Úrval - 01.05.1966, Síða 51
LYF, SEM LÆKNAÐ GETUR....
49
arlaust, ef slíkt sjúkdómseinkenni
eru ekki fyrir hendi. Eftir fyrsta
daginn er unnt að ákvarða, hvaða
methadoneskammtur sé nauðsynleg-
ur, og líðan sjúklingsins er alveg
eðlileg, á meðan hann tekur hið
nýja lyf inn, að sögn dr. Nyswand-
ers.
Sérhver sjúklingur dvelur í
sjúkrahúsinu í eina viku, og á þeim
tíma fer fram allsherjar læknisskoð-
un, sálgreining, athugun á öllum
einkamálum hans, svo sem fjöl-
skyldu og ýmsum vandamálum við-
víkjandi húsnæði og atvinnu, jafn-
vel eru gerðar tilraunir til þess að
útvega honum atvinnu. Næstu 5 vik-
urnar fá sjúklingar að fara af
sjúkrahúsinu að deginum til, en
verða að snúa þangað aftur á kvöld-
in. Þeir geta stundað skóla og far-
ið í bókasöfn og búðir. Oft fer ein-
hvers starfsmaður sjúkrahússins
með þeim. Sjúklingar, sem hafa hætt
námi í gagnfræðaskóla og mennta-
skóla, taka til að sækja tíma að
nýju. Flestir sjúklinganna eru
kvíðnir og hafa litla trú á meðhöndl-
un þessari, og því eru ekki fleiri en
4—9 sjúklingar á hverri stofu. Þetta
veitir starfsfóikinu betri tækifæri
til þess að sinna hverjum einum sér-
staklega.
Dagleg lyfjagjöf.
Þegar þessu 6 vikna tímabili er
lokið, fara sjúklingar aftur heim til
sín, en koma einu sinni á dag til
sjúkrahússins til þess að fá sinn
methadoneskammt. Þeir verða að
taka lyfið í augsýn hjúkrunarkonu.
Nú er sjúklingunum hjálpað í leit
að atvinnu, húsnæði og menntun,
þegar þörf krefur.
Hafi sjúklingurinn stolizt til þess
að neyta eiturlyfja, koma áhrifin
fram í efnagreiningu þvags hans
næstu 3 dagana á eftir. Áhrifin af
methaoneinngjöf koma líka fram í
þvaginu. Því er þess krafizt af sjúkl-
ingum, að þeir skilji daglega eftir
þvagsýnishorn til efnagreiningar.
Þetta tryggir það, að upp kemst um
leynda eiturlyfjaneyzlu, sem kann
að hafa farið fram hjá starfsfólki
sjúkrahússins.
Áhrifin af methadone eru furðu-
leg á þann hátt, að þau útiloka það,
að eiturlyf hafi nokkur áhrif á sjúkl-
inginn. Ef sjúklingur, sem er í met-
haonemeðhöndlun, tekur inn hero-
in, en slíkt gerðu einmitt 4 sjúkl-
inganna, þá hefur heroinið engin
áhrif. Þeir finna ekki til neinna eit-
urlyfjaáhrifa. Og þar að auki skýrðu
þessir 4 sjúklingar sjálfviljugir frá
þessari hrösun sinni, sem er næst-
um því algerlega óþekkt fyrirbrigði
meðal eiturlyfjasjúklinga, sem und-
irgangast læknismeðhöndlun. Og
síðar ráðlögðu þeir einnig öðrum
methadonesjúklingum að láta hero-
inið alveg eiga sig, því að slíkt hefði
enga þýðingu.
Eiturlyfjaneytandur, sem eru háð-
ir heroini, glata næmleika sínum
gagnvart líkamlegum og andlegum
örvunum. eftir að þeir hafa tekið
inn sinn heroinskammt. Þeim finnst
þeir vera fjarri öllum raunveruleika
og eru oft örir af gleði. Þegar þeir
reyna að venja sig af heroininu og
einhver vandamál verða á vegi
þeirra, dregur heroinið þá til sín,
því að þeir vita ósköp vel, að það
er auðveld leið til „flótta frá raun-