Úrval - 01.05.1966, Síða 14
12
urlegu taugaálagi og taugaspennu.
Sá hópur, sem stundaði líkamsæf-
ingar reglulega, var fljótari að jafna
sig eftir áhrifin af þessum aðstæð-
um heldur en hinn hópurinn.
„Þetta sýndi, að líkamleg áreynsla
og reglulegar líkamsæfingar auka
ekki aðeins taug^stýrk og þplni
taugakerfisins, svo að greinilegt er,
heldur þjónar slíkt einnig öðrum
tilgangi, sem er ekki minna virði“,
ségir að lokum í skýrslu þessari.
„Slíkt er sem sé mjög áhrifaríkt
ráð til þess að losna við tauga-
spennu. Slík taugaspenna heldur á-
fram að magnast, nema mönnum
takist að finna einhver ráð til þess
að draga úr henni og losna við
hana“.
3. Miklaðu vandamálin ekki allt of
mikið fyrir þér.
„Áður fyrr höfðu framkvæmda-
stjórar, sem höfðu sinn eigin rekstr-
arkostnaðarreikning áhyggjur af
því, hvernig viðskiptin gengju. Sölu-
menn höfðu áhyggjur af því, hvort
þeim tækist að selja það magn, sem
þéim hafði verið gert að selja. Nú
hafa þeir þess í stað áhyggjur af
taugaspennu og taugaálagi, maga-
sári, of miklu sællífi og öðru slíku“,
sagði ritstjóri einn nýlega.
Fólk almennt hefur yfirleitt á-
hyggjur af fjölmörgu, og þessi sí-
felldi kvíði hverfur vart úr huga
þess. Þessar sífelldu áhyggjur og
vangaveltur eru orðnar eins konar
ávani hjá því. Og oft snúast áhyggj-
urnar um lítil vandamál. Fólk erg-
ir síg og æsir vegna minni háttar
óþæginda, svo sem umferðarinnar,
bílastæðisvandræðanna eða tillits-
ÚRVAL
leysis annarra. Og öll þessi minni
háttar vandamál hlaðast upp og
mynda meginkjarna taugaspennu
hvers dags.
„Spurðu sjálfan þig, hvort þessi
vandamál snerti þig í raun og sann-
leika persónulega eða ekki“, segir
dr. Frank Hamilton. „Skipta þau
miklu máli í lífi þínu? Snerta þau
þig í raun og veru eða skapa þau
bara innra með þér kvíða vegna
þess, sem kann að gerast? Ef þú
temur þér að líta svo hlutlægum
augum á hlutina, mun slíkt hjálpa
þér til þess að taka næsta skrefið,
sem þú þarft að taka til þess að
geta metið vandamálin rétt og lát-
ið vera að mikla þau fyrir þér. Þeg-
ar þú hefur gert þér grein fyrir því,
hvað snertir líf þitt í raun og veru,
skaltu staldra við og velta því fyr-
ir þér í ró og næði, hvað þú getur í
raun og veru gert í málum þessum!
Geturðu ef til vill gert eitthvað á-
þreifanlegt til þess að koma í veg
fyrir slík óæskileg áhrif á líf þitt
eða draga úr slíkum mögulegum á-
hrifum, í þeim tilfellum þegar þú
ræður ekki algerlega við rás við-
burðanna? Sé svo, skaltu fram-
kvæma það, sem framkvæma þarf“.
4. Búðu þig undir hið óvænta.
Fólk finnur til mikils taugaálags,
þegar hið óvænta veldur röskun á
venjum hins daglega lífs þess. Slæm-
ar fréttir, óhöpp og erfiðleikar við-
skiptalífsins, slys og meiðsli eða
jafnvel óvæntur gestur, allt getur
þetta framkallað taugaálag og
spennu.
Ógnun við öryggi einstaklingsins,
vellíðan hans, hamingju og sjálfs-