Úrval - 01.04.1964, Síða 92
82
ÚRVAL
venjulega látið ]pau fyrir vin-
flösku, stundargaman eða næt-
urgistingu, og yfirleitt var þeim
þá komið fyrir niðri i kjallara-
geymslum eða upp á skranloft-
um, þar sem eigendurnir töldu
þau ekki þess virði að hanga á
vegg. í Brittany höfðu þau verið
notuð sem gólfþurrkur, eða
klippt sundur og úr þeim gerðir
strigaskór.
Somerset Maugham fann hið
fræga Gauguinmálverk sitt sem
rúðu í dyrum svefnherbergis,
þar sem listmálarinn hafði ein-
hverntíma verið um nætursakir.
Er að sjá sem hann hafi allt í
einu gripið löngun til að mála
mynd, en hann hafi ekki haft
neinn strigann og þá tekið að
skreyta hurðarrúðuna þeim
töfralitum, sem hann einn kunni
tökin á.
Það var ekki löngu fyrir and-
látið, sem Gauguin gerði tilraun
til þess í riti, að skýra frá þeirri
trú, sem réði hinum undarlega
og' harmræna lífsferli hans. „Ég
trúi því,“ ritaði hann, „að list-
in eigi sér guðlega uppsprettu
og taki sér bólfestu i hverju
þvi hjarta, sem það himneska
ljós hefur skinið í. Sérhver sá,
sem einu sinni hefur fengið for-
smekkinn af unaði mikillar list-
ar, losnar ekki undan áhrifa-
valdi hennar eftir það.“
Gat hann orðað það á ljósari
hátt?
» »« «
NÝTT HITASTILLINGARTÆKI (Thermostat).
Fundið hefur verið upp nýtt hitastillingartæki, sem ekki þarf
að tengja saman með leiðslum og hægt er að flytja á milli her-
bergja að vild. Það sendir hitunartækjunum upplýsingar um
hitastigið.
Looking Ahead.
STERKUR VATNSSTRAUMUR NOTAÐUR TIL ÞESS AÐ
SKBRA STÁL.
Mjög sterkur og hraður vatnsstraumur, 60.000 gráðu heitur á
Fahrenheit, er notaður í ný „eldlaus" skurðtæki til þess að skera
stál og getur tæki þetta skorið 755 þumlunga af % þumlungs
þykku stáli á mínútu.
Looking Aliead.