Úrval - 01.12.1965, Síða 11
LEYNDARMÁL SVISSNESKU BANKANNA
9
eða hömlur af nokkru tagi í fjár-
hagskerfi landsins. í landinu ríkir
lýðræðisstjórn, og hefur orðið mjög
lítil breyting á styrkleikahlutföll-
um flokkanna á þessari öld, þótt
tvær heimsstyrjaldir hafi geisað og
alheimskreppa dunið yfir. Sviss
býr enn við hina þjóðfélagslegu
vankanta síðasta áratugs fyrri ald-
ar. Þar hefur hvorki stríðsæsing
né félagslegar tilhneigingar nútím-
ans haft nokkur áhrif, heldur aðeins
vaxandi velmegun og tíminn sjálf-
ur. Sviss er enn í greipum alls kon-
ar hringa og fyrirtækjasamsteypa.
Skattar á félögum fara sjaldan fram
úr 25%, og tekjuskattur á persónu-
tekjum hækkar sjaldan hlutfalls-
lega, þegar tekjurnar komast yfir
fyrstu 5000 dollarana.
En þetta virki afturhaldsins nýt-
ur samt mestrar velmegunar í ger-
vallri Evrópu að Svíþjóð einni und-
anskilinni, og svissneskir verka-
menn, sem eru félagsbundnir í
sterkum verkalýðsfélögum, krefj -
ast hæstu launa á meginlandi Evr-
ópu og fá þau. Sviss er iðnaðarland
í enn ríkara mæli en Belgía eða
Bretland, og iðnaður þess er líka
enn nýtízkulegri í sniðum. Kyrr-
staða og þjóðfélagsleg afturhalds-
semi hefur ekki verið látin ríkja
í iðnaðinum, heldur hefur hann tek-
ið upp alis konar nýtízku aðferðir
og tæki í ríkum mæli. Það má þakka
það fremur hinu algera fjárhags-
lega frelsi í Sviss en þeirri frægu
leynd, sem hvílir yfir bankastarf-
semi þar, hversu fjármagnið heldur
stöðugt áfram að streyma inn í
iandið. Árið 1934 voru fyrst sett
svissnesk lög um þagnarskyldu
bankanna til þess að hindra þýzka
nazista í tilraunum þeirra til þess
að ná tangarhaldi á inneignum
þýzkra borgara í svissneskum bönk-
um. Og þessarar þagnarskyldu er
jafnt gætt af hálfu stjórnarinnar
sem yfirmanna bankanna. í Sviss
eru alls kyns úrræði til þess að
komast undan að borga skatta ekki
sáknæmt athæfi samkvæmt saka-
lögum, heldur er aðeins um það að
ræða að gera vissar ráðstafanir.
Stjórnarskráin kveður svo á um,
að engin stjórnarstofnun, hvorki
innlend né erlend, megi gera einka-
eignir upptækar án þess að á móti
komi fullar skaðabætur fyrir fram,
hver svo sem ástœðan er fyrir því,
að eignin er gerð upptæk. í slíku
landi hefur stjórnin því enga þörf
fyrir að ráðast inn í bankahólf.
Engin stjórn, ekki heldur sú sviss-
neska, fær nökkru sinni leyfi tii
þess að nálgast annarra bankahólf,
án þess að opinber réttur hafi veitt
slíkt leyfi, og slík opinber leyfi er
sem sagt ómögulegt að fá. Þessar
aðstæður valda geysimikilli ánægju
meðal Svislendinga, bæði ríkra og
fátækra, og hafa blátt áfram seið-
mögnuð áhrif á fjölmarga útlend-
inga. (í sumum gjaldþrotamálum
hefur málarekstur stundum staðið
yfir í 8 ár.).
Svisslendingar vernduðu inneign-
ir Gyðinga á valdatíma nazista og
veittu síðan inneignum nazista sömu
vernd, er þeir höfðu beðið ósigur
fyrir Bandamönnum. Þessar stað-
reyndir valda mörgum útlendingum
óróleika, sem vilja ekki samþykkja
þá skoðun Svisslendinga, að þeir
eigi ekki að gæta hins erlenda bróð-