Úrval - 01.05.1966, Page 21
JVY AÐFERÐ TIL AÐ KOMA í VEG FYRIR . . .
19
Slæma verki í brjóstholi má auð-
vitað rekja til fleiri orsaka en
kransæðasjúkdóma. Það getur jafn-
vel verið um röskun í taugakerf-
inu að ræða. Af 1000 sjúklingum,
sem voru nýlega skoðaðir á sjúkra-
húsi þessu, reyndust 366 þeirra, eða
þriðji hver sjúklingur, hafa tiltölu-
lega eðlilegar kransæðar, þótt búið
væri að kveða upp þann úrskurð
eftir fyrri sjúkdómsgreiningu, að
þeir þjáðust af slagæðasjúkdóm-
um. Fólk þetta hefði ef til vill hlíft
sér óhóflega mikið það sem eftir
væri ævinnar í þeirri trú, að það
þjáðist af hjartasjúkdómi. Þegar
sjúkdómsgreining þessi gefur til
kynna, að um kransæðasjúkdóm sé
að ræða, sýnir hún nákvæmlega,
hvar í kransæðunum stíflan er, og
hjálpar til þess, að unnt sé að taka
ákvörðun um, hvort uppskurður
muni koma að gagni og hvernig
þeim uppskurði skuli þá háttað.
Ein slíkra skurðaðgerða, „endarte-
rotomy“, er hlutfallslega einföld.
Þegar stíflusvæði finnst í krans-
æð, er ekki gerð nein tilraun til þess
að ná efni því burt, sem stífluna
myndar. Þess í stað er æðaveggur-
inn opnaður og æðabútur græddur
á til þess að víkka þannig æðina
og auka þannig blóðstrauminn.
Læknar hafa skýrt frá prýðilegum
árangri slíkra aðgerða hjá 25 sjúkl-
ingum, sem valdir voru með fyrr-
greindri röntgenkvikmyndunarað-
ferð. Aðrar kvikmyndir, sem teknar
voru af sömu sjúklingum tveim ár-
um eftir uppskurðinn, sýna, að á-
hrifin af aðgerðum þessum eru var-
anleg, þ.e. kransæðin hefur víkkað.
Önnur aðgerð, sem nefnd er
,,endarterectomy“, er fólgin í því,
að kransæð er opnuð og hún síðan
hreinsuð. Efnið, sem stífluna mynd-
ar, er með öðrum orðum hreinsað
burt. Slíkri aðferð hefur verið beitt
með góðum árangri við sjúklinga í
siúkrahúsi Kaliforníuháskóla í Los
Angeles.
Þessar skurðaðgerðir eru ekki
allra meina bót. Þær koma að gagni,
þegar stíflan nær yfir mjög tak-
markað svæði. En annarri skurð-
aðferð er einnig hægt að beita,
þegar stíflan er útbreidd um stór
svæði. Þá er um það að ræða að
græða við hjartavöðvann slagæð þá,
sem kölluð er á læknamáli „inter-
nal mammary“ og er á bak við
bringubeinið. Fyrir 18 árum datt
dr. Arthur M. Vineberg við Kon-
unglega Viktoríusjúkrahúsið í Mont-
real í hug, að unnt mundi að nota
slagæð þessa til að vinna bug á
áhrifum útbreiddrar slagæðastíflu
með því að beina þannig blóðinu
nýja braut til hiarta, sem skorti
næringu. í fyrstu gerði hann slíkar
tilraunir einungis á dýrum. Fyrir
14 árum reyndi hann síðan fyrsta
uppskurðinn af þessari tegund á
manni, sem þiáðist af kransæða-
stíflu. Hann hefur síðan beitt skurð-
aðgerð þessari við 160 sjúklinga, sem
allir voru mjög þungt haldnir.
flestir þeirra höfðu haft sára hjarta-
verki í a.m.k. 2 ár. 63% þeirra
höfðu fengið hiartaslag og sumir
jafnvel 6 sinnum.
í byrjun þessa árs skýrði Vine-
berg svo frá árangrinum af upp-
skurðum þessum. Og hefur hann
reynzt alveg furðulegur. Hann varð
var við greinilegan bata hjá 70%