Úrval - 01.05.1966, Blaðsíða 50
48
ÚRVAL
urlyíjaneytandi 1 13 ar, heíur nu
lokið gagnfræðaskólaprófi og er nú
í garðyrkjuskóla. Hinn sjúklingur-
inn hafði verið eiturlyfjaneytandi í
6 ár. Hann hefur nú lokið gagn-
fræðaskó.lanámi og námsefni neðri
bekkja menntaskóla, samtals þriggja
ára námi, á hálfu öðru ári með góðri
einkunn, hefur nú fengið námsstyrk
og hóf nám í efri bekkjum mennta-
skóla nú 1 haust.
„Stórkostlegustu áhrifin af lækn-
ismeðferð þessari eru vafalaust fólg-
in í því, að eiturlyfjahungrið hefur
horfið“, skrifuðu læknar þessir ný-
lega í The Journal of the American
Medical Association (Tímariti
Bandaríska læknafélagsinsj. „Allir
sjúklingarnir höfðu áður reynt að
halda sig frá eiturlyfjum eftir fyrri
læknismeðferð, en þeir höfðu ekki
getað staðizt hungrið. Eiturlyfja-
hungrið varð þeim flestum óbæri-
legt, skömmu eftir að þeir útskrif-
uðust af hælunum og komu aftur á
fornar slóðir. Þetta hungur varð
sérstaklega kvalafullt, þegar þeir
urðu fyrir einhverju andlegu álagi
og röskun á tilfinningalífi. En sjúkl-
ingar þeir, sem héldu áfram að taka
inn methadone, komust að því, að
þeir gátu alveg óhræddir hitt aftur
vini sína, sem voru eiturlyfjaneyt-
endur og jafnvel horft á þá sprauta
diacetylmorfíni (heroini) í sig.
Hvernig hefst svo þessi læknis-
meðferð?
Eiturlyfjaneytandinn getur dáið,
sé hann skyndilega og algerlega
sviptur eiturlyfjunum.
Sjúklingarnir koma beint af
strætunum af öðrum heilsuhælum
eða samkvæmt tilvísunum lækna og
hjálparstofnana, sem frétt hafa um
þessa nýju læknismeðferð. Sumir
sjúklingar eru sendir af öðrum
sjúkrahúsum, en að sjálfsögðu með
þeirra eigin samþykki. Allir hafa
sjúklingarnir verið eiturlyfjaneyt-
endur í a.m.k. 4 ár.
I hinni almennu deild Beth Israel-
sjúkrahússins á Manhattan í New
Yorkborg, þar sem þessar fyrstu til-
raunir og athuganir fóru fram,
sýndu flestir nýkomnir sjúklingar
nokkur merki eiturlyfjahungurs, þar
eð nokkrir klukkutímar höfðu lið-
ið, síðan þeir tóku inn síðasta eitur-
lyfjaskammtinn. Einkenni þessi
voru mismunandi ákveðin, hjá sum-
um aðeins minni háttar, en hjá öðr-
um mjög alvarleg merki um eitur-
lyfjahungur. Um var að ræða flök-
urleika, ofsalegan höfuðverk, flog,
vöðvakrampa og verki, geispa, mikla
svitaútgufun og örvæntingarfulla
löngun í nýjan heroinskammt.
Þessi einkenni byrja venjulega að
koma í ljós 8—12 tímum eftir síð-
asta skammtinn og verða smám sam-
an ofsalegri. Þau ná hámarki sínu
36—72 tímum eftir síðasta skammt-
inn, og síðan dregur smám saman
úr þeim næstu 5—10 daga. Magn-
leysi, svefnleysi, taugaóstyrkur,
vöðvakrampi og verkir hverfa
stundum ekki að fullu fyrr en eftir
nokkrar vikur. Sé eiturlyfjaneytahd-
inn skyndilega og algerlega sviptur
eiturlyfjunum, getur slíkt valdið
dauða hans.
Sjúklingar, sem sýna þessi sjúk-
dómseinkenni, fá skammt af eitur-
lyfi til þess að draga úr þeim, en
síðan hefst methadonemeðhöndlun-
in. Meðhöndlunin getur hafizt taf-