Úrval - 01.05.1966, Blaðsíða 65
BEATRICE OG BRENDAN BEHAN
63
henni, í kirkju, í grænmetisbúð, og
í matsölu — og veitingastöðum í
Dublin. Annað okkar tók sér sæti í
hestvagni. Hún sagði okkur að
Brendan hefði verið mikið fyrir að
ferðast í hestvögnum. Á brúðkaups-
daginn okkar ókum við fram og
aftur um Dublin í hestvagni, og
eftir það vissi ég að Brendan mundi
ekki vera fjarri, ef svo bar til að
ég sæi hestvagn fyrir utan veitinga-
stað.“
í fyrsta samtali okkar sagði hún
svo: „Brendan þótti gott að drekka
kampavín. Og ákváðum við að
drekka kampavín. Hún lyfti hægri
hendi og á baugfingri blikaði á skír-
an demant.
„Hann keypti þennan demants-
hring þremur vikum eftir að við
giftumst,“ sagði hún. „Hann keypti
hann í veðlánarabúð. Giftingar-
hringurinn minn sýnist úr platínu,
en hann er úr silfri. Hann kostaði
seytján og sex (rúmlega hundrað
krónur). Þeir eru keyptir í sömu
búð.
„Seinustu árin, sem Brendan
ligði,“ sagði hún, „hafði hann
fimmtíu þúsund dollara í árstekjur.
Svo mætti sýnast sem jafnvel kon-
ungi gæti orðið skotaskuld úr því
að eyða öðrum eins árstekjum,
hérna í Dublin. En þetta tókst hon-
um með heiðri og sóma. Allt var
það drukkið út í árslok, gefið og
lánað.“
Hún sagðist ekki hafa fengið „eitt
penny“ frá manni sínum að honum
látnum. Hann gerði enga erfðaskrá.
Faðir Brendans var í fangelsi
þegar hann fæddist, sakaður um
uppreisnarstarfsemi. Þegar hann var
tíu nátta færði móðir hans hann
að glugganum, þar sem faðir hans
sat innan við, og hann rétti hönd
út milli járnstanganna og blessaði
hann.
Móðir hans var sílesandi, líka við
verk sín, og á hverju kvöldi las
hún hátt fyrir börnin sín sjö. Hún
las einkum ádeilubækur: Sean O’-
Casey, George Bernard Shaw,
Charles Dickens, Brendan toldi illa
í barnaskólum sínum, skipti um,
lærði lítið.
Þegar Brendan var 16 ára gekk
hann í leynilegu andspyrnuhreyf-
inguna til þess að taka virkan þátt
í þjóðfrelsisbaráttu íra, en var stuttu
síðar tekinn höndum í Liverpool
fyrir að hafa í fórum sínum brenni-
steinssýru og sprengiefni. Honum
var gefið að sök að hafa ætlað
að sprengja orrustuskipið King
George V í loft upp, og dæmdur
í þriggja ára fangelsi ætlað afbrota-
unglingum. Um þessa fangelsisvist
skrifaði hann síðar bókina The Bor-
stal Boy, og er hún einnig lýsing á
brezkmn fangelsum yfirleitt, og
hafði þegar í stað metsölu bæði í
Bandaríkjunum og Englandi. Einn
af þeim sem um hana skrifuðu
sagði hana vera „napra. heimspeki-
lega, ófyrirleitna, fyndna og frá-
bærlega vel ritaða.“
Fáum mánuðum eftir að Brendan
var látinn laus, hitti hann tengda-
föður sinn, sem síðar varð, Cecil
French Salked, á veitingastofu. Þeir
drukku saman, og fóru svo yfir í
aðra veitingastofu. Það rigndi þenn-
an dag og regnið var strítt og kalt
eins og gerist á írlandi á haustin.
Þegar leið að lokunartíma, sulgu