Úrval - 01.05.1966, Blaðsíða 23
Ég hef eytt mörgum árum œvi minnar sem kúahirðir.
Og þegar ég var að stússa við kýrnar, var ég vanur að gefa gœtur
að hegðun þeirra og umgengnisvenjum, þ.e. ég rannsakaði þœr
sem „félagsverur“. Fólk hefur oft tekið eftir því og haft orð á því,
að kýrnar eigi sér sitt sérstaka samfélag með vissum venjum
og siðum og að með þeim bia kennd um stöðu hvers einstaklings
innan samfélagsins. Iiafi maður slíkt í huga við þess háttar athugun,
kemur margt furðulegt í Ijós.
Kýr eru hrífandi
rannsóknarefni
Eftir R. D. Lee.
, Það er velþekkt fyrir-
brigði, að kýrnar eiga
sér sína yfirstétt og
'fsOszSzí fastformað samfélags-
skipulag, ef svo mætti
orða það. Það er um að ræða fastan
virðingarstiga, allt frá „foringja“
hjarðarinnar niður til vesalingsins,
sem er bitbein allrar hjarðarinnar.
Sá, sem hefur oft horft á sama kúa-
hópinn fara í gegnum hlið, tekur
fljótlega eftir því, að forystukýrnar
verða alltaf að fara í fylkingar-
brjósti í gegnum hliðið og að kýrnar
munu yfirleitt alltaf fara í gegnum
hliðið í sömu röð, fái þær að vera
einráðar. Ef einhver „lágtsett" kýr
reynir að komast í gegn, áður en
að henni er komið, munu „háttsett-
ari“ kýr fljótlega minna hana á, að
hún skuli gæta stöðu sinnar, með
því að gefa henni velútilátið högg
með hausnum.
Þessi virðingarstigi er ætíð á-
kveðinn á hverju vori, venjulega
þegar kúnum er sleppt úr fjósinu
út í græna hagana. Oft verða þá
orrustur milli ýmissa kúa, sem reyna
krafta sína með því að stanga hvor
aðra og fylgja fast á eftir. Sú kýr-
in, sem lætur undan síga, lætur sér
nægja óæðra virðingarsæti en sigur-
vegarinn það sem eftir er ársins.
Bardagar þessir verða harðari,
þegar um er að ræða keppni um
sjálfa forystu hjarðarinnar, og kýr,
sem gengur með „forystugrillur“ og
álítur sig „vera á uppleið", mun
gera sitt ýtrasta til þess að steypa
forystukúnni úr tignarsætinu. Hinir
lægra settu meðlimir kúasamfélags-
ins gera ekki neinar ákveðnar til-
raunir til þess að klifra upp met-
orðastigann, ef þeir efast um hæfi-
leika sína til þess að „komast vel
áfram í veröldinni11, og venjulega
eru viðureignir slíkra kúa fremur
til málamynda en að það sé um
blákalda alvöru að ræða.
Samt hafa jafnvel hinir lægst-
Animals
21