Úrval - 01.05.1966, Síða 52
50
URVAL
veruleikanum“.
En eiturlyfjaneytandinn, sem
neytir stöðugt heroins, venst því og
þarfnast stöðugt stærri skammts til
þess að fá sömu eiturlyfjaáhrifin.
Þannig er því ekki farið með met-
hadone. Skammturinn verður alltaf
sá sami, og hingað til hefur ekki
orðið vart við neinar hliðarverkan-
ir.
Sjúklingar, sem hafa undirgeng-
izt methadonemeðhöndlun, hafa
einnig undirgengizt alls konar próf-
anir, á beinmerg og taugaviðbrögð,
blóðprófanir og vöðvaprófanir og af
þeim hafa verið teknar röntgen-
myndir. Læknarnir Dole og Nys-
wander skýra frá því, að þeim hafi
ekki tekizt að finna læknisfræði-
lega eða sálfræðilega prófun, sem
sýnt geti fram á muninn á venjuleg-
um manni, sem ekki'er háður nein-
um eiturlyfjum, og þeim, sem und-
irgengst methadonemeðhöndiun.
Það er aðeins þvagprófunin ein, sem
kemur upp um fyrrverandi eitur-
lyfjaneytanda.
Það er jafn auðvelt að gefa fyrr-
verandi heroinneytanda inn metha-
done og að gefa sykursjúklingi inn
insutin. í báðum tilfellum geta sjúk-
lingar lifað eðlilegu lífi, meðan með-
höndlunin stendur yfir. Ef til vill
mun síðar reynast unnt að binda
einnig endi á methadoneinngjöfina,
on tilraunirnar eru samt ekki enn
komnar á það stig.
Þessi tilraunastarfsemi fer nú vax-
andi og nær til æ fleiri sjúkiinga.
Methadonetilraunin var látin ná til
fjögurra almennra sjúkrahúsa í New
Yorkborg í fyrrahaust. Nú eru einn-
ig hafnar sams konar tilraunir með
kvenfólk, og hafa þegar 4 kven-
sjúklingar undirgengizt slíka með-
höndlun.
Mismunur þurrkast út.
Það eru miklar vonir tengdar við
þessa nýuppgötvuðu methadone-
læknismeðferð. Nokkrir hinna fyrr-
verandieiturlyfjasjúklinga hafa ver-
ið ráðnir til starfs af . Almenna
sjúkrahúsinu á Manhattan. Enn aðr-
ir vinna sem aðstoðarmenn við hin-
ar nýju tilraunir. Um hina fyrrver-
andi sjúklinga viðhefur dr. Nys-
wander þessi orð: „Enginn gestur í
sj úkrahúsi Rockefellerstofnunarinn-
ar eða Almenna sjúkrahúsinu á
Manhattan, jafnvel ekki starfsmað-
ur eiturlyfjalögreglunnar, hefur enn
getað sagt til um það með vissu,
hverjir eru sjúklingar og hverjir
starfsmenn sjúkrahúsanna“.
APAR OG DINOSAURUSAR
Fyrsta sönnun þess að apar (svo má nefna einu nafni hálfapa, frum-
apa og mannapa) hafði verið uppi samtímis dinosaurusum, eða fyrir
62 til 63 milljónum ára, hefur nú fundizt í Montana. Steingervinga-
fræðingar frá Museum of Natural History (Náttúrugripasafni Banda-
rikjanna og háskólanum í Minnesota, hafa sagt þennan fund sanna,
að þessi ættbálkur dýra hafi orðið til þremur milljónum ára fyrr
en haldið hefur verið.