Úrval - 01.05.1966, Síða 57
SÁLFRÆÐINGAR SNÚA SÉR AÐ ....
.5
Nýja Mexíkófylkis, en þar átti ég
einu sinni heima.“ Annar draumur:
„Ég tók eftir mynd, eða einhverju,
sem fært var upp á leiksviði“. Enn
einn: „Santa Fé á markaðsdegi.
Margir Indíánar komu með vörur
sínar.“
Daginn eftir var tilraunamönn-
um sýnd mynd Orozco’s og nokkrar
aðrar sem reynt hafði verið að
senda. Var ekki vitað til þess að
þeir hefðu áður séð þessar myndir.
Þeir voru nú beðnir að reyna að
muna drauma sína, og segja síðan
hvaða mynd þeir héldu að átt hefði
við hvern draum. Þessu bar svo
vel saman að um tilviljun gat naum-
ast verið að ræða.
„Svo er komið í vísindum“, sagði
dr. Margenau á ráðstefnunni, „að
við blasa nýir möguleikar“. „Að
halda því fram að það sé eitt sem
vísindin vita nú þegar og játa, geti
átt sér stað, er nýtízku kreddufesta,
sem er engu viturlegri en kreddu-
festa trúarbragðanna áður fyrr.
Fyrir vísindunum liggur að kanna
hin dulrænu fyrirbrigði, og verða
þau gagnvart þeim að sýna hvers
þau eru megnug."
SKÝRINGU VANTAR
„Á umbreytingu hinnar líkamleg'^
skynfæraertingar í meðvitaða hug-
arhræringu vita vísindin eins og
þau eru nú, enga skýringu. Þetta
er ráðgáta eða öllu heldur undur,
engu að síður furðulegt en flutning-
ar skynáhrifa frá einni meðvitund
• til annarrar“, sagði Margenau enn-
fremur. Það er ekki hægt að tala
um efnishyggju á sama hátt og
áður í eðlisfræði nútímans. Hinn
eðlisfræðilegi raunveruleiki kemur
nú öðru vísi fyrir en áður. í úti-
lokunarlögmáli kvantafræðinnar
verður vísindamaðurinn vottur að
hálffagfræðilegum gagnáhrifum,
sem verða ekki eftir lögmálum
hinnar þekktu eðlisfræði. Þannig
er ekki loku fyrir það skotið, að
eðlisfræðin og staðreyndir fjarhrif-
anna geti samrýmst, en eftir er að
sýna fram á það.
Dr. Gardner Murphy, sem er sál-
fræðingur að mennt, en hefur verið
formaður hins ameríska félags síð-
an 1962 telur þessi atriði mikil-
vægust viðfangsefni rannsóknannna:
1) að athuga við hvaða skilyrði
það er sem fyrirbrigðin gerast. 2)
Að finna ráð til að örva þau og
auka. 3) Komast upp á lag með að
láta þau gerast hvenær sem er,
eða endurtekið. 4) að finna lögmál
þau sem fyrirbrigðin hlíta.
Dr. Murphy er í hópi hinna
kunnustu fyrirburðafræðinga. Hann
er nú formaður ameríska félags-
ins (A.S.P.R.) en hafði áður verið
formaður Lundúnafélagsins (S.P.
R.). Nú sem stendur er hann yfir-
maður sálfræðilegra rannsókna við
Menningerstofnunina í Topeka í
Kansas, en stjórnaði áður sálfræði-
deildinni við City College í New
York.
Menn voru samdóma um það á
ráðstefnunni að endurteknar til-
raunir á rannsóknarstofum væru
æskilegar. En hitt er mönnum líka
ljóst, að margir einstaklingar hafa
sýnt furðulega fjarhrifahæfileika
alveg óundirbúið og óvart. Oft
dregur úr hæfileikanum þegar á
rannsóknarstofuna er komið. Það