Úrval - 01.04.1964, Page 88
78
ÚHVAL
ísar frá Kaupmannahöfn. Hann
hafðist við í óupphituðum og
húsgagnalausum skonsum og
svalt oft dögum saman. Einu
sinni vann hann fyrir sér sem
auglýsingamálari, og var dag-
lcaupið fáeinir frankar. Þá
heyrði hann frá því sagt, að
veitingastaður sá fyrirfyndist í
Brittany, þar sem veitingamaður-
inn lánaði málurum lífsviður-
væri. Gauguin fékk peninga að
láni fyrir ferðalcostnaði þangað.
Málverk hans frá þessum timum
fyrirfinnast i öllum stærri og
meiri háttar listasöfnum; hinar
dráttsterku landslagsmyndiir,
krjúpandi Brittanykonur með
höfuðklæðnað, sem minnir á
nunnuskuplur, nakin börn að
leik á ströndinni. En almenning-
ur kunni ekki að meta slika list
í þann tið.
Þaðan hélt Gauguin févana
sem áður til Arles á Suður-
Frakklandi, þar sem hann hugð-
ist setjast að lijá vini sinum,
Vincent van Gogh, en það var
bróðir Vincents, sem lagði fram
féð, svo að það gæti orðið. Hét
hann Theo, var listaverkasali og
gerði sér vonir um, að Paul
Þessi hljóðláta mynd „Signa við Jenabrúna“ er ein af fyrstu mynöum Gauguins,
og er hún máluð meðan hp.nn uaut enn kennslu impressioniska meistarans
Pissarro (1875).