Úrval - 01.12.1965, Side 71
FORNAR SKÝÞAGRAFIR
69
Þessir íjórír villihestar útskornir á lerktrékistu, eru einkennandi fyrir skýþíska dýra-
stílinn.
áfram með tvo aðra við Bash Adar
og tvo við Tuekte. Allar þessar
grafir voru verndaðar af sífelldu
frosti og innihald þeirra var dásam-
lega vel varðveitt. Allmargir aðrir
haugar með þynnra lagi af blágrýt-
ishellum hafa einnig verið grafn-
ir upp í þessum sömu héruðum. f
þessum haugum hefur innihald
grafanna orðið fyrir skemmdum í
rás tímans.
Fornleifafræðingar komust að
raun u mþað að stóru hellulögðu
grafirnar voru að mestu fullar af
íslögum. Við uppgröftin varð að
bræða ísinn með sjóðandi vatni.
Þegar grafararnir oð lokum hreins-
uðu og rannsökuðu grafklefana,
komust þeir að raun um að hver
einasti þeirra hafði verið rændur
mörgum öldum áður. Það var ljóst,
á hvern hátt og í hve ríkum mæli
ránin voru framkvæmd, og viss um-
merki gera það unnt að ákveða
nokkurn veginn á hvaða tímum þau
áttu sér stað.
Sem dæmi um byggingix graf-
hauganna skulum við líta á þá af
Pazyrykgerðinni. Byggingarmeistar-
arnir grófu fyrst ferkantaða gröf
u. þ. b. 5 metra djúpa og langa. í
þessari gröf smíðuðu þeir traustan
„kassa“ úr tré, og skildu eftir op-
ið pláss á milli bjálkaveggjarins
og moldarveggjarins, sem að norð-
anverðu var nógu breitt til að
geyma hesta hins látna höfðingja,
en þeim var slátrað í tilefni jarðar-
fararinnar, og í hinum einstöku
Pazyrykgröfum hafa fundizt í þessu
millihólfi frá 5 allt að 22 hestum.
Innan við fyrsta bjálkavegginn
reistu þeir yfirleitt annan og fylltu
hólfið milli þeirra með grjóti eða
mold. Hin innri gerð var sjálfur
grafklefinn, sem var lágur til lofts-
ins, ekki meira en u. þ.b. 1.25 m.
hár með gólfi, veggjum og lofti úr
tré, allt þakið þykku filtlagi. Líki
hins látna höfðingja, stundum með
konu eða hjákonu, var komið fyrir
í stórri kistu, einfaldri að gerð, sem
smíðuð var úr holuðum lerkitré-
stofni. (Nokkrum sinnum hafa
fundizt tvær minni kistur. í einni
gröf.) Kistan var þakin útskornum
dýramyndum, og útskurði í leður
eða birkibörk. í klefanum hjá hin-
um látna var komið fyrir ýmsum
grafarmunum — lágum borðum með
útskornum fótum, tréstólum, matar-
fötum o. s. frv. Klefinn var síðan
þakinn með mörgum lögum af berki
og spýtum. Ofan á þetta var syo