Úrval - 01.04.1964, Side 79
VAIt FRAMTÍÐIN HONUM SEM OPIN fíÓII?
69
um, er ekki útilokað, að Hinrik
konungur hefði tekið honum það
óstinnt upp. ÞaS er ekki neinum
vafa bundiS, aS Nostradamus
varð, fyrir ófreskisgáfu sína,
sjónarvitni aS dauSa Hinriks
konungs, og eins flóttanum
til Varennes og viðbrögSum
Saucers kertasteypara. En hann
þorði ekki að segja frá því svo
ljóst, aS á yrði haft.
Guynaud aðalsmaður reit svo
um spádóma Nostradamusar áriS
1709, að það væri sammerkt
með þeim og þrumunum, að
gnýrinn heyrðist fyrst, þegar
allt væri um garð gengið. Þann-
ig hefur það líka verið og er
— mönnum hefur alltaf reynzt
auðskiliS, hvað Nostradamus á
við, þegar spádómurinn hefur
rætzt, en erfitt er að ráða i það
fyrir fram, hvað hann sé að fara.
Hafi Nostradamus verið mikils-
virtur sem læknir, naut hann
ekki siður hylli sem stjörnu-
spekingur og spámaður, en kirkj-
an hafði þá ekki enn dæmt
stjörnuspekina hættulega við-
fangs eins og fjölkyngina. Var
nú mikið til hans leitað, og jók
mjög á frægð hans, þegar Katrín
af Mediei gerðist ein af þeim,
en hún vildi einkum vita framtið
barna sinna sjö. Nostradamus
vissi hana áreiðanlega, en kom
sér undan að svara — sem sizt
var að undra — nema hvað hann
HITLER: „Leiðtogi hins mikla Þýzka-
lands mun fá (þjóðir) til þess að láta
undan með því að veita þeiin „vernd‘ .“
Centurie IX, 90.
spáði öllum prinsum konung-
dómi, hvað og rættist.
En frægðin dró lika dilk á
eftir sér, auk öfundarinnar, sem
öllum er nálæg. Fjöldi eftirlík-
inga á spádómum hans tók að
koma fram, og einskis var svif-
izt til þess að misnota nafn hans
tillitslaust. Slík misnotkun hefur
átt sér stað til skamms tíma,
og má enn fá lijá fornbóksölum
galdraskræður meS nafni hans
sem höfundar á fremstu síðu.
Er þar ómaklega að honum veg-
ið, því að hann var hvorki lodd-
ari né falsari.
Nostradamus lézt árið 1566 —
og hafði að sjálfsögðu löngu