Úrval - 01.12.1965, Blaðsíða 75
FORNAR SKÝÞAGRAFIR
73
oða leðurteppi var breitt yfir, og
tjaldað hafði verið yfir reykelsis-
ker úr kopar. Hampfræ fundið á
sama stað bendir til þess að tjaldið
hafi verið til þess að hægt væri að
njóta þar 'deyfandi reykjar af
brennandi hampfræi. Að menn hafi
notað önnur eiturlyf virðist koma í
ljós af hornílátum, en í einu þeirra
fannst lítil tréskeið — eins og enn
þann dag i dag er notuð í neftóbaks-
dósum í Mið-Asíu.
Það er í hestahólfunum, sem forn-
leifafræðingarnir hafa afhjúpað
fullkomnasta og bezt geymda mynd
af list þessa fólks sem gerði graf-
haugana. Eins og áður hefur verið
getið snertu grafarræningjarnir
iæplega við þeim hluta haugsins,
sem hestarnir voru grafnir. Auk
þess var þessi hluti graíarinnar
gaddfrosinn. Hestarnir fundust
mjög vel varðveittir, og þetta á
einnig við um þann útbúnað, sem
grafinn var með þeim.
Hestarnir voru af blönduðu kyni,
nokkrir stórir en aðrir minni.
Langflestir voru reiðhestar og voru
það allt vanaðir folar, tveggja til
tuttugu vetra gamlir. Þeir voru allir
með klippt fax og liðað tagl. Sum
töglin voru fléttuð og bundin upp
í hnút. Fyrir jarðarförina voru hest-
arnir drepnir með axarhöggi í höf-
uðið.
Nokkrir hestanna höfðu ennþá
yfirbreiðslu og leðurhólk um tagl-
ið, en flest reiðtýgin höfðu verið
lögð í bunka nálægt hestunum. Reið-
tygin voru á allan hátt athyglis-
verð. Hver hnakkur var gerður úr
tveim púðum, stoppuðum með dýra-
hári eða heyi, samansaumuðum
með söðulklæði, gjörð og reiða til
að spenna undir tagl hestsins.
Hnakkur og söðulklæði var skreytt
á ótrúlega fíngerðan hátt, þau voru
þakin útskurði í marglitt filt og
leður, og sýndu bardaga milli villi-
dýra, auk þess voru þau skreytt
lituðum þræði og greipt gulli eða
tini. Mikið af þessum fagra og fín-
gerða útskurði var alsett þunnum
plötum úr gulli eða tini og fannst
alveg ósnert. Ummerki um slit og
viðgerðir sýndu að hin gylltu reið-
tygi voru ekki aðeins grafskreyting-
ar, heldur höfðu þau einnig verið
notuð hversdagslega.
En þetta var ekki allt. Jafnvel
við hinar óæðri jarðarfarir voru
hestarnir skreyttir á enn athyglis-
verðari hátt, með skrautplötu eða
hettu efst á höfðinu. Einn af þess-
um hesthausum í einni Altaigröf-
inni hafði tvö stór hjartarhorn fest
saman að ofan og tígrisdýramynd
úr skinni hangandi niður á flipann.
Annar bar mynd af tígrisdýri sem
ræðst á vængjað skrýmsli með
kjafti og klóm. Hinn þriðji bar út-
skorið höfuð af fjallakind og á
hálsi hennar stóð stór fugl með út-
breidda vængi.
í einum haugnum við Pazyryk
( þeim 5. sem var grafinn upp)
fundust tvö mjög óvanaleg teppi
grafin með hestunum. Ánnað var
ofið úr ull og það er talið elzti
þekkti ullarvefnaður í heimi. Það
er hér um bil 2x2,2 m. stórt og er
ofið úr marglitu garni á furðulega
flókinn hátt. Á bút, sem er 100 cni2
stór er hægt, að telja 3600 hnúta.
A miðhluta teppisins er mynztur
sem samanstendiir af ferarma