Varennes:
Esleu Cap. cause tempeste, feu,
sang, tranche.“
Þegar þess er gætt, að orðið
„vaultorte“ í öðru vísuorði, er
sett saman úr „vaulx“ — dalur,
og „torte“ -—• krókóttur eða ó-
sléttur; að Herne er launorð
yfir orðið „reine“, táknstafi
drottningar og „noir“ i þriðja
vísuorði yfir „roi“ ■— konungur
— en launorð í kveðskap voru
i þann tíð mynduð með umröð-
un stafa og skiptum á einum
staf við annan i hinu rétta orði
— þá mundi þýðing á visu þess-
65
ari í óbundnu máli verða á þessa
ieið:
Á næturþeli munu fara um Rei-
nes-skóginn,
hjón, um torfæran veg, drottn-
ingin, hviti steinninn
og munklikur konungurinn grá-
klæddur til Varennes
hinn kosni valdliafi; af því mun
leiða storm, eld, blóð, skurð.
Þið haldið kannske, að þetta
með tvö liundruð og þrjátíu ár-
in sé prentvilla, það hafi átt
að standa, að bókin kæmi lit
það mörgum árum eftir að fyrr-
nefndur atburður gerðist en
ekki áður. Nei, svo er ekki, bókin
kom út árið 1558 — eða ná-
kvæmlega til tekið 234 árum
áður en Lúðvík, 16. gerði þessa
ógæfulegu flóttatilraun. Sumir
kunna að segja, að með því að
lesa þannig eða þannig úr laun-
orðunum, sé hægur nærri að
koma öllu heim. Gott og vel -—
látum þau eiga sig. Samt sem áð-
ur verður ekki fram lijá þvi
gengið, að undarlega margt fer
þarna saman. Þar er sagt frá
för á næturþeli gegnum skóg;
hjón, bersýnilega ekki af almúga-
standi, þar eð um þau er orkt;
borgin Varennes, sem hvorki
fyrr né siðar hefur verið nefnd
til atburða í mannkynssögunni;
kjörinn valdhafi — Lúðvík 16.