Úrval - 01.04.1964, Page 98
88
ÚRVAL
alltaf skipta um stað), Siutialuk
(eyrnastór) og' Tibaksaut (daun-
illur).
En Sallyarnafnið (Sarah týnd-
ist einhvernveginn fljótlega eft-
ir að ég fæddist) fellur Eskimó-
um svo vel i munni, að helzt
er útlit á, að ég verði aldrei
kölluð annað, enda þótt ég sé
skírð Sarah Miriam Wolfe.
(Dóttir okkar, Jennifer Ann,
heitir í höfuðið á báðum ömm-
um sínum. Eskimóanafn hennar,
Taptakut, er tekið eftir ömmu
Batistes.
En Batiste slær öll met. Sem
barn var hann nefndur Sanguq
(stefnubreytingur); opinberlega,
á manntalsskýrslum, heitir hann
Anguilik. Þegar liann kom til
Churchill sem drengur, festist
við hann nafnið Batiste, og síð-
ast fékk hann nafn föður sins
Tuttuk, sem oftast er stytt í
Tootoo. Allir Eskimóar hér kalla
liann Batiste. En þegar hann
skrifaði eftir skírnarvottorði
sinu, kom upp úr kafinu, að
liann hafði verið skirður Joseph
Antonin!
Þegar ég fór norður til Churc-
hill árið 1958 til mannfræði-
rannsókna fyrir háskólaprófið,
átti ég sízt von á þvi, að rekast
þar á mannsefnið mitt, að nafni
Anguilik. Þegar ég hitti Batiste
Tootoo, tvítugan vélvirkja, var
eina áhugamál mitt að spyrja
hann i þauia um vandamál ungra
Eskimóa. En í ágúst, þremur
mánuðum eftir að við hittumst
fyrst, vorum við trúlofuð.
Við ólumst upp við mjög ólík
skilyrði. Faðir minn rekur þjóð-
kunnugt skipshleðslufyrirtæki á-
samt þremur bræðrum sinum.
Ég fæddist í Viktoriusjúkrahús-
inu i Montreal, og kom siðan
heim i fullkomið barnaherbergi
ásamt barnfóstru. Þjónustustúlk-
ur voru alltaf haldnar. 1 jóla-
leyfinu vorum við alltaf hjá
ömmu minni i Miami Beach.
Þegar ég útskrifaðist úr mennta-
skóla, fékk ég að fara í tveggja
mánaða ferðalag til Evrópu.
Síðan fór ég i McGillháslcólann
til þess að taka .B.A. próf. (Bac-
helor of arts)
Batiste fæddist i snjóhúsi
skammt frá Chesterfieldfirði á
Norðvestursvæðinu. Til þriggja
ára aldurs var hann mest í
amaut, pokanum, sem festur
var á bakið á skinnúlpu móður
hans. Sex ára gamall fór hann að
fara með í veiðiferðir á sleða
og snara rjúpur með langri
svipuól. Sjö ára gamall skaut
hann fyrsta hreindýrið.
Er Batiste var tíu ára gamall,
l'lutti faðir hans og þrir bræð-
ur ásamt fjölskyldum sínum til
Churchill, og voru þeir fyrstu
Eskimóarnir, sem settust þar að
tii frambúðar. Tuttuk fékk at-